Jólagestir
Ingunn Ólafsdóttir
Ingunn Ólafsdóttir
Jólagestur

16.12.2010 Jólagestir

Engin jól án rjúpu

Jólagestur okkar 16. desember er Ingunn Ólafsdóttir

Ég hef alltaf verið og er enn logandi hrædd við fugla, bæði lifandi og liðna.

Ég ólst upp á Kálfafelli í Suðursveit hjá afa mínum og ömmu, Benedikti Þórðarsyni og Ingunni Þórðardóttur. Ég minnist þess þegar ég var lítil stelpa að mágkona móður minnar kom á aðfangadag upp til okkar með fat fullt af steiktum rjúpum. Þetta er með fyrstu skiptum sem ég man eftir því að hafa fengið rjúpu. Ég dásamaði ekki ilminn heldur hljóp hágrátandi út, enda eins og áður sagði þá er ég mjög hrædd við fugla.

Annað sem kemur upp í hugann varðandi þessa fuglahræðslu er þegar nýr traktor kom á bæinn. Frændi minn sem er á svipuðu reiki og ég vildi auðvitað eyða öllum stundum í honum. En þegar hann þurfti að skjótast inn á matmálstímum vildi hann tryggja það að ég stæli ekki sætinu hans í traktornum. Hann kunni sko ráð við því, vitandi það hversu mikið ég hræddist fugla. Hann setti fuglsvæng í sætið sem gerði það að verkum að ég þorði ekki að koma þar nálægt.

Ekki veit ég hvaðan þessi hræðsla við fugla kemur, en ég hef borðað margan fuglinn í gegnum tíðina og finnst engin jól vera nema fá rjúpu á aðfangadagskvöld. Einu sinni fór það svo þegar rjúpnabannið var að elduð var skosk rjúpa, þá fannst mér ég eins getað nagað pappa. Mér finnst því óhætt að segja að sú íslenska er best og engin jól án hennar.

Ég óska öllum vinum og ættingjum nær og fjær ásamt Hornfirðingum öllum gleðilegra jóla.

Ingunn Ólafsdóttir


Ég læt hér fylgja með uppskrift af köldum múslingarétti sem slær alltaf í gegn, hvort sem er á jólum eða við önnur tilefni.

Rifið brauð
Aromat
1 dolla sýrður rjómi
Majones
1 krukka Sandwich Spread

Þessu öllu er blandað saman í botn á fati. Múslingar og aspas eru setti ofan á botninn. Fatið er síðan skreytt með soðnum eggjabátum, sítrónum, gúrkum og tómötum. Borðist kalt og útbúið helst degi fyrir át.

Verði ykkur að góðu!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica