Að afloknum sveitarstjórnarkosningum 2010
Eftir afdrifaríkan kosningadag þá liggja lokatölur fyrir. Á kjörskrá í Sveitarfélaginu Hornafirði voru 1530 manns og kusu 1260 sem er 82,35% kosningaþátttaka. Auðir og ógildir seðlar vour 55 talsins og því 1205 gildir kjörseðlar eða 78.76%. Kjörsókn var best í Suðursveit, 91.67%, en slökust í Lóni, 78.26%.
Framsókn vann afburðasigur í kosningunum með 588 atkvæði eða 48.8% fylgi, D- listinn fékk 371 (30.79%), S listinn 179 (14.85%) og V listinn 67 (5,56%) atkvæði.
Útstrikanir voru samtals 93 og skiptust þannig: B listi: 10, D listi: 54, S listi: 20 og V listi: 9.
Bæjarfulltrúar á n.k. kjörtímabili verða því:
1. Reynir Arnarsson (B)
2. Björn Ingi Jónsson (D)
3. Ásgerður K. Gylfadóttir (B)
4. Kristján Sigurður Guðnason (B)
5. Guðrún Ása Jóhannsdóttir (D)
8. Árni Rúnar Þorvaldsson (S)
9. Ásgrímur Ingólfsson (B)



