Kvennakór Hornafjarðar

Elvis Presley

Velheppnað þjóðarkvöld Kvennakórsins - 08.07.2008 Kvennakór Hornafjarðar

Þjóðarkvöld kvennakórs Hornafjarðar var haldið 3. júlí sl. í Sindrabæ, fimmtudagskvöld fyrir Humarhátíð, 3ja árið í röð og var orðið uppselt tveim dögum fyrr. Má segja að þessi skemmtun sé komin til að vera og margir sem hafa á orði að humarhátíðin sé fyrst byrjuð þegar búið sé að fara á þjóðarkvöldið! Markmiðið með þjóðarkvöldunum er að skapa stemningu frá hverju landi fyrir sig með mat, drykk, skreytingum, búningum og skemmtiatriðum. Í fyrra var þýskt þema, enda kvennakórinn þá nýkominn frá Þýskalandi, og í fyrsta skiptið var spænskt kvöld. Lesa meira
 
Gísli Disco Fever

Fjöldi frægra gesta á þjóðarkvöldi Kvennakórsins - 01.07.2008 Kvennakór Hornafjarðar

Eins og allir ættu að hafa orðið varir við hefur verið mikið að gera hjá kvennakórskonum undanfarna daga í að undirbúa komu frægra gesta til Hornafjarðar. Heyrst hefur að einkaþota John Travolta muni lenda á Hornafjarðarflugvelli kl 17 á fimmtudaginn. Þar af leiðandi verður mjög mikil öryggisgæsla á leiðinni frá flugvellinum að Hótel Höfn þar sem tekin hefur verið frá efsta hæðin undir hann og hans fylgdarlið. Þess vegna eru Hornfirðingar beðnir um að halda sig innandyra eða þá í hliðargötum á meðan bílalestin með Travolta og hans fólk fer framhjá. Sést hefur til Gísla á Hótelinu vera að æfa Travolta sporin og er það mál manna að þetta sé bara ansi gott hjá honum! Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica