Jólagestir
Halldóra Hrund Guðmundsdóttir
Halldóra Hrund Guðmundsdóttir
Bjarki Hrafn og Snorri Freyr.

08.12.2010 Jólagestir

Jólin eru uppáhalds tíminn minn!

Jólagestur okkar 8.desember er Halldóra Hrund Guðmundsdóttir

Þetta er  í fyrsta skipti sem við erum hérna á Höfn í kringum jólin þar sem við fluttum hingað í september. Dvölin hér varir nú bara í 7 mánuði þar sem ég er að leysa héraðsdýralækni af á meðan hún er í barneignafríi.

Okkur líður nú bara afskaplega vel hérna, gott fjölskyldulíf og einhvernvegin allt svo auðvelt .. og stutt - eins og sagt var við mig í Vestmannaeyjum þar sem ég fór sem dýralæknir á tveggja vikna fresti undanfarið ár áður en við komum hingað þegar ég var að vinna hjá Dýralæknaþjónustu Suðurlands - það er ekki hægt að fara í fýluferð, það er allt svo nálægt.

Mikið rosalega eru Hornfirðingar duglegir að skreyta, það eru alls staðar seríur í tugatali og Bjarki Hrafn sonur okkar sem er 2,5 ára segir vááááá í hvert sinn sem við keyrum um, hann er alveg svakalega spenntur fyrir ljósunum og jólasveinunum. Amma hans og afi gáfu honum súkkulaðidagatal í fyrsta skipti í ár og það hefur líka vakið mikla lukku.

Ef ég ætti að hugsa tilbaka til jóla sem eru mér minnisstæð fyrir að vera öðruvísi en venjulega þá koma helst tvö upp í huga mér:

Jólin þegar ég var átta ára gömul, þá bjuggum við fjölskyldan í Svíþjóð. Ég hafði verið dýrasjúk frá fæðingu og fékk í jólagjöf mín fyrstu gæludýr - tveir gullfiskar í stóru kúlubúri - mikið ofsalega var ég hamingjusöm og ekki nóg með það þá var hjól í næsta pakka, næstum jafn stórt og pabba hjól, rautt og hvítt með hrútastýri - glæsilegt ;) Beint út að hjóla á nýja hjólinu og það endaði nú ekki betur en það að ég hjólaði utan í múrsteinsvegg og skrapaði mig alla - en það breytti því ekki að mér leið eins og heppnasta barni í öllum heiminum þennan dag.

Hin jólin sem mér dettur í hug eru jólin þegar ég var skiptinemi í Argentínu. Jólin þar voru nú ansi ólík jólunum hér. Fyrir það fyrsta var hásumar, 30 stiga hiti og einu jólaskreytingarnar sjáanlegar voru ljósaseríur á pálmatrjánum kringum torgið í miðbænum. Ég fékk að vita að kvöldmaturinn yrði ekki fyrr en seint því þar opnar maður pakkana eftir miðnætti, þegar 25.desember er rétt að byrja. Klukkan tíu um kvöldið var ég búin að klæða mig í spariföt og komst þá að því að það tíðkast greinilega ekki að klæða sig upp á aðfangadag þar.  Allavega, við borðuðum góðan mat og settumst svo inn í stofu að opna pakkana. Ég hafði aldrei áður fengið svona fáa pakka, en samt átti ég fleiri pakka en hinir á heimilinu. Svo klæddi unga fólkið sig upp og fór út að djamma - frekar skrýtið.

Aðfangadagur hefur hingað til oftast verið haldin í foreldrahúsum. Foreldrar mínir búa í Funafold í Grafarvoginum og þangað er leiðinni heitið í ár.

Satt að segja hef ég enga löngun né þörf á því að fara halda jól sjálf, það er svo næs alltaf að fara bara til mömmu og pabba.

Alltaf eins ár eftir ár - rækjukokteill í forrétt sem ég bý til, hamborgarahryggur með öllu tilheyrandi í aðalrétt og ísterta í eftirrétt.

Þar sem oft eru hnetur og möndlur á ístertunni hefur pabbi tekið upp á því að stinga einhverju allt öðru í tertuna til að finna út hver fær möndlugjöfina. Maður veit aldrei hvort maður eigi von á að fá upp í sig tyggjó eða eitthvað allt annað sem fer allavega ekki á milli mála að eigi ekki að vera í tertunni. Pabbi veit líka nákvæmlega hvar hann stingur þessum aðskotahlut og verður möndlugjöfinni deilt jafnt á milli okkar á milli ára, þó svo að pabbi fái hana reyndar aldrei. Það hjálpar þó aðeins að tjá sig um hvað það sé langt síðan maður fékk möndlugjöfina síðast, þá aukast líkurnar til muna. Möndlugjöfin hjá okkur er oftast spil sem við endum svo daginn á að spila saman eftir að búið að opna pakkana.

Við fórum alltaf á því að fara í messu á aðfangadag, en eftir að barnabörnin fóru að bætast í hópinn hefur því verið sleppt og barnabörnunum fjölgar óðum þannig það lítur ekki út fyrir að það verði með í dagskránni næstu árin allavega. Við mágkona mín eigum báðar von á okkur í lok apríl þannig næstu jól verða enn fjölmennari en þessi.


Jólakveðjur, Halldóra Hrund dýralæknir og fjölskylda

 

Rækjukokteillinn minn:

Eitthvað gott salat. Fallega skornir A-gúrkubitar. Sítrónusneiðar. Rækjur. Raðað á disk.

Sósan er búin til úr majónesi, sýrðum rjóma, tómatsósu, sítrónusafa, paprikukryddi, cheyennepipar og chilli.

Svo er ferskri steinselju stráð yfir sem skraut.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica