Kvennakór Hornafjarðar

Humarskvísa

Humarskvísan og ný heimasíða Kvennakórsins! - 15.02.2008 Kvennakór Hornafjarðar

Fyrsta kvenkyns humarmerkið "humarskvísan" hefur litið dagsins ljós og er þar með enn ein skvísan gengin til liðs við Kvennakór Hornafjarðar. Eru kvennakórskonur mjög stoltar af henni. Í tilefni af Landsmóti Kvennakóra hér á Hornafirði verður hún í landsmótsbúning og merki mótsins. Ryður hún eflaust braut fleiri humarstelpna á sínum vettvangi, en öll fyrri humarmerki eða "logó" eru oftast túlkuð karlkyns. Er vel við hæfi að hún komi fram á sjónarsviðið á sama tíma og ný heimasíða Kvennakórs Hornafjarðar opnar, hornafjordur.is/kvennakor. Á nýju heimasíðunni er efnisflokkurinn Landsmót 2008 og verður þar hægt að nálgast allar upplýsingar um mótið. Lesa meira
 
Kvennakórinn á landsmóti 2005

Landsmót Kvennakóra á Höfn í apríl - 06.02.2008 Febrúar

Landsmót íslenskra kvennakóra verður haldið hér á Höfn í apríl n.k. Er það haldið á 3.ára fresti og var síðast í Hafnarfirði. Það er mikill heiður fyrir Kvennakórinn að fá að halda næsta mót og ætlum við að kappkosta að mótið verði sem glæsilegast Einnig ætlum við að leggja mikla áherslu á að kynna sýsluna og bæinn okkar sem best og veita þeim rúmlega 300 konum og stjórnendum þeirra sem hingað koma ógleymanlega heimsókn. Og þá um leið að þetta landsmót verði samfélaginu hér öllu lyftistöng en tryggt verður að dagskráin gefi svigrúm til annars en að syngja. Þessa helgi verða öll söfn opin og frítt inn, eins verður frítt í sund fyrir mótsgesti og verður sett upp atvinnu/mannlífssýning á vegum Menningarmiðstöðvarinnar í Nýheimum. Þetta mót er stærðar lyftistöng fyrir samfélagið okkar og má búast við því að gestir okkar setji svip á bæinn þessa helgi. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica