Ríki Vatnajökuls - Kvennakór Hornafjarðar
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Úrskriftarnemar FAS - 2012
Vor um Hornafjörð
      <alt>Kvennakór Hornafjarðar</alt>
Kvennakór Hornafjarðar gefur út geisladisk
Útskriftarnemar
  á haustönn 2010 og vorönn 2011.
Nú er stundin runnin upp!
Hið árlega þjóðakvöld Kvennakórs Hornafjarðar framundan!!!
Kvennakór Hornafjarðar kynnir með stolti göngu sem helguð er rannsóknum á brjóstakrabbameini
Velheppnað þjóðarkvöld Kvennakórsins
      <description>Þjóðarkvöld kvennakórs Hornafjarðar var haldið  3. júlí sl. í Sindrabæ, fimmtudagskvöld fyrir Humarhátíð, 3ja árið í röð og var orðið uppselt tveim dögum fyrr. Má segja að þessi skemmtun sé komin til að vera og margir sem hafa á orði að humarhátíðin sé fyrst byrjuð þegar búið sé að fara á þjóðarkvöldið! Markmiðið með þjóðarkvöldunum er að skapa stemningu frá hverju landi fyrir sig með mat, drykk, skreytingum, búningum og skemmtiatriðum. Í fyrra var þýskt þema, enda kvennakórinn þá nýkominn frá Þýskalandi, og í fyrsta skiptið var spænskt kvöld.</description>
Fjöldi frægra gesta á þjóðarkvöldi Kvennakórsins
      <description>Eins og allir ættu að hafa orðið varir við hefur verið mikið að gera hjá kvennakórskonum undanfarna daga í að undirbúa komu frægra gesta til Hornafjarðar. Heyrst hefur að einkaþota John Travolta muni lenda á Hornafjarðarflugvelli kl 17 á fimmtudaginn. Þar af leiðandi verður mjög mikil öryggisgæsla á leiðinni frá flugvellinum að Hótel Höfn þar sem tekin hefur verið frá efsta hæðin undir hann og hans fylgdarlið. Þess vegna eru Hornfirðingar beðnir um að halda sig innandyra eða þá í hliðargötum á meðan bílalestin með Travolta og hans fólk fer framhjá. Sést hefur til Gísla á Hótelinu vera að æfa Travolta sporin og er það mál manna að þetta sé bara ansi gott hjá honum!</description>
Amerískt kvöld hjá Kvennakórnum
      <description>Þjóðakvöld Kvennakórs Hornafjarðar verður á sínum stað í Sindrabæ fimmtudaginn 3.júlí eða í byrjun Humarhátíðar. Að venju verður mögnuð skemmtidagskrá, hlaðborð og söngur svo fátt eitt sé nefnt. Þar sem 4.júlí, þjóðhátíðardagur BNA er daginn eftir fannst þeim kvennakórskonum tilvalið að vera með norður-amerískt þema í þetta sinn. Þær hafa lagt mikið upp úr því að finna allt sem amerískt er og búast má við ýmiskonar amerískum mat, drykk og hver veit nema Clinton láti sjá sig? A.m.k. hefur frést af þeim kvennakórskonum úti í Ameríku í samningaviðræðum við fallega og fræga fólkið! Einnig sást til þeirra Ernu og Ingibjargar þar sem þær laumuðust á miðilsfund. Hver veit hvað hefur komið út úr því?</description>
Velheppnað Landsmót kvennakóra hér á Höfn
      <description>Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum þegar Landsmót íslenskra kvennakóra var haldið hér á Höfn helgina 25. – 27. apríl, en rúmlega 330 konur heimsóttu okkur hingað.
Mótið gekk mjög vel,  öll skipulagning gekk upp og voru gestir okkar almennt mjög ánægðir með helgina. Vakti það athygli gestanna að heimamenn lögðust allir á eitt og hjálpuðust að, eitthvað sem ekki er sjálfgefið. Með dyggum stuðningi bæði maka og annara fjölskyldumeðlima, svo og þeirra sem unnu við mótið og allra styrktaraðila, héldu konurnar í Kvennakór Hornafjarðar eitt besta landsmót sem haldið hefur verið. Þetta var mjög góð kynning fyrir Hornafjörð og okkur öllum til sóma. Allur aðbúnaður gestanna var góður og maturinn þótti frábær, en hann kom frá Hótel Höfn. Það er ekki hægt að segja annað en að hornfirðingar kunna að taka móti gestum!  Makar kórkvenna slógu í gegn, en þeir unnu baki brotnu alla helgina og eiga stóran þátt í hversu vel tókst til. Þeir sáu um alla flutninga, settu upp svið, palla, gólf og allt slíkt. Þeir sáu um kaffið, þjónuðu til borðs, sáu um óvissuferðina og snerust í kringum konurnar alla helgina. Þær voru margar aðkomukonurnar sem renndu öfundarauga til hornfirsku kvennanna og eru þær stoltar af sínum mönnum. Björg Erlingsdóttir,  Menningarmiðstöðinni, tók að sér að vera mótsstjóri og var hennar hjálp ómetanleg.</description>
Landsmót kvennakóra hefst í dag 25. apríl.
      <description>Þá er komið að því, í dag, 25. apríl, koma hingað til okkar á Höfn um það bil þrjúhundruð og þrjátíu fljóð, frá 12 kvennakórum, sem dvelja hjá okkur fram á sunnudag.  Flestar koma þær seinnipartinn og byrja þær í Íþróttahúsinu. Mótið er formlega sett klukkan hálfátta og verður síðan haldið með allan hópinn í óvissuferð! Í fyrramálið hefjast stífar æfingar en þó er gert ráð fyrir frítíma hjá konunum til að skoða bæinn okkar. Á morgun, laugardaginn 26. apríl, verða tónleikar í Íþróttahúsinu kl. 16, þar flytja kórarnir sýnishorn af eigin dagskrá. 
Hópnum er skipt í fernt og æfir hver hópur ákveðin lög yfir helgina sem verða flutt á tónleikunum á sunnudaginn, sem eru kl. 14 í Íþróttahúsinu. Þá verða einnig flutt nokkur sameiginleg lög og Landsmótslagið frumflutt, en það samdi Þóra Marteinsdóttir við texta Guðbjarts Össurarsonar. Níu manna hljómsveit Jóhanns Moravek sér um undirspil.
Eru bæjarbúar hvattir til að taka þátt og koma á tónleika, en aðgangur á tónleikana er ókeypis.</description>
Mikið að gera hjá kvennakórskonum
      <description>Nú fer að líða að sjöunda Landsmóti íslenska kvennakóra , helgina 25. – 27.apríl,  þegar staðurinn fyllist af syngjandi kórkonum. Undibúningur er á fullu hjá kvennakórskonum og eru þær mjög þakklátar fyrir hvað allir virðast jákvæðir og spenntir fyrir þessum viðburði og tilbúnir að leggja sitt af mörkum á margan hátt.
Hér verða sem sagt tónleikar bæði laugardaginn 26. og sunnudaginn 27.apríl.Á laugardeginum flytur hver kór, lög af sinni dagskrá. Á sunnudeginum verður afrakstur vinnuhópana fluttur, þegar á fjórða hundrað konur syngja saman við undirleik stórhljómsveitar Jóhanns Morávek, sem stofnuð er fyrir þetta tækifæri.</description>
Humarskvísan og ný heimasíða Kvennakórsins!
      <description>Fyrsta kvenkyns humarmerkið "humarskvísan" hefur litið dagsins ljós og er þar með enn ein skvísan gengin til liðs við Kvennakór Hornafjarðar. Eru kvennakórskonur mjög stoltar af henni. Í tilefni af Landsmóti Kvennakóra hér á Hornafirði verður hún í landsmótsbúning og merki mótsins. Ryður hún eflaust braut fleiri humarstelpna á sínum vettvangi, en öll fyrri humarmerki eða "logó" eru oftast túlkuð karlkyns. Er vel við hæfi að hún komi fram á sjónarsviðið á sama tíma og ný heimasíða Kvennakórs Hornafjarðar opnar, hornafjordur.is/kvennakor. Á nýju heimasíðunni er efnisflokkurinn Landsmót 2008 og verður þar hægt að nálgast allar upplýsingar um mótið.</description>
      <alt>Humarskvísa</alt>
Landsmót Kvennakóra á Höfn í apríl
      <description>Landsmót íslenskra kvennakóra verður haldið hér á Höfn í apríl n.k. Er það haldið á 3.ára fresti og var síðast í Hafnarfirði. Það er mikill heiður fyrir  Kvennakórinn að fá að halda næsta mót og ætlum við að kappkosta að mótið verði sem glæsilegast  Einnig ætlum við að leggja mikla áherslu á að kynna sýsluna og bæinn okkar sem best og veita þeim rúmlega 300 konum og stjórnendum þeirra sem hingað koma ógleymanlega heimsókn. Og þá um leið að þetta landsmót verði samfélaginu hér öllu lyftistöng en tryggt verður að dagskráin gefi svigrúm til annars en að syngja.  Þessa helgi verða öll söfn opin og frítt inn, eins verður frítt í sund fyrir mótsgesti og verður sett upp atvinnu/mannlífssýning á vegum Menningarmiðstöðvarinnar í Nýheimum. Þetta mót er stærðar lyftistöng fyrir samfélagið okkar og má búast við því að gestir okkar setji svip á  bæinn þessa helgi.</description>
Menningarsjóður Hlaðvarpans styrkir Kvennakór Hornafjarðar
      <description>Í fyrsta sinn sem Menningarsjóður Hlaðvarpans úthlutar styrkjum eru veittir 19 styrkir að upphæð samtals 10 milljónir kr. til menningarmála kvenna. Kvennakór Hornafjarðar hlaut 400 þúsund króna styrk vegna landsmót íslenskra kvennakóra sem kvennakórinn heldur á Hornafirði í sumar. Alls bárust á sjötta tug umsókna og nam upphæðin sem sótt var um nærri 600 millj. kr. sem sýnir hve þörfin er gríðarleg og gróskan mikil.  Árið 1985 ákvað hópur kvenna að festa kaup á húsunum við Vesturgötu 3 í Reykjavík. Þau voru þá í nokkurri niðurníðslu og hætta á að þessi glæsilegu hús yrðu rifin. Ákveðið var að stofna hlutafélag og fékk það nafnið Hlaðvarpinn. Þar er skemmst frá að segja að smátt og smátt voru húsin gerð upp og þar blómstraði ýmis konar menningarstarfsemi um árabil. Þar var rekið leikhús, bæði í kjallara og sal, haldin fjöldi tónleika og funda.</description>
Jólatónleikar kvennakórs Hornafjarðar
      <description>Jólatónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða miðvikudaginn 5. desember kl 20 í Nýheimum á Höfn. Efnisskráin er fjölbreytt að vanda, rammíslensk jólalög í bland við erlenda smelli. Stjórnandi kórsins er Svavar Sigurðsson og píanóleikari er Jónína Einarsdóttir.  Að vanda er boðið upp á tertuhlaðborð þar sem borðin svigna undan hnallþórum og allskyns brauðréttum. Á liðnum árum hefur áhorfendafjöldi aukist svo að ljóst er að tónleikar kórsins skipa veglegan sess á aðventu bæjarbúa.  Á tónleikunum verða hljóðfæraleikarar og krakkar úr grunnskólanum sem syngja með kórnum.  Hægt verður að nálgast dagatölin vinsælu á tónleikunum þar sem þau verða til sölu við innganginn.</description>
Kvennakór Hornafjarðar hélt tónleika í Hamborg
      <description>Þann 12. júní sl. hélt kvennakór Hornafjarðar í ferðalag til Þýskalands. Flogið var til Kaupmannahafnar en þar beið rúta sem flutti kórkonur og þeirra fylgifiska til Soltau í norður Þýskalandi. Margt var bardúsað í þessari ferð eins og t.d. var farið í skemmtilegan garð þar sem fólk manaði hvert annað í að fara í rússíbana og fleiri tæki þar sem fólk snéri á hvolfi og fór alskonar slaufur og krúsídúllur. Var um það talað meðal þeirra sem ekki tóku þátt í þessum háskaferðum að það vantaði greinilega eitthvað í þetta fólk.</description>
Margt framundan hjá Kvennakór Hornafjarðar
      <description>Hinir árlegu vortónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða haldnir í Hafnarkirkju þann 20. maí kl 20:00.  Efnisskráin er að venju mjög fjölbreytt og er sungið á a.m.k. fimm tungumálum. Nokkrir efnilegir hljóðfæraleikarar munu leggja kórnum lið á tónleikunum. Kórinn mun síðan halda tónleika í Reykjavík nánar tiltekið í  Háteigskirkju þann 11. júní kl 20:00. Stjórnandi kórsins er hinn stórsnjalli Svavar Sigurðsson og undirleikari er hin undurfima Jónína Einarsdóttir (Ninna). Daginn eftir eða 12. júní  leggja svo kórkonur og makar þeirra af stað í viku  ferðalag til Þýskalands  þar sem nokkrir tónleikar verða haldnir ásamt því að kynnast menningu Þjóðverja. Það er vel við hæfi að fara í jafn glæsilegt ferðalag sem  þetta þar sem Kórinn fagnar 10 ára afmæli sínu á þessu ári.</description>
Kvennakórinn í Þórbergssetri
      <description>Kvennakór Hornafjarðar brá undir sig betri fætinum helgina 10-11. mars  og stormaði að Hala þar sem mikil vinna tók við. Kórinn var við æfingar laugardaginn allan og voru það Svavar stjórnandi kórsins, Jónína undirleikari og  Elísabet, pólskur raddþjálfari búsettur á Neskaupsstað sem sáu um að æfingar færu rétt fram. Æft var af kappi fram undir kvöld en þá stungu nokkrir kórmeðlimir sér í heitapottinn og létu líða úr sér.  Um kvöldið var svo veisla sem samanstóð af góðum íslenskum mat, Hala bleikju og fjallalambi. Eftir matinn var Þorbergssetrið svo skoðað hátt og lágt undir tryggri leiðsögn húsfreyjunnar Þorbjargar. Gengu kórkonur m.a. fram á gott strand og heyrðu vísnasöng að fornum sið. Á sunnudeginum  strax í bítið héldu svo æfingar  áfram og seinna um daginn sungum við svo nokkur lög fyrir gesti sem voru mættir að Hala.  Það er óhætt að segja að það var mikið hlegið þessa helgi ásamt því sem það var mikið sungið. Það var frábært að dvelja á Hala og mælum við eindregið með að dvelja þar við söngæfingar.</description>
Kvennakór Hornafjarðar 10 ára
      <description>Þann 9. september næstkomandi eru 10 ár frá því að Kvennakórinn var formlega stofnaður og mun verða haldið upp á það með margvíslegum hætti í ár. Laugardaginn 17. febrúar er árshátið Kvennakórsins á Hótel Höfn og verður mikið um dýrðir á afmælisárshátíðinni. Eru fyrrverandi kvennakórskonur hvattar til að koma með sína gesti og taka þátt í hátíðinni.  Margs er að minnast frá síðastliðnum 10 árum og verður horft yfir farinn veg og að venju mikið fjör. Hægt er að panta miða í síma 4781240, Hótel Höfn.  Farið verður í kórferðalag til Þýskalands í júní. Er undirbúningur fyrir þá ferð í fullum gangi. Meðal annars verður farið  til Hamborg og Lübeck. Kórstjórinn Svavar Sigurðsson lærði í Þýskalandi og á þýska konu, Silvia Hromadko. Verður farið í heimsókn í heimaþorp hennar, Verden, sem er rétt fyrir utan Hamborg.</description>
Jólatónleikar Kvennakórs Hornafjarðar
      <description>Næstkomandi miðvikudag 6. des. heldur Kvennakórinn sína árlegu jólatónleika. Tónleikarnir fara fram í Nýheimum. Að tónleikum loknum verður að venju boðið upp á kaffihlaðborð. Í Kvennakórnum eru um 30 virkir meðlimir. Svavar Sigurðsson frá Djúpavogi er stjórnandi kórsins og Jónína Einarsdóttir spilar undir. Á næsta ári verður kórinn verður 10 ára og því er stefnt að því að hafa næsta starfsár mun veglegra en venjulega. Að sögn Áslaugar Valsdóttur formanns kórsins þá stefna þær kvennakórskonur á utanlandsferð í júní á næsta ári en hvert verður farið er ekki endanlega ákveðið.</description>
Vel heppnaðir vortónleikar Kvennakórsins
      <description>Þrátt fyrir mjög gott veður á Höfn,  mætti fjöldi manns á vortónleika Kvennakórs Hornafjarðar sem fram fóru í Hafnarkirkju í gær. Tónleikarnir byrjuðu á því að kórkonur voru klappaðar upp og gengu þær inn í kirkjuna í nýjum glæsilegum búningi kórsins. Í ávarpi Áslaugar Valsdóttur formanns kórsins þá kom fram að þetta er níunda starfsár og hefur það einkennst að óvæntum breytingum m.a. að undirleikari kórsins til margra ára Jónína Einarsdóttir tók sér frí frá störfum og hélt til náms í Reykjavík. Um síðustu áramót lét svo stjórnandinn Sigjón Bjarnason af störfum fyrir aldurs- og heilsusakir. Nú voru góð ráð dýr og var leitað til nágranna sveitarfélagsins Djúpavogs til að finna undirleikara og síðan stjórnanda. Það reyndist vera sami maðurinn, Svavar Sigurðsson og stjórnaði hann kórnum í fyrsta sinn opinberlega á þessum vortónleikum.</description>
Vortónleikar Kvennakórs Hornafjarðar
      <description>Það er komið að því, vortónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða í dag laugardag í Hafnarkirkju. Á efnisskránni kennir ýmissa grasa t.a.m. Bítlarnir, miðaldatónlist, jass-standardar, íslensk sönglög, ABBA, Händel og fleira. Stjórnandi kórsins og undirleikari er Svavar Sigurðsson. Á morgun sunnudeg mun kórinn svo bregða sér á Djúpavog og halda tónleika í kirkjunni  Þess má geta að á laugardeginum mun Kvennakórinn koma fram í nýjum búningi kórsins, sem er hannaður og saumaður hér í heimabyggð, en það er Sigurborg Svavarsdóttir hjá Segl og Saum sem á heiðurinn af þeim saumaskap.</description>
Jólatónleikar Kvennakórsins í Nýheimum í kvöld
      <description>Kvennakórinn fær góða gesti á jólatónleika sína sem verða í Nýheimum í kvöld . Það eru þau Nanna Halldóra Imsland og Elvar Bragi Kristjónsson, auk Sr. Einars Jónssonar sem mun spila á píanóið meðan gestir gæða sér á kökum af hlaðborði. Stjórnandi kórsins verður sem fyrr Sigjón Bjarnason en nú verður í fyrsta skipti opinberlega með kórnum, undirleikarinn Svavar Sigurðsson frá Djúpavogi. Að sögn Áslaugar Valsdóttur formanns kórsins þá er mjög lífleg starfsemi í kórnum og m.a. þá stendur yfir fjáröflun til styrktar kórnum. Þar völdu kvennakórskonur þá fjáröflunarleið að gefa út mjög frumlegt dagatal þar sem kvennakórskonur eru myndefnið. Þeir sem vilja kaupa dagatalið og styrkja þá um leið kvennakórinn geta nálgast það á tónleikunum í kvöld eða  hjá kvennakórskonum. Það er einnig til sölu í Jaspís, Húsgagnaval og á Hótel Höfn.</description>
      <alt>Kvennakór</alt>
Starfsemi Kvennakórs Hornafjarðar hefst á ný
      <description>Nú þegar skólarnir eru byrjaðir og tilveran farin að færast í haustbúninginn byrja félagasamtök starfsemi sína eftir góða hvíld í sumar. Kvennakór Hornafjarðar byrjar sína starfsemi á aðalfundi sem haldinn verður n.k. föstudag. Síðasta vetur var mikill kraftur í starfsemi kórsins og hélt hann jólatónleika fyrir fullu húsi í Nýheimum, tónleika með hljómsveitinni Barducca í vor og fór á Kvennakóramót svo eitthvað sé nefnt. Um fjörutíu konur æfðu með kórnum í fyrra undir stjórn Sigjóns Bjarnasonar, og vonum við að enn fleiri verði með í vetur og eru allar konur sem áhuga hafa á söng og skemmtilegu félagsstarfi hjartanlega velkomnar. Æfingar eru öll miðvikudagskvöld frá kl. 20.15 til kl. 22.15 og einnig hafa raddirnar hist í 40.mín á laugardagsmorgnum.</description>
      <alt>Kvennakórinn</alt>
Hljómsveitin Barducha gestir Kvennakórsins í kvöld
      <description>Í kvöld heldur Kvennakór Hornafjarðar sína árlegu Vortónleika og fara þeir fram í Hafnarkirkju. Sérstakir gestir kórsins er hljómsveitin Barducha sem kemur af stór Reykjavíkursvæðinu. Hana skipa úrvals tónlistarmenn, sem eru Birgir Bragason á Kontrabassa, Hjörleifur Valsson á Fiðlu, Steingrímur Guðmundsson á Slagverk og Tatu Kamtomaa á Harmoníku. Þeir munu spila sína frábæru tónlist í upphafi tónleika og í hléi. Tónlist þeirra flokkast undir Balzamer tónlist sem er samblanda af, austur evrópskri, arabískri, sígauna og klezmer tónlist. Stjórnandi Kvennakórsins er Sigjón Bjarnason. Á efnisskránni er fjölbreytt úrval sönglaga bæði íslensk og erlend. Undirleikari kórsins er Jónína Einarsdóttir.</description>
      <alt>Kvennakórinn</alt>
Kvennakórinn á Landsmóti íslenskra kvennakóra
      <description>Föstudaginn 29. apríl s.l. hófst í Hafnarfirði 6. Landsmót íslenskra kvennakóra og voru mótshaldarar Kvennakór Hafnarfjarðar. Á mótið voru mættar um 400 söngelskar konur úr 15 kórum víðs vegar að af landinu, og þar voru að sjálfsögðu konur úr Kvennakór Hornafjarðar ásamt Sigjóni Bjarnasyni stjórnanda og Jónínu Einarsdóttur undirleikara. Dagskrá mótsins var þétt en hún hófst á föstudagskvöldinu með mótsetningu og síðan var haldið í óvissuferð. Snemma á laugardagsmorgni hófst svo af fullum krafti hópavinna, en kórunum var skipt upp í 4 hópa sem æfðu Jónasarlög, Íslenska söngdansa, Björgvinslög og kirkjuleg verk.  Kl. 16:00 á laugardag voru haldnir tónleikar í Víðistaðakirkju þar sem hver kór flutti tvö lög.</description>
      <alt>Kvennakór Hornafjarðar</alt>
Kvennakór Hornafjarðar mun taka þátt í humarhátíðarnefnd
      <description>Humarhátíðarnefnd hefur nú tekið til starfa og er hún skipuð félögum úr Björgunarsveitinni, Sindra og Kvennakór Hornafjarðar. Kvennakórinn er nú að taka þátt í humarhátíðarnefnd í fyrsta sinn. Hátíðin verður að venju haldin fyrstu helgina í júlí eins og verið  hefur síðustu ár og er það von nefndarmanna að sem flestir ef ekki allir sjái sér fært að vera heima þessa helgi og taka á móti sem flestum gestum,því eins og verið hefur undanfarin ár eru menn úr öllum landshornum farnir að setja Humarhátíð inná ferðadagatalið hjá sér. Nefndin vill einnig virkja sem flesta til að fá nýjar og ferskar hugmyndir um það sem ætti að vera í boði og eins koma með athugasemdir um það sem betur mætti fara.</description>
Duglegar kvennakórskonur að störfum
      <description>Þeir sem áttu leið um Hafnarbrautina fyrir framan Sparisjóð Hornafjarðar í morgun komust ekki hjá því að sjá þar konur sópa stéttina, reita arfa, skríða á fjórum fótum og hreinsa illgresi af mikilli nákvæmni sem hefur myndast á milli hellna frá því síðasta sumar. Ljúfir tónar Kvennakórs Hornafjarðar hljómuðu af geisladisk út um dyr Sparisjóðsins og ómaði söngurinn um nágrennið og veittum þeim aukin kraft við vinnuna. Þetta voru sem sagt kvennakórskonur að störfum en eins og flestum er kunnugt um þá er þeim engin takmörk sett í dugnaði. Þær hafa tekið að sér ýmis verk til fjáröflunar fyrir kórinn og var þetta eitt slíkt.</description>