Kvennakór Hornafjarðar

Vor um Hornafjörð

03.05.2012

Kvennakór Hornafjarðar
Kvennakór Hornafjarðar

Vortónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða haldnir í Nýheimum í kvöld fimmtudaginn 3. maí kl 20:00. Stjórnandi kórsins er Heiðar Sigurðsson og undirleikari er Jónína Einarsdóttir. 

Á tónleikunum fáum við fleiri hljóðfæraleikara til liðs við okkur, Bragi Karlsson og Júlíus Sigfússon leika á trommur og bassa. Ásdís Pálsdóttir og Anna Soffía Ingólfsdóttir á trompet og þverflautu. Á tónleikunum verður kórinn á ljúfsárum og rómantískum nótum en slær líka á létta strengi. Aðgangseyrir á tónleikana er kr. 1500

Kvennakórinn lagði land undir fót í apríl. Farið var að Minniborgum í Grímsnesi þar sem kórinn hafði aðsetur yfir helgi. Á laugardeginum skelltum við okkur vestur yfir Hellisheiði og héldum tónleika í Árbæjarkirkju, tónleikarnir tókust í alla staði vel og voru vel sóttir. Þar skiptum við að hluta til hljóðfæraleikurum þau Sólveig Moràvek og Elvar Kristjónsson léku á þverflautu og trompet í stað Ásdísar og Önnu Soffíu.

Kvennakór Hornafjarðar var stofnaður 9. september 1997 en áður söng kórinn í eitt ár undir nafni Leikfélags Hornafjarðar. Kórinn hefur starfað af fullum krafti öll þessi ár. Fjöldi kórfélaga í gegnum árin hefur verið á bilinu 20 - 45. Lagaval hefur verið mjög fjölbreytt og einkennst af léttleika og áskorunum. Stærsta verkefni kórsins er vafalítið sjöunda landsmót íslenskra kvennakóra sem haldið var á Höfn í apríl 2008.  Undirbúningur mótsins krafist mikillar vinnu og skipulagningar. Á það mót komu um 350 konur.  Kóramótið var mikil viðburður hér á Höfn í Hornafirði.  Kórkonur stóðu þétt saman, ásamt mökum sínum, í að gera mótið sem eftirminnilegast.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica