Kvennakór Hornafjarðar

Amerískt kvöld hjá Kvennakórnum

26.06.2008

Amerískt kvöld Kvennakórsins
Amerískt kvöld Kvennakórsins
Amerískt kvöld Kvennakórsins

Þjóðakvöld Kvennakórs Hornafjarðar verður á sínum stað í Sindrabæ fimmtudaginn 3.júlí eða í byrjun Humarhátíðar. Að venju verður mögnuð skemmtidagskrá, hlaðborð og söngur svo fátt eitt sé nefnt. Þar sem 4.júlí, þjóðhátíðardagur BNA er daginn eftir fannst þeim kvennakórskonum tilvalið að vera með norður-amerískt þema í þetta sinn. Þær hafa lagt mikið upp úr því að finna allt sem amerískt er og búast má við ýmiskonar amerískum mat, drykk og hver veit nema Clinton láti sjá sig? A.m.k. hefur frést af þeim kvennakórskonum úti í Ameríku í samningaviðræðum við fallega og fræga fólkið! Einnig sást til þeirra Ernu og Ingibjargar þar sem þær laumuðust á miðilsfund. Hver veit hvað hefur komið út úr því? Fimmtudagskvöldið 3.júlí má því búast við frábærri skemmtun sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Húsið opnar kl. 19:30 og miðaverð er aðeins kr. 3.000.-

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica