Jólin okkar
Jólagestir okkar 11. desember eru Anna María Kristjándóttir og Sigurður Guðmundsson
Við höfum haldið jólin okkar saman í 19 ár, ein jólin héldum við reyndar í Reykjavík hjá foreldrum okkar í Gyðufellinu, en það var árið sem Kiddi okkar fæddist, en hann er fæddur á Þorláksmessu 1995.
Enn ein jólin héldum við hátíðleg á Canarí eyjum og erum við sammála um að Það værum við til í að gera aftur, og með lækkandi verðlagi er það kannski ekki svo fjarlægur draumur.
Á þessum 19 árum hafa ýmsar hefðir skapast hjá okkur, ein er að við förum með góðu vinafólki okkar í skötuveislu á Hótel Höfn á Þorláksmessu, og er það að okkar mati orðinn einn af nauðsynlegustu athöfnum jólahátíðarinnar.
Eftir að Kiddi fæddist þá héldum við í það að halda alltaf upp á afmæli hans á afmælisdaginn hans, og var það jafnan hluti af jólahátíðinni, en það er nú í seinni tíð ekki svo fastheldið, og ræður þar mest um unglingurinn, en þegar hann var yngri fannst okkur það nauðsynlegt að það rynni ekki saman í eitt,jólin og afmælið hans.
Ýmsar hefðir hafa fylgt okkur frá báðum æskuheimilunum, t.d. voru alltaf bakaðar mömmukökur hjá mömmu á Leirunni en í Gyðufellinu voru alltaf bakaðar kókossúkkulaðikökur, sem hjá okkur hafa fengið nafnið pabbakökur, og látum við uppskriftina af þeim fylgja hér með.
Á Þorláksmessu er lokafrágangur á hinu og þessu fyrir aðfangadag og Jóladag, og húsfrúin vakir jafnan frameftir og endar á því áður en hún fer að sofa að smakka á hangilærinu sem hún er búin að vera að sjóða frá því um kvöldið, húsbóndinn er þá jafnan farinn að hrjóta og Kiddi og Katý að horfa á sjónvarp eða að stjákla í kringum mömmu sína í eldhúsinu.
Aðfangadagur gengur yfirleitt þannig fyrir sig, allir sofa frameftir, þegar við förum svo á fætur er komið að húsbóndanum að smakka á hangikjötinu sem húsmóðirin sauð og smakkaði á kvöldinu áður, sem endar yfirleitt með skömmum um að það sé helst til mikið smakkað. Fljótlega upp úr hádegi er farið í að keyra út jólakortum og gjöfum til vina og ættingja, stoppað lítilega hjá mömmu á Leirunni, svo komið heim og allir taka það sér fyrir hendur sem best hentar, húsmóðirin fer í að vinna við matargerð og undirbúning, og húsbóndinn þykist hjálpa til, svo er borðað klukkan 18:00.
Eftir mat er tekið af borðum og vaskað upp, og þegar börnin voru yngri var þeim yfirleitt leyft að opna eins og einn pakka, til að halda þeim rólegum á meðan við vöskuðum upp, en þessa hefð höfum við aflagt vegna aldurs barnanna. Eftir að gjafir hafa verið teknar upp er slappað af.
Svo er hringt í foreldra okkar í Gyðufellinu og þeim óskað gleðilegra jóla, upp úr 21:00 er farið til mömmu á Fákaleirunna í fjölskylduveislu og þegar við förum að sofa um kvöldið þá lítum við yfirleitt sátt yfir undangenginn dag og gleðjumst yfir jólunum.
Kæru ættingjar og vinir, Siggi, Anna María, Kiddi og Katý óska ykkur gleðilegra jóla, sem og öllum Austur Skaftfellingum.
Kókossúkkulaðikökur:
400 gr hveiti
200 gr kókosmjöl
1 ½ tsk hjartasalt
400 gr smjörlíki
250 gr sykur
6 tsk kakó
2 stk egg
4 msk súkkulaðispænir
Öllu blandað saman í skál og hnoðað saman, búnar til kúlur, sem er svo dýft í kókosmjöl og raðað á bökunarplötu.
Bakað við 180°í 5-10 mín eða þar til kókosmjölið fer að brúnast.




Skrifa athugasemd