Kvennakór Hornafjarðar
Velheppnað Landsmót kvennakóra hér á Höfn
Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum þegar Landsmót íslenskra kvennakóra var haldið hér á Höfn helgina 25. - 27. apríl, en rúmlega 330 konur heimsóttu okkur hingað.
Mótið gekk mjög vel, öll skipulagning gekk upp og voru gestir okkar almennt mjög ánægðir með helgina. Vakti það athygli gestanna að heimamenn lögðust allir á eitt og hjálpuðust að, eitthvað sem ekki er sjálfgefið. Með dyggum stuðningi bæði maka og annara fjölskyldumeðlima, svo og þeirra sem unnu við mótið og allra styrktaraðila, héldu konurnar í Kvennakór Hornafjarðar eitt besta landsmót sem haldið hefur verið. Þetta var mjög góð kynning fyrir Hornafjörð og okkur öllum til sóma. Allur aðbúnaður gestanna var góður og maturinn þótti frábær, en hann kom frá Hótel Höfn. Það er ekki hægt að segja annað en að hornfirðingar kunna að taka móti gestum! Makar kórkvenna slógu í gegn, en þeir unnu baki brotnu alla helgina og eiga stóran þátt í hversu vel tókst til. Þeir sáu um alla flutninga, settu upp svið, palla, gólf og allt slíkt. Þeir sáu um kaffið, þjónuðu til borðs, sáu um óvissuferðina og snerust í kringum konurnar alla helgina. Þær voru margar aðkomukonurnar sem renndu öfundarauga til hornfirsku kvennanna og eru þær stoltar af sínum mönnum. Björg Erlingsdóttir, Menningarmiðstöðinni, tók að sér að vera mótsstjóri og var hennar hjálp ómetanleg.
Óvissuferðin í Geitafell á föstudagskvöldinu vakti mikla lukku og var hjá mörgum hápunktur ferðarinnar. Lýstu margar konur því að þegar Karlakórinn Jökull kom syngjandi yfir ásinn inn í Geitafell hefðu þær aldrei upplifað annað eins! Tónleikarnir á laugardeginum voru mjög skemmtilegir þegar hver kór flutti sýnishorn af sinni dagskrá, 2-3 lög, og alltaf gaman að heyra hvað aðrir kórar eru að gera!
Hátíðardagskráin á laugardagskvöldinu var líka mörgum eftirminnileg. Þar tóku okkar kórkonur á móti gestum sínum, í fagurskreyttan salinn í íþróttahúsinu, íklæddar indverskum sarí. Um veislustjórn sá Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri sem leystist honum vel úr hendi og höfum við uppgötvað nýja hlið á bæjarstjóranum. Öll skemmtiatriðin voru "heimatilbúin" og slógu í gegn, eins þótti hljómsveitin, KUSK, frábær - og þá sérstaklega söngvarinn, Stjáni Hauks, sem féll vel í kramið hjá konunum!
Hápunktur helgarinnar var að sjálfsögðu sameiginlegu tónleikarnir á sunnudeginum, þegar 360 konur sungu saman nokkur lög, þar á meðal landsmótslagið, og vinnuhóparnir fluttu afrakstur helgarinnar.
Var mikil ánægja með hópavinnuna, skemmtileg þemu og frábærir stjórnendur. Á þessu landsmóti var bryddað upp á þeirri nýjung að hver kona gat valið sér hóp persónulega, óháð kórnum sem hún er í, og leiddi þetta til þess að kórarnir blönduðust og konum gafst tækifæri á að kynnast betur. Verður þetta eflaust til eftirbreytni.
Er haft eftir væntanlegum landsmótshöldurum að það verði ekki auðvelt að fylgja á eftir þessu móti og að ekki sé hægt að "toppa" þetta! En það er víst að kvennakórskonum er strax farið að hlakka til næsta Landsmóts sem verður á Selfossi árið 2011.
Langar konunum í Kvennakór Hornafjarðar að koma á framfæri ítrekuðum þökkum til allra sem lögðu hönd á plóg og til allra styrktaraðila, en listi yfir þá er í mótskránni sem er á heimasíðu Kvennakórs Hornafjarðar.



