Kvennakór Hornafjarðar

Vortónleikar Kvennakórs Hornafjarðar

06.05.2006

Korafing_hja_Altinni_003
Korafing_hja_Altinni_003
Kóræfing hjá Altinni

Það er komið að því, vortónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða í dag laugardag í Hafnarkirkju. Á efnisskránni kennir ýmissa grasa t.a.m. Bítlarnir, miðaldatónlist, jass-standardar, íslensk sönglög, ABBA, Händel og fleira. Stjórnandi kórsins og undirleikari er Svavar Sigurðsson. Á morgun sunnudeg mun kórinn svo bregða sér á Djúpavog og halda tónleika í kirkjunni Þess má geta að á laugardeginum mun Kvennakórinn koma fram í nýjum búningi kórsins, sem er hannaður og saumaður hér í heimabyggð, en það er Sigurborg Svavarsdóttir hjá Segl og Saum sem á heiðurinn af þeim saumaskap.


Tónleikarnir í Hafnarkirkju hefjast kl. 17:00. Tónleikarnir í Djúpavogskirkju hefjast einnig kl. 17:00.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica