Úrdráttur úr sögu

Upphaf
Upphaf
Upphaf
Mynd 2 af 2
1 2

Úrdráttur úr sögu

Kvennakór Hornafjarðar var stofnaður 9. september 1997 en áður söng kórinn í eitt ár undir nafni Leikfélags Hornafjarðar. Kórinn hefur starfað af fullum krafti öll þessi ár. Kórinn hefur alla tíð haft æfingaaðstöðu hjá Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Fyrsti stjórnandi kórsins var Vilborg Þórhallsdóttir tónmenntakennari. Jónína Einarsdóttir tónmenntakennari og píanóleikari hefur verið undirleikari kórsins frá upphafi fyrir utan 2 ára hlé. Báðar eru stofnfélagar kórsins.

Kórinn stendur fyrir Aðventutónleikum og Vortónleikum á hverju ári á Höfn. Auk þessa hefur kórinn haldið tónleika á nokkrum stöðum á austurlandi, suðurlandinu og á stór Reykjavíkursvæðinu.

Kórinn hefur farið í þrjár utanlandsferðir, til Svíþjóðar 2002 þar sem sungið var í Stokkhólmi og Gautaborg, til Danmerkur 2004 þar sem sungið var í Kaupmannahöfn og til Þýskalands 2007 þar sem sungið var í Hamborg. Einnig hefur kórinn sungið við hin ýmsu tækifæri bæði í heimabyggð og annars staðar.

Fjöldi kórfélaga í gegnum árin hefur verið á bilinu 20 - 45. Lagaval hefur verið mjög fjölbreytt og einkennst af léttleika og áskorunum.

Kórstjórar hafa verið fjórir og aðalundirleikarar þrír. Þó nokkrir gestaundirleikara hafa spilað með kórnum auk þess sem ýmsir hæfileikar leynast hjá kórkonum sjálfum.

Að vera í kvennakór er ein sú besta skemmtun og félagsskapur sem hægt er að hugsa sér. Þar fær maður útrás fyrir sköpunargáfuna í tónlist, söng og skemmtunum. Þar myndast líka vinskapur sem er dýrmætur hverjum og einum. Í kórnum eru hressar og afkastamiklar konur sem leggja metnað sinn í það að gera veg kórsins sem mestan og bestan.

Í tilefni af 10 ára afmæli kórsins 2007 tókum við saman þessa lista.

Hvernig höfum við fjáraflað?:

17. júní (umsjón), Bakaðir og steiktir pungar til sölu, Bingó, Dagatöl, Erfidrykkjur (umsjón), Fermingar og heillaskeyti, Fermingarveislur ( þjónað), Félagsgjöld, Fiskisala, Flóamarkaður, Humarhátíð básar- gæsla- umsjón, Jólatónleikar, kökuhlaðborð, Markaðstorg, Sala á jólaskódóti, Samlokur og kaffi á Sjómannadag, Slorvinna í Norðurís, Þjóðarkvöld fyrir Humarhátið, Styrktarlínur, Söngur á 1. maí, Tónleikar,  Kökubasarar, Þrif (á óteljandi stöðum), erfidrykkja.

 

Hvar hafa verið æfingabúðir?:

Djúpivogur, Flúðir, Hafnarkirkja, Holt á Mýrum, Hótel Höfn, Hrollaugsstaðir, Mánagarður, Smyrlabjörg, Þórbergssetur á Hala, Tónskólinn.

 

Á hvaða tungumálum höfum við sungið?:

Búlgörsku, Dönsku, Ensku, Finnsku, Ghanisku, Hebresku, Íslensku, Latínu, Pólsku, Rússnesku, Serbnesku, Spænsku, Svahili, Sænsku, Xhosa, Þýsku.

 

Hverjir hafa verið undirleikarar hjá okkur?:

Ása Sæunn Eiríksdóttir, Erna Gísladóttir, Eva Ósk Eiríksdóttir, Eymundur Ragnarsson, Eyrún Axelsdóttir, Friðrik Jónsson, Guðlaug Hestnes, Heiðar Sigurðsson, Hreinn Halldórsson, Jónína Einarsdóttir, Katrín Þráinsdóttir, Ragnar Eymundsson, Sólveig Morávek, Súsanna Torfadóttir, Svala Axelsdóttir, Svavar Sigurðsson, Ung stúlka á Djúpavogi, Zophonías Torfason,  Þórhildur Rán Torfadóttir, Þórir, Ögmundur Einarsson.

 

Hvar höfum við sungið?:

 

1.maí á Hótelinu / við Heppuskóla, Á Ósnum  við Hafnarbraut, Árbæjarkirkju, Djúpavogskirkju, Dómkirkjan í Hróarskeldu, Dómkirkjan í Verden, Egilsstaðakirkja, Félagsheimilið Flúðum, Félagsheimilið Hvolsvelli, Finnsku kirkjunni í Stokkhólmi, Hafnarkirkju, Háteigskirkju, Hjúkrunarheimilið Egilsstöðum, Hjúkrunarheimilið Víkurbraut, Hofgarði, Hótel Höfn, Hótel Ísland /Broadway, Hótel Soltau, Hrollaugsstöðum, Humarhátíð á bryggjunn, Í garðinum hjá Bróa og Gullu,,Í garðinum hjá Gísla Arasyni,Í garðinum hjá Kristínu Gests, Í garðinum hjá Svövu og Sveinbirni fyrir Júlíu Imsland, Íþróttahúsið á Höfn, Íþróttahúsið á Siglufirði, Íþróttahúsið í Hafnarfirði, Jónshús í Kaupmannahöfn, Kirkja í Hamborg, Kirkjan í Soltau, Landsbankanum Höfn, Mánagarði, Miðbæ, Nýheimum, Pakkhúsi, Rauða húsið Stokkseyri, Sendiráðið í Kaupmannahöfn, Sendiráðið í Stokkhólmi, Siglufjarðarkirkju, Sindrabæ, Skarskirkja í Gautaborg, Skálholtskirkja, Skjólgarði við Hvannabraut, Slysavarnarhúsið (með Ljósbrá), Smyrlabjörgum, Sungið í brúðkaupi og jarðarför, Tívoli í Kaupmannahöfn, Í Lóni við sumarbústað Árna Stefánssonar, Vetrargarðurinn í Smáralind, Vikinni, Víðistaðakirkja í Hafnarfirði, Vöruhúsið.

 

Hverjir hafa verið kórstjórar?

Svavar Sigurðsson 

stjórnaði Kvennakórnum frá áramótum 2006 til vorsins 2008, en áður hafði hann verið undirleikari í eina önn þegar Ninna fór í KHÍ. Stjórnaði hann kórnum af metnaði og urðum við bara betri og betri. Svavar bjó þá á Djúpavogi og starfaði sem kirkjuorganisti og skólastjóri tónlistarskólans á Djúpavogi. Hann er nú fluttur "suður" ásamt spúsu sinni Silviu Hromadko.

En hver er hann?

Svavar fæddist í Kópavogi 1967 og ólst upp í Reykjavík. Í barnæsku hafði hann fyrstu kynni sín af kvennakór þegar móðir hans og fjórar systur hennar hittust reglulega og sungu gömlu góðu lögin. Sex ára var hann ráðinn sem undirleikari hjá þeim. Seinna lærði Svavar til organista hjá Tónskóla Þjóðkirkjunnar en utan þess að hafa stjórnað Kór Átthagafélags Strandamanna og Kór Menntaskólans við Sund, hefur hann stjórnað hinum ýmsu kirkjukórum.

 

Sigjón Bjarnason

Vilborg

 

 

 

 

 

 

    




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica