Kvennakór Hornafjarðar

Kvennakór Hornafjarðar kynnir með stolti göngu sem helguð er rannsóknum á brjóstakrabbameini

Við göngum svo léttar í lundu. . .

29.09.2008

Hafnarkirkja böðuð bleiku ljósi
Hafnarkirkja böðuð bleiku ljósi
Bleiki liturinn er tákn þessa átaks og eru ýmsar merkar byggingar víða um land baðaðar bleikum ljósum þar á meðal Hafnarkirkja.

Þann 5. oktober n.k. stendur Kvennakór Hornafjarðar fyrir gönguferð til styrktar rannsóknar á brjóstakrabbameini. Boðið verður upp á 3 vegalengdir og það eiga allir að geta verið með, ungir sem aldnir, jafnt konur sem karlar, börn og unglingar. Þrjár frískar konur leiða gönguhópana fyrir okkur og er ætlunin að hafa þetta létta og skemmtilega göngu.
Mæting verður út á okkar glæsilega íþróttavöll kl 12 og verður tekin létt upphitun þaðan munu síðan göngurnar fara.
Boðið verður upp á heitt kakó eftir gönguna við sundlaugina og svo fá allir göngugarpar frítt í sund.

Skráningargjald er 1000 kr. yrir 12 ára og eldri. Allur ágóði rennur beint til þessa góða og þarfa málefnis. Einnig verður tekið við frjálsum framlögum. Skráning verður á staðnum.

Hlökkum til að sjá ykkur öll!
Kvennakór Hornafjarðar.


Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica