Kvennakór Hornafjarðar
Starfsemi Kvennakórs Hornafjarðar hefst á ný
Nú þegar skólarnir eru byrjaðir og tilveran farin að færast í haustbúninginn byrja félagasamtök starfsemi sína eftir góða hvíld í sumar. Kvennakór Hornafjarðar byrjar sína starfsemi á aðalfundi sem haldinn verður n.k. föstudag. Síðasta vetur var mikill kraftur í starfsemi kórsins og hélt hann jólatónleika fyrir fullu húsi í Nýheimum, tónleika með hljómsveitinni Barducca í vor og fór á Kvennakóramót svo eitthvað sé nefnt. Um fjörutíu konur æfðu með kórnum í fyrra undir stjórn Sigjóns Bjarnasonar, og vonum við að enn fleiri verði með í vetur og eru allar konur sem áhuga hafa á söng og skemmtilegu félagsstarfi hjartanlega velkomnar. Æfingar eru öll miðvikudagskvöld frá kl. 20.15 til kl. 22.15 og einnig hafa raddirnar hist í 40. mín á laugardagsmorgnum.
Ráðgert er að skreppa í tónleikaferð á Vopnafjörð nú í haust, taka með okkur eiginmenn og hafa gaman eina helgi. Þær sem hug hafa á að vera með geta hringt í Ernu í síma 478 1093, Ingibjörgu 489 1514 eða Ingu Kristínu í síma 478 1347.



