Kvennakór Hornafjarðar

Kvennakór Hornafjarðar mun taka þátt í humarhátíðarnefnd

11.03.2005

Stemning á Humarhátíð 2003
Stemning á Humarhátíð 2003
Stemning á Humarhátíð (úr myndasafni)

Humarhátíðarnefnd hefur nú tekið til starfa og er hún skipuð félögum úr Björgunarsveitinni, Sindra og Kvennakór Hornafjarðar. Kvennakórinn er nú að taka þátt í humarhátíðarnefnd í fyrsta sinn. Hátíðin verður að venju haldin fyrstu helgina í júlí eins og verið hefur síðustu ár og er það von nefndarmanna að sem flestir ef ekki allir sjái sér fært að vera heima þessa helgi og taka á móti sem flestum gestum,því eins og verið hefur undanfarin ár eru menn úr öllum landshornum farnir að setja Humarhátíð inná ferðadagatalið hjá sér. Nefndin vill einnig virkja sem flesta til að fá nýjar og ferskar hugmyndir um það sem ætti að vera í boði og eins koma með athugasemdir um það sem betur mætti fara.


Verum bjartsýn og tökum á móti sumri með sól í hjarta og þá munum við uppskera góða og gleðilega Humarhátíð.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica