Jólin mín
Jólagestur okkar 6. desember er Ágústa Arnardóttir
Fyrir utan síðustu 2 jól hef ég frá því að ég man eftir mér haldið jólin hjá mömmu og pabba á Hólabraut 18, Hornafirði, eða Jólabrautinni eins og hún er kölluð í desember. Þó að minningin sé alltaf sú sama, fallegt og hreint hús, vel skreytt að innan og utan, jólakökur í tonnavís, góður matur, þægileg stemning og skemmtilegir tímar, hefur gríðarlega margt breyst, eins og gengur og gerist ár frá ári. Til að mynda hafa jólaskreytingarnar sem foreldrar mínir sjá um, pabbi utandyra og mamma innandyra margfaldast í gegnum tíðin. Undanfarin ár hefur heimili foreldra minna breyst í jólahús, jaa eða kannski bara heimili jólasveinsins. Pabbi er óttalegur jólasveinn og gefur sig út fyrir að vera það, hann elskar fátt meira en að fá athygli og hrós fyrir jólakskreytingarnar frá barnabörnunum og börnum....og bara fólki yfir höfuð. Á meðan er frú Jóla inni, búin að þrífa allt og skreyta svo fallega að húsið er óaðfinnanlegt, kveikt á kertum, alltaf jólakökur eða nammi í skál og það er sama hvað við stoppum lengi eða stutt á Höfn, þá nær hún alltaf að gefa okkur 5 stjörnu máltíð að borða.....er nú skrítið að maður vilji bara vera sem mest hjá mömmu og pabba á aðventunni !!!
Ég minnist þess á að á meðan ég var barn eyddi fjölskyldan miklum tíma saman, mig minnir að ég hafi fengið að hjálpa mömmu við baksturinn, innpökkun, kortaskrif, pakkakaup, skreytingar og fleira. Nú þegar ég er orðin móðir sjálf geri ég mér þó betur grein fyrir því hvað foreldrar eyða svakalegum tíma í þrif, þvott, eldamennsku og ýmsu öðru minna skemmtilegu. Ég geri ég því ráð fyrir að mamma hafi séð um langmest á heimilinu þó mér finnist eins og ég hljóti að hafa hjálpað helling. Pabbi var mikið á sjó en hefur alltaf séð um utandyra jólaskreytingarnar og jólamatinn. Hann veiddi rjúpurnar, og gerir enn en fær nú aðstoð frá sonum sínum og tengdasonum. Við Stebbi bróðir fengum stundum að fara með á veiðar sem börn og þegar ég var um 12-14 ára fór ég með honum í Bergárdal að veiða rjúpur, hann sá um að skjóta þær og ég átti að hlaupa á eftir þeim. Það er mér svo minnisstætt að ein rjúpan særðist bara og náði alltaf að hoppa eða hlaupa í burtu frá mér, neðar og neðar í klettana, ég elti en var samt svo skíthrædd, var ekki spennt að þurfa að handsama lifandi rjúpu og snúa hana úr hálsliðnum eins og pabbi, sem stóð efst í klettunum, öskraði að ég ætti að gera. Hjartað í mér hamaðist og ég var að farast úr stressi, loks náði ég henni og reyndi eftir bestu getu að snúa hana niður, það gekk að lokum og ég er nokkuð ánægð með að hafa „veitt“ mína eigin rjúpu, það var samt eiginlega ekki hægt að matreiða hana, hefði hentað ágætlega í hakk. Þannig að síðan hef ég ekki farið á veiðar og hef engann áhuga á því. Mér finnst rjúpur ekkert svakalega góðar en hefðin sem fylgir þeim, veiðarnar, veiðisögurnar, að sjá þær hanga fleiri og fleiri fyrir utan Jólabrautina á veiðitímabilinu, þegar pabbi verkar þær og þrífur á Þorláksmessu og þegar hann eldar þær á Þorláksmessukvöld og lyktin leggst yfir húsið meðan við skreyttum jólatréð er eitt af þvi sem hefur alltaf verið eitt af stærstu jólaminningunum og sterkasta jólahefðin á Jólabrautinni.
Ég var, og er, svakaleg pakka manneskja. Mér finnst gaman að gefa, oftast gef ég eitthvað sem ég bý til sjálf en núna er svo margt æðislegt í boði af íslenskri hönnun og handverki að það verður erfitt að ákveða hver fær keypt og hver fær heimagert. Mér finnst líka alveg himneskt að þiggja og íslenskt og/ eða heimagert er efst á óskalistanum mínum í ár. Gjafir eiga ekki að vera kvöð og leiðindi fyrir gefandann, því oftast er það hugurinn sem skiptir mestu máli. Ein af sterkustu pakka minningunum mínum gerðist nokkrum dögum fyrir jól þegar ég var svona 8-10 ára, þá gaf jólasveinninn okkur svo mikið í skóinn að það komst ekki einu sinni allt í skóinn, það voru föt, skór, leikföng og ég veit ekki hvað og hvað í gluggakistunni, á ofninum fyrir neðan og allt í kring, þetta var alveg ótrúlegt en besta gjöfin þennan daginn var þó að pabbi kom akkúrat heim úr siglingu frá Englandi þessa sömu nótt!
Nú reyni ég að vera sem mest á aðventunni og í kringum jól og áramót á Hornafirði en aðfangadag er ég farin að halda í mínu eigin húsi á Djúpavogi. Við Guðlaugur erum í því að skapa nýjar og góðar hefðir fyrir okkur og börnin okkar, þó það einkennist mikið að stolnum hefðum úr foreldrahúsum. Við eigum 3 börn, rétt rúmlega eins árs stúlku sem heitir María, Örn Þór sem er rétt að verða 3 ára og Vigdísi sem er nýorðin 4 ára. Eftir að börnunum fjölgaði, minnkaði tíminn sem við getum gefið okkur í allskonar dúllerí og dundur. Matseld mín byggist helst á einhverju sem tekur minna en 10 mínútur að elda og flest sem ég geri er gert á hlaupum. Ég elda sjaldan upp úr kokkabókum og kann fáar flóknar uppskriftir, elda oftast það sama. Í þau skipti sem ég geri eitthvað öðruvísi hringi ég undantekningarlaust í mömmu og bið hana um ráðleggingar. Ég er ekki búin að ákveða jólasteikina í ár en ég veit hins vegar fyrir víst að ég á eftir að hringja í mömmu til að fá aðstoð í gegnum síma svo ég nái jólamáltíðinni fullkomlega. Eitt sem ég hef haft og mun alltaf hafa, sem mamma hefur alltaf og Súa amma hafði líka, það er Rækjukokteill í forrétt á aðfangadag. Og það er ein af örfáum uppskriftum sem ég kann utan af:
Vel pillaðar fallegar rækjur settar í skál
Soðin egg í bátum sett ofan á rækjurnar
Safi úr sítrónu kreistur yfir
Og kokteilsósa yfir allt saman
Mín koktailsósa nú til dags er AB mjólk og tómatsósa, einfalt, fljótlegt og ég á oftast öll hráefnin í hana.
Mamma gerir hins vegar alltaf rosa góða sparikokteil sósu með rækjunum. Þið verðið bara að hringja í mömmu til að fá uppskriftina af því......ég mun allavega gera það!
Nóvember og desember eru þeir mánuðir sem mest eftirspurn er eftir vörum frá mér sem ég hanna og handgeri í kjallaranum hjá mér, þannig að oft fer þessi tími í svakalegt púsluspil. Þetta er oft strembinn tími en sá allra skemmtilegasti ef ég gleymi mér ekki í stressi og rugli. Ég hef lært það síðan börnin mín fæddust (og reyni eftir bestu getu) að aðskilja vinnu, börn og heimilishald þannig að ég sé ekki alltaf að hugsa um allt í einu, heldur hugsa ég um vinnuna þegar börnin eru í leiksskóla, um börnin þegar þau eru heima og um heimilishaldið ......jaaaa bara þegar og ef ég hef tíma.
Ég hef framleitt mikið af fallegum töskum, fylgihlutum og fatnaði undanfarnar vikur og á nú fjölbreytt úrval sem ég mun selja á mörkuðum og sölusýningum víða um land fyrir jólin. Fólk er líka alltaf velkomið til mín á vinnustofuna hér á Djúpavogi....það er samt vissara að hringja á undan sér.
Börnin mín eru komin á þann aldur að það er hægt að gera helling með þeim án þess að allt leysist upp í allsherjar vitleysu, td. bökuðum við smákökur eftir leiksskóla í gær sem heppnuðust líka svona vel. Eftir leiksskóla í síðustu viku tók Örn Þór Byko bækling sem var nýkominn inn um bréfalúguna og reif hann í hengla, í staðinn fyrir að argast yfir því og ná í sópinn, náði ég í meiri póst og bréfarusl og saman tættum við þetta niður í skál, bættum hveiti jafningi við og bjuggum til jólaskál úr pappamassa. Þetta er örugglega frekar lýsandi fyrir jólahaldið hjá okkur í ár, ég geri þannig séð ekki mikil plön, því það skapar oft óþarfa stress. Ef krakkarnir eru í stuði til að baka þá bökum við, ef þau eru í stuði til að skreyta þá skraytum við, ef þau vilja leika úti þá leikum við úti, ef jólakökubaksturinn, skreytingarnar, jólabaðið og jólasteikin verður ekki klárt á réttum tíma eða alveg eins og ég vil hafa það, þá verður bara að hafa það.
Ég ætla að njóta augnablikanna brosandi. Njóta kuldans með því að klæða mig vel eða kúra undir teppi með heitt kakó eða súkkulaði kaffi. Njóta myrkursins með því að kveikja á fallegum ljósum og kertum. Njóta aðventunnar hátíðlega með fólkinu sem ég elska. Og ég vona að allir í heiminum geti gert hið sama, ég óska öllum góðrar aðventu og gleðilegra jóla.
Í lokin langar mig að benda á nokkur skemmtileg einföld jólaföndur fyrir alla fjölskylduna, það er ókeypis, tekur ekki langann tíma, það má lita útfyrir og klippa skakkt, það eina sem þarf að passa er að vera í góðu skapi og vinna þetta saman:
Pappamassa skálar:
Rífið póst dagsins og síðustu daga, bæklinga, reikninga og annað og í pínulitla búta. Þetta er mjög auðvelt fyrir alla aldurshópa. Gaman er að skoða bæklingana um leið og þeir eru tættir niður og tala um hvað væri gaman að fá í jólagjöf. Setjið alla pappírs bútana í skál eða á disk og blandið hveiti lími/ hveiti jafning saman við, hnoðið vel og þrýstið ófan í skál. Gott er að hafa plast á milli og á nokkrum dögum þornar pappírs drullann og mótast eftir skálinni. Þarna er því kominn falleg skál eða diskur undir jólamandarínurnar eða jólakökur.
Óróar og loftskraut:
Haldið til haga umbúðum af morgunkorni og öðrum pakkningum í nóvember og desember. Þá takið þið allt í sundur svo þetta verði flatt og auðvelt fyrir börnin að lita eða mála á, einnig mjög flott að setja glimmer og annað skraut sem til er á heimilinu. Því næst er þetta klippt niður í renninga í mismunandi stærðum og heftað saman í hringi sem tengjast. Svona skraut er flott að hengja horn í horn í loftinu.....bara eins og við gerðum í Hafnarskóla í gamla daga.
Jólaskraut á veggi og merkimiðar á pakka:
Þrífið og þurrkið allar jóla mjólkur fernur, leyfið svo börnunum að klippa út jólasveinanna, grýlu og leppalúða. Hægt er að festa þessar fallegu fígúrur með kennaratyggjói á veggi, spegla eða glugga. Gata þá, þræða spotta og hengja á jólatré. Skrifa aftan á, líma með límbandi á pakka og nota sem merkimiða á jólapakkana. Gefið því gaum hversu margar matarpakkningar eru fallega skreyttar fyrir jól, á mörgum stendur Gleðileg jól og skreytt með allskonar jólabjöllum og öðru sem henta fullkomlega í flottar skreytingar á kort og merkimiða.
Gjafakassar og gjafapokar:
Klæðið tóma skókassa, morgunkornskassa, kassa undan kremum og fl. í þunnan ódýrann pappír sem fæst á stórum rúllum og litið eða málið, einnig er hægt að mála beint á kassana en þá þarf að nota þekjandi málningu. Þetta er svo hægt að nota fyrir gjafakassa eða gjafapoka og skreyta með smá krullu bandi, gömlum garn afgöngum eða pappírsstrimlum og mjólkurmerkimiðum. Skemmtilegasta innpökkun í heimi.




Skrifa athugasemd