Kvennakór Hornafjarðar
Jólatónleikar Kvennakórsins í Nýheimum í kvöld
Kvennakórinn fær góða gesti á jólatónleika sína sem verða í Nýheimum í kvöld . Það eru þau Nanna Halldóra Imsland og Elvar Bragi Kristjónsson, auk Sr. Einars Jónssonar sem mun spila á píanóið meðan gestir gæða sér á kökum af hlaðborði. Stjórnandi kórsins verður sem fyrr Sigjón Bjarnason en nú verður í fyrsta skipti opinberlega með kórnum, undirleikarinn Svavar Sigurðsson frá Djúpavogi. Að sögn Áslaugar Valsdóttur formanns kórsins þá er mjög lífleg starfsemi í kórnum og m.a. þá stendur yfir fjáröflun til styrktar kórnum. Þar völdu kvennakórskonur þá fjáröflunarleið að gefa út mjög frumlegt dagatal þar sem kvennakórskonur eru myndefnið. Þeir sem vilja kaupa dagatalið og styrkja þá um leið kvennakórinn geta nálgast það á tónleikunum í kvöld eða hjá kvennakórskonum. Það er einnig til sölu í Jaspís, Húsgagnaval og á Hótel Höfn.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er aðgangseyrir kr 1500



