Kvennakór Hornafjarðar

Kvennakórinn á Landsmóti íslenskra kvennakóra

06.05.2005

Kvennakór Hornafjarðar
Kvennakór Hornafjarðar
Kvennakór Hornafjarðar

Föstudaginn 29. apríl s.l. hófst í Hafnarfirði 6. Landsmót íslenskra kvennakóra og voru mótshaldarar Kvennakór Hafnarfjarðar. Á mótið voru mættar um 400 söngelskar konur úr 15 kórum víðs vegar að af landinu, og þar voru að sjálfsögðu konur úr Kvennakór Hornafjarðar ásamt Sigjóni Bjarnasyni stjórnanda og Jónínu Einarsdóttur undirleikara. Dagskrá mótsins var þétt en hún hófst á föstudagskvöldinu með mótsetningu og síðan var haldið í óvissuferð. Snemma á laugardagsmorgni hófst svo af fullum krafti hópavinna, en kórunum var skipt upp í 4 hópa sem æfðu Jónasarlög, Íslenska söngdansa, Björgvinslög og kirkjuleg verk. Kl. 16:00 á laugardag voru haldnir tónleikar í Víðistaðakirkju þar sem hver kór flutti tvö lög.


Undir lögum Kvennakórs Hornafjarðar lék Jónína Einarsdóttir og einnig hljómsveitin Barducha, en hún mun heimsækja okkur og spila undir á vortónleikunum þriðjudaginn 10. maí. Á sunnudagsmorgni var haldið áfram að æfa fyrir tónleika dagsins sem hófust kl. 14:00, en þar fluttu hóparnir lögin sín og að síðustu sungu allir kórarnir saman nokkur lög. Mótsslit voru kl. 16:30 og að þeim loknum var haldið heim á leið. Áformað er að halda næsta kvennakóramót hér á Hornafirði vorið 2008.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica