Jólagestir
SiggiPalli
SiggiPalli

09.12.2010 Jólagestir

Jólin voru alltaf skemmtileg

Jólagestur okkar 9. desember er Sigurður Páll Árnason

Jólin hjá Sigga Palla voru alltaf skemmtileg, verandi skilnaðarbarn fékk ég alltaf tvöföld jól. Fyrripart hjá mömmu í mat og pakka svo yfir til pabba. Þetta hentaði mér ágætlega verandi ferkar mikið jólabarn, þó að það hafi eldst af mér eitthvað.

Það var nú ekki mikil regla á jólunum hjá okkur mömmu við höfðum það sem okkur langaði í að borða, en það var nú alltaf graflax í forrétt. Hjá pabba voru fastar hefðir, alltaf rjúpa í matinn og möndlugrautur á eftir. Ég var dauðfeginn að sleppa við þann mat því að pabbi er nú ekki mikill kokkur og ekki heldur fósturmóðir mín blessuð. Ég gerði oft grín af því heima hjá mömmu að pabbi hefði ofsoðið pappadýr í forrétt og smjör með hrísgrjónum í eftirrétt.

Eitt sem ég hlakkaði alltaf til að fá var gjöfin frá langafa, þ.e.a.s. afa fósturpabba míns, frá honum fékk ég alltaf það sama, ullarsokka og suðusúkulaði. Eftir að karlanginn dó vantaði eitthvað mikið í jólin hjá mér, svo að ég gaf bara sjálfum mér ullarsokka og suðusúkulaði í jólagjöf.

Eftir að hafa haldið upp á 35 jól er erfitt að munda eftir einhverjum sérstökum, nema í það eina skipti sem ég var hjá pabba yfir jólin, ofsoðið pappadýr í forrétt og smjör með hrísgrjónum í eftirrétt, hver gæti gleymt því.

Siggi Palli

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica