Jólagestir
Arnbjörg Sveinsdóttir
Arnbjörg Sveinsdóttir
Jólagestur

20.12.2010 Jólagestir

Haustið 1976 og jólin að koma

Jólagestur okkar 21.desember er Arnbjörg Sveinsdóttir

Það var fyrir 30 árum, mikið stóð til, flutningur í nýtt hús að Hæðargarði 14 fyrsta og eina húsið sem við byggðum frá grunni. Þó nokkuð var eftir, engin eldavél , ekkert á baðinu, allt ómálað, bóndinn norður í Skagafirði í vinnu ,konan í þremur vinnum, en þetta reddast hugsaði konan. Svo var byrjað að mála, fyrst að grunna veggi og gólf. Þetta var óskaplega gaman en allt næturvinna stundum var konan framlág á morgnana en áfram skyldi haldið það voru að koma jól eftir rúman mánuð. Konan var búin að sauma gardínur fyrir alla glugga í húsinu ekki stress út af því. Enn það var ekki bara þetta nýja hús sem konan var með áhyggjur af heldur voru nú fjögur börn 8 til 17 ára í skóla, þau gengu að mestu sjálfala en fengu að borða góðan mat á kvöldin í Árnanesi , en þar áttum við heima í 6 ár. Það var yndislegur tími hjá fólkinu öllu í Árnanesi.

Málningin mjakaðist hægt og rólega á veggi og gólf. Mikið verður gott þegar bóndinn kemur heim, helmings léttir hugsið ykkur bara. En svo átti ekki að fara því bóndinn fékk brjósklos í hálslið og þurfti að fara í stóraðgerð á Borgarspítalanum. það hefði svo sem verið í lagi ef ekki hefði hlaupið ígerð í allt saman og mátti ekki á milli sjá hvor megin línu hann mundi lenda, þetta var erfitt . Enga vorkunnsemi haldið skyldi áfram og það var málað og málað og fékk konan góða hjálp frá Grétu og Stebba í Hornabæ og mikið var oft hlegið. Stína og Steini í Bjarnanesi fluttu svo allt innbúið í nýja húsið og eldað var í þvottahúsinu á gastæki . Eldhúsinnréttingin skildi koma 9.des. og tæki 2 daga að setja hana upp, baðherbergistólin voru á leiðinni frá Sauðárkróki , þau komu í byrjun desember og mikið afskaplega voru þau falleg dökkbrún og glansandi, þvílíkt flott og tískuliturinn á þessu ári 1976.
Bóndanum batnaði smásaman en afar hægt. Nú svo kom innréttingin í eldhúsið og maður með frá Reykjavík, Þór heitir hann, og hún upp á tæpum 3 dögum, orginal bæsuð eik með glervíravirki í efri skáphurðunum. Nú leið tíminn hratt hann eiginlega flaug áfram og það þurfti að þrífa eftir blessaðann karlinn hann Þór. Nú var komið að bakstrinum 24-30 sortir yfirleitt tvöfaldaðar uppskriftirnar, þær þurftu að fara á ýmsa bæi en nóg um það, löngu hætt svona kjánagangi.

Nú var óskaplega gaman allt gekk svo vel, bóndinn kominn heim en bágt átti hann með hendur sínar að mega ekki setja panel í stofuloftið ( hann gerði það eftir áramótin). Börnin voru afskaplega ánægð með sitt, allt var að ganga upp, jólatréð komið í garðinn bara eftir að setja það upp á aðfangadag, börnin og bóndinn sáu um það. Konan búin að baka og þrífa, sauma það sem þurfti og skreyta alla glugga með jólaljósum. þetta var sannkallað jólahús gleðin ríkti bæði úti og inni, Þorláksmessa, hangikjötið soðið og komið í kælingu, rauðkálið og baunalyktin angaði út um allt hús það tilheyrði jólunum og ávaxtagrauturinn tilbúinn fyrir jóladaginn. Svo var að undirbúa blessaðar rjúpurnar , þvílíkar krásir fylltar með eplum og sveskjum fum-fum.

Aðfangadagur runninn upp allt farið að krauma, nú gátu blessuð jólin komið, börnin komin í jólafötin, pabbi kominn í sín, glæsilegur pabbi. Þá var það steinuppgefin mamma sem átti eftir að klæðast sínu skarti sjálfum íslenska búningnum og það tókst. Þegar dómkirkjuklukkurnar hringdu inn jólin gekk elsta barnið um húsið og kveikti á kertunum og þau voru ekki fá. Svo var sest að snæðingi börnin ógurlega spennt það var svo mikið af jólapökkum undir jólatrénu, það þurfti bara að borða jólamatinn, þvo upp og ganga frá. Það var ekki besta biðin þó bóndinn og konan drifu sig eins og hægt var. Tertan var tilbilbúin með kakóinu um kvöldið og allar þessar glæsilegu kökur, þvílíkt og annað eins.

Uppþvotturinn var búinn nú settu allir sig í stellingar og litli stubbur 8 ára fékk að lesa á pakkana. Mamma settist í besta stólinn í stofunni, það var svona stóll til að halla aftur,þá skildi byrjað að útbýta öllum þessum pökkum, mamma átti að fá fyrsta pakkann en hvað var þetta, augun á mömmu voru harðlokuð alveg sama hvað sagt var hún sagði alltaf já. Hún var búin að skila sínu og nú hvarf hún á vit minninga, minninga heima hjá pabba og mömmu. Mamman vaknaði ekki fyrr en kl. 2 e.h. á jóladag tilbúin fyrir jóladaginn í íslenska búningnum því mömmu var leyft að sofa í honum í besta stólnum með sæng og kodda, það var ekki hægt annað. Svona á enginn að keyra sig áfram það er óhollt fyrir alla.

Gleðileg jól 2010, gæfan fylgi okkur öllum inn í nýja tíma og betri.
Arnbjörg Sveinsdóttir.


Ómissandi jólakaka:
Hunangskaka (rúlluterta)
Ca 5 msk sýróp
2 msk. sykur
125 gr hveiti (1 bolli)
2 egg
1 tesk natron
1 tesk. kanill
1 tesk . engifer
1 msk. súrmjólk.
Sykur , sýróp og þeytt vel saman, þurrefnum blandað í síðast ásamt súrmjólkinni.
Bökuð í ofnskúffu með bökunarpappír í.
Kakan látin kólna alveg , smurð með smjörkremi, rúlluð upp og borðuð með bestu list
Smjörkrem.
100 gr. flórsykur
1 eggjarauða
50 gr smjörlíki
Þeytt saman.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica