Kvennakór Hornafjarðar

Kvennakórinn í Þórbergssetri

02.04.2007

Kvennakórskonur á Hala
Kvennakórskonur á Hala
Á Hala er mjög notalegt að fara í heita pottin og að sjálfsögðu nýttu kvennakórskonur sér það þegar þær héldu æfingarbúðir þar. (@EÞ)
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Kvennakór Hornafjarðar brá undir sig betri fætinum helgina 10-11. mars og stormaði að Hala þar sem mikil vinna tók við. Kórinn var við æfingar laugardaginn allan og voru það Svavar stjórnandi kórsins, Jónína undirleikari og Elísabet, pólskur raddþjálfari búsettur á Neskaupsstað sem sáu um að æfingar færu rétt fram. Æft var af kappi fram undir kvöld en þá stungu nokkrir kórmeðlimir sér í heitapottinn og létu líða úr sér. Um kvöldið var svo veisla sem samanstóð af góðum íslenskum mat, Hala bleikju og fjallalambi. Eftir matinn var Þorbergssetrið svo skoðað hátt og lágt undir tryggri leiðsögn húsfreyjunnar Þorbjargar. Gengu kórkonur m.a. fram á gott strand og heyrðu vísnasöng að fornum sið. Á sunnudeginum strax í bítið héldu svo æfingar áfram og seinna um daginn sungum við svo nokkur lög fyrir gesti sem voru mættir að Hala. Það er óhætt að segja að það var mikið hlegið þessa helgi ásamt því sem það var mikið sungið. Það var frábært að dvelja á Hala og mælum við eindregið með að dvelja þar við söngæfingar.

Þórbergssetur setur meiri og meiri svip á þá menningarstarfsemi sem er í Sveitarfélaginu Hornafirði, þar er boðið upp á fjölbreytta dagskrá um helgar og alla aðstöðu til helgardvalar. Þar er kjörið svæði fyrir þá sem vilja njóta góðra gönguferða og útivistar eins er góð aðstaða til söngæfinga t.d. fyrir kóra og píanó er þar til staðar. Þorbjörg sagði að ánægjulegt að hafa kvennakórinn um helgina og þar flutti Soffía Auður skemmtilegt bókmenntaspjall og heimamenn á Hala voru með myndasýningu úr Suðursveit þar sem ferðast var á milli nokkurra eyðibýla og skyggnst um söguna. Myndirnar voru allar vetrarmyndir og sýndu svo ekki var um villst hve gaman getur verið að ferðast og njóta útiveru að vetrarlagi. Einnig voru spilaðar upptökur þar sem Steinþór á Hala sagði sögur .Hann vitnaði m.a. í fróðleik sem hann hafði eftir Oddnýju á Gerði. Oddný var fædd árið 1821 og þeir bræður Steinþór og Þórbergur vitnuðu mjög oft í sögur hennar og sagnasnilld. Telja má sérstakt að geta nú á árinu 2007 vitnað í munnlega geymd frá fyrri hluta 19 aldar með þessum hætti og það er þakkarvert hversu iðinn Hallfreður Örn Eiríksson var að fara um héraðið, taka viðtöl og safna sögum frá liðinni tíð. Þórbergssetur er tiltölulega miðsvæðis í Sveitarfélaginu og því tilvalið að líta þar við þegar farið er í helgarbíltúrinn.

F.h. Kvennakórs Hornafjarðar sendir Ragnheiður Rafnsdóttir kveðjur í Þórbergssetur og segir ,,Takk fyrir okkur´´.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica