Kvennakór Hornafjarðar

Jólatónleikar Kvennakórs Hornafjarðar

01.12.2006

Kvennakór Hornafjarðar á Vortónleikum 2006
Kvennakór Hornafjarðar á Vortónleikum 2006
Kvennakór Hornafjarðar á Vortónleikum í Hafnarkirkju 6.maí 2006. (myndasafn)

Næstkomandi miðvikudag 6. des. heldur Kvennakórinn sína árlegu jólatónleika. Tónleikarnir fara fram í Nýheimum. Að tónleikum loknum verður að venju boðið upp á kaffihlaðborð. Í Kvennakórnum eru um 30 virkir meðlimir. Svavar Sigurðsson frá Djúpavogi er stjórnandi kórsins og Jónína Einarsdóttir spilar undir. Á næsta ári verður kórinn verður 10 ára og því er stefnt að því að hafa næsta starfsár mun veglegra en venjulega. Að sögn Áslaugar Valsdóttur formanns kórsins þá stefna þær kvennakórskonur á utanlandsferð í júní á næsta ári en hvert verður farið er ekki endanlega ákveðið.

Tónleikarnir í Nýheimum á miðvikudag hefjast kl. 20

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica