Jólagestir
Svava og fjölskylda
Svava og fjölskylda

23.12.2010 Jólagestir

Ég er mikið jólabarn

Jólagestur okkar 23. des. er Svava Bjarnadóttir

 

Um þessi jól erum við svo heppin að hafa 50%  af börnunum okkar hérna hjá okkur í dk og er það alltaf mikil tilhlökkun. Síðustu ár höfum við Siggi skroppið til Lubeck sem er í sirka 2ja tíma keyrslufæri héðan. Þeir í Lubeck eru frægir fyrir jólamarkaðinn sem breytir borginni í sannkallað jólaþorp frá því um miðjan nóvember og fram að jólum. Ævintýralegt hvað þjóðverjar eru flinkir að setja upp þessa markaði sína. Í ár breyttum við svo aðeins til og fórum til Flensborgar og tókum krakkahópinn með okkur. Fimbulkuldi en stillt veður og allir kátir og í sannkölluðu jólaskapi. Þetta er orðinn fastur punktur í jólahaldinu hjá okkur.

Skraut

Ég er mikið jólabarn og klæjar yfirleitt í fingurna rétt fyrir fyrsta sunnudag í aðventu en þá eru kassarnir komnir upp úr kjallaranum tími til að skreyta húsið hátt og lágt. Heilsárs puntinu pakkað niður og jólaskrautið sett á sinn stað. Ég var nú komin í straff í kaupum á svoleiðis hlutum en fékk undanþágu einn daginn og  keypti mér kúlur sem ég er búin að horfa á með glit í augum síðustu þrjú árin en akkurat þegar ég gekk framhjá þeim í búðinni þá var viti menn kominn afsláttur alveg helmingurinn af svo að ég tók þrjár með mér heim og Siggi minn auðvitað settur í hlutverk og kom skrautinu fyrir þar sem það átti heima. Það er sem sagt búið að skreyta allt nema jólatréð hjá okkur í byrjun desember. Daninn hefur þann háttinn á að setja jólatréð í garðskálann eða á svalirnar  (þeir sem eru með svoleiðis) og seríuna á og svo er tréð tekið inn nokkrum dögum fyrir jól og það skreytt. Á móti kemur að strax annan jóladag er öllu skrauti pakkað saman, trénu hent út og nýjársskrautinu komið fyrir. Það er eitthvað sem að ég bara hef ekki í mér og það er að setja upp nýjársskraut. Nágranninn er heldur ekki alveg að skilja af hverju við erum með heila gallerýið hangandi langt fram í janúar. Nágranninn hefur vel auga með sínum og eitt árið vorum við með ljótasta jólatré allra tíma og fengum líka að heyra það hvað jólatréð okkar væri ljótt en í landi jólatrjánna þá er bannað að vera með plastik tré.

Matur.

Ég er oft spurð um það hvað við höfum á borðum á jólum. Í mörg ár var ég alltaf með tvíréttað þ.e. rjúpur og bleikt jólakjöt fyrir krakkana“ (Hamborgarhryggur). Nú er reyndar ennþá bleikt jólakjöt á boðstólnum sem að sótt er til Þýskalands ásamt Berberry önd. Í Þýskalandi getur maður fengið hamborgarhrygginn með beini og fitu eins og á Íslandi. Hryggurinn er eldaður að hætti íslendinga og gljáður með púðursykri og öndina höfum við haft í appelsínusósu. Sama meðlætið notum við svo með þessu og uppáhaldið hjá unga fólkinu er Waldorfsalatið hans Sigga sem ég læt fylgja með. Forrétturinn kemur frá Íslandi og dýrindis lax sem reyktur er í Reykofninum í Kópavogi og með honum er sósan af hælinu eins og hún heitir. Svo er jólahrísgrjónagrautur í eftirrétt með heitri kirsuberjasósu og jólaísinn hennar Júllu.  Stundum held á að Danir trúi því að við séum enn að éta skinnskóna“. Það má nú alveg fylgja með að ég var spurð að því í skólanum fyrir nokkrum árum hvort það væri internet á Íslandi. En við erum nú löngu komin út úr torfkofunum og á mörgum sviðum komnir fram úr Dönum hvað varðar tækni og nýjungar.

Ólíkt því á Íslandi þá er búið að vera mjög kalt og mikil snjókoma hérna hjá okkur og elsti sonurinn alveg í skýjunum með allan þennan snjó. Ég vil hafa snjó á Þorláksmessu og yfir hátíðina en svo má hann alveg bráðna í burtu.

Ykkur öllum í ríki Vatnajökuls hvar sem þið eruð stödd í veröldinni vil ég óska góðra og gleðilegra jóla og vona að árið 2011 verði ykkur gott og heilsuríkt. Bestu jólakveðjur frá Svenstrup/Nordborg  Svava Bjarna

 

Valdorfsalat fyrir 6 manns.

 Vænn klasi blá vínber skorin í helminga og steinhreinsuð

4 stk.Epli flysjuð og skorin í teninga

100gr. Heslihnetur smátt saxaðar geymið smá til að drussa yfir til skreytingar  2.dl.Sýrður rjómi 1.dl.rjómi þeyttur.

Sumir setja blaðsellery útí en við sleppum því.

Rjóminn er þeyttur og drýgður með sýrða rjómanum. Magn eftir smekk.

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica