Jólagestir
Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir með fjölskyldunni
Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir með fjölskyldunni
Júlíus, Sveinn, Maren, Jón Páll og Emilía Dís (tekið á skírnardaginn hennar 19.06.2010)

19.12.2010 Jólagestir

Það var mikið bakað fyrir jólin

 

Ég hlakka alltaf mikið til að byrja á jólaundirbúningnum og nýt þess á aðventunni að byrja að skreyta smátt og smátt og baka eina og eina kökusort.

Ég ólst upp í stórum systkinahóp og tókum við  virkan þátt í jólaundirbúningnum, við stelpurnar skiptum með okkur verkum, þrifum allt húsið hátt og lágt, hjálpuðum til við baksturinn og strákarnir sáu svo um að rulsa til og borða kökurnar :)( það er eins gott að Haukur og Óli Gísli lesi þetta ekki ).

Það var mikið bakað, hálfmánar, sprúttur,kúrenukökur, kókoskökur, gyðingakökur, loftkökur og svo auðvita lagtertur og rjómatertur.Ekki dugði að baka einfalda uppskrift ofan í  krakkaskarann og alla vinina sem fylgdu með, yfirleitt allar sortir  þrefaldaðar og man ég sérstaklega eftir því að þegar loftkökur voru bakaðar þá var það alltaf úr nokkrum kílóum af flórsykri, því okkur fannst þær bestar. Ég man aldrei eftir öðru en að við og allir vinir okkar fengjum að borða eins mikið og við gátum af smákökum um leið og þær voru tilbúnar og ef þær kláruðust þá bakaði mamma bara meira.

Ég hef alltaf haft mjög gaman af því að baka og elska  að baka smákökurnar fyrir jólin, fyrstu árin mín í búskap var ég að prófa  allskonar sælgætiskökur en fannst þær of líkar því nammi sem að maður var að stelast í allt árið. Ég leitaði því fljótt í gömlu uppskriftirnar hennar mömmu og baka alltaf hálfmána, kúrenukökur og fleiri kökur sem voru vinsælar þegar ég var barn, nema loftkökurnar, ég hef líklega borðað yfir mig af þeim, því ég get ekki borðað þær í dag og hafa Solla og Ásta séð um að gefa strákunum mínum þær í gegnum árin. Þegar jólin nálgast er ég oftast búin að baka 8-10 sortir og ef ég væri ekki að vinna væri ég líklega búin að baka mikið meira, því mér finnst þetta svo gaman. Svo sendi ég alltaf einn stauk af hálfmánum til mágs míns í Reykjavík sem á afmæli á Þorláksmessu en mamma hafði gert það í mörg ár og þegar hún dó þá tók ég við.

Þegar ég var að alast upp þá var húsið alltaf skreytt á Þorláksmessu og lifandi jólatré sett upp og mikið var alltaf af pökkum undir trénu. Pabbi var líka alltaf vanur því að láta hangikjöt hanga upp á hálofti og alla aðventuna vorum við að gæða okkur á hráu hangikjöti, sem var algert sælgæti. Á aðfangadag var oftast lambalæri og hangikjöt á jóladag. Fyrstu jólin sem að Stebbi mágur var hjá okkur þá voru líka eldaðar rjúpur og ekki fannst mér þær nú mjög góðar þá, en eftir nokkur jól þá voru þær farnar að bragðast ansi vel.

Eftir að við  Svenni byrjuðum að búa þá eru alltaf rjúpur á aðfangadag og finnst mér jólin vera komin þegar rjúpnalyktin fyllir húsið á aðfangadag.  Á jóladag hittumst við systkinin og fjölskyldur þeirra og borðum hangikjöt saman, við skipumst á að vera heima hjá hvort öðru, við erum það mörg sem búm hér þannig að ég held jólaboðið  á 5 ára fresti.

 Á meðan ég er að skrifa þetta þá átta ég mig á því að það hafa skapast margar hefðir í fjölskyldunni minni, ein er t.d. sú að á aðfangadag eru alltaf smákökur á borðum hjá mér, flatkökur með hangikjötiog fleira góðgæti, þannig að þeir sem að eru að bera út gjafir og kort geti komið inn og fengið sér að kaffi og meðlæti.Svo kíkir Snorri mágur oftast inn með hrátt hangikjötslæri. Fyrir nokkrum árum kom Bogga nágrannakona mín með jólkort sem við Svenni áttum, en  höfðu verið borin út til hennar og gekk þetta svona í nokkur ár og nú er það hluti af hefðinn að Bogga kemur yfir á aðfangadag, þó að engin kort hafi verið borin í rangt hús.

Ein skemmtileg hefð hefur líka fest sig í sessi hjá stórfjölskyldunni en það er að við höldum "Boggumót" milli jóla og nýjárs. Þá er spilaður Hornafjarðarmanni á 6-10 borðum, allir spila og þau yngstu fylgja með og læra spilið, síðan er úrslitaspil og veitt verðlaun fyrir fyrsta sæti og tossaverðlaun fyrir flest mínusstig. Allir koma með eitthvað að borða og þegar búið er að veita verðlaunin er smakkað á kræsingunum og spjallað. Það ert mikið fjör á þessum spilakvöldum og mikil spenna þegar úrslitaspilið er spilað.

Við höfum líka prófað að halda jól annarstaðar en á Íslandi Við bjuggum í Danmörku í nokkur ár á meðan ég var í námi og héldum við tvenn jól þar, Danir skreyta minna en við og taka lífinu með meiri ró en við Íslendingar en mér fannst jólahald samt mjög líkt og hér . Jól og áramót 2007-2008 héldum við Svenni og Jón Páll til  Flórida þar sem að Júlíus eldri strákurinn okkar var við nám. Það var skemmtileg lífsreynsla að fara þangað á þessum tíma, fólk skreytir lítið að utan og ekki var mikill hátíðarblær þar í sólinni. Ameríkanar vinna mikið, á  aðfangadag voru allar búðir opnar til kl. 10 um kvöldið,  frí á jóladag og svo allt opnað kl. 10 á annan í jólum og ekkert frí um áramótin. Við eyddum áramótunum í Disney World og var það stórkostleg upplifnu, ég hélt alltaf að það væri hvergi sprengt meira en í Hagatúninu hjá sprengjuóðum fjölskyldumeðlimum  mínum :), en  flugeldasýningin í Dísney landi var mögnuð, 20 mínútna flugeldsýning, dúndrandi tónlist og ljósasjóv.

En niðurstaða okkar er nú samt  sú, að þó að það sé alltaf best að vera heima, þá er aðalatriði að vera með fjölskyldu sinni um jólin, því að jólaandinn kemur  innan frá og við getum skapað hann hvar sem að við erum.

Ég gæti haldið áfram að skrifa endalaust um jólahaldið því mér finnst það svo skemmtilegt en ætla nú ekki alveg að gera út af við ykkur með mínu jólastússi.

Ég læt fylgja með uppskrift af hálfmánunum hennar mömmu og mjög góðum" hollustu" kókoskökum án sykurs og hveitis.

Hálfmánar

500    gr. Hveiti

300    gr. Smjörlíki

250    gr. Sykur

1 egg

1 tsk. Hjartasalt

Bleytt í með 2-3 matskeiðum af köldu vatni.

Allt sett saman og hnoðað, geymt í ísskáp í einn sólahring eða lengur. Deigið flatt út og gerðir hringir með t.d. glasi eða móti og lítil teskeið af rabbabarasultu sett á hvern hring og lokað með því að þrýsta með gaffli á endana. Bakist í ca. 10 mín við 180 C

 

Kókoskökur

3 bollar kókosmjöl

11/2 bolli möndluhveiti( möndlur settar í matvinnsluvél og hakkaðar í duft)

1 bolli hlynsíróp ( helst lífrænt)

Pínulítð Maldon salt

1.mtsk. vanilludropar eða 1 tsk. vanilluduft ¼ bolli kókosolía ( brædd í vatnbaði) Öllu hrært saman með sleif, búnar til kúlur með teskeið og bakað í 15.mínútur við 150 C Það má líka breyta uppskriftinni þannig að í staðinn fyrir helminginn af möndluhveitinu má setja kakó. Það má skreyta þær með dökku eða hvítu súkkulaði, pístasíuhnetu eða beri.

 

Ég óska ykkur gleðilegra jóla og áramóta

        Jólakveðja Maren Ósk

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica