Kvennakór Hornafjarðar
Kvennakórinn til Kaupmannahafnar
Kvennakór Hornafjarðar heldur á vit ævintýranna í lok þessa mánaðar. Það eru frændur okkar Danir sem verða þessa heiðurs aðnjótandi og mun kórinn halda tónleika í Jónshúsi í Kaupmannahöfn þriðjudaginn 27. apríl kl. 20:00. Ekki er nokkur vafi á að Kaupmannahafnarbúar muni taka vel á móti okkar fólki enda Hornfirðingar ákaflega vel kynntir í borginni við sundin. Til að hita sig upp fyrir Jónshús mun kórinn halda tónleika í Árbæjarkirkju 24. apríl kl. 16:00. Vortónleikar Kvennakór Hornafjarðar verða síðan í Hafnarkirkju í maí.
Miðvikudagskvöldið 21. apríl munu kvennakórskonur verða með opna æfingu í Nýheimum. Aðgangseyrir er kr. 500.- og rennur ágóðinn í flygilinn í Nýheimum.



