Kvennakór Hornafjarðar
Kvennakór Hornafjarðar gefur út geisladisk
Jóladiskur Kvennakórs Hornafjarðar er kominn út. Á disknum eru tíu jólalög úr ýmsum áttum.
Titillag disksins er Jólalogi, eftir Heiðar Sigurðsson stjórnanda kórsins við texta Kristínar Jónsdóttur skáldkonu á Hlíð. Einnig er þar að finna lag Sigjóns Bjarnasonar á Brekkubæ Með ljúfum klukknaklið við texta Guðbjarts Össurarsonar. Það lag hefur verið á efnisskránni hjá kórnum fyrir hver jól frá því Sigjón var stjórnandi kórsins. Píanó og orgelleik á disknum annast Jónína Einarsdóttir en annar undirleikur er í höndum Heiðars. Auk þessara hornfirsku laga eru á disknum meðal annars lögin Nóttin var sú ágæt ein, Yfir fannhvíta jörð og Hvít jól
Diskurinn kostar 2500 kr og er til sölu hjá kvennakórskonum.



