Jólagestir
Erna Gísladóttir
Erna Gísladóttir
Hjónakornin Erna og Haukur

04.12.2010 Jólagestir

Jólin mín fyrr og nú

Erna Gísladóttir er jólagestur okkar 4.desember

Nú í byrjun desember fer undirbúningur jólanna að  komast á fulla ferð og spennan og eftirvæntingin að aukast, bæði hjá börnum og fullorðnum. Það er svo gaman að sjá að allur aldur tekur þátt í spennunni.

Nú eru flest hús komin með jólaljós í garða, utan á hús og í glugga.  Á mínum bernskuárum voru það afar fáir, ef það var nokkur, sem kveikti jólaljósin svona snemma. Heima hjá pabba og mömmu  voru jólaljósin tendruð á Þorláksmessukvöld og eftir að búið var að kveikja á þeim þá fórum við fjölskyldan út að keyra til að skoða ljósin í hinum húsunum. Bærinn var allt í einu uppljómaður í öllum regnbogans litum. Ennþá kveiki ég seint á mínum jólaljósum utan aðventuljóssins sem tendrað er á fyrsta sunnudegi í aðventu.

Fólk kemur sér upp allskonar hefðum bæði í undirbúningi jóla og á jólunum sjálfum. Ein var sú hefðin sem ég man svo vel eftir, og alltaf var mikill spenningur í kringum, og hún var sú að pabbi fór með okkur, mig og Gísla litla Eymars til að byrja með og svo bættust við fleiri barnabörn,  inn í sveit til að ná í mosa í skreytingarnar.  Pabbi sá alltaf jólasveina í fjöllunum sem gerði allt svo spennandi og stundum faldi hann sig á bak við kletta og steina og hrópaði hó hó hó og við leituðum skelkuð að sveinunum. Ekki brást að pabbi kom við á sjoppu á leið okkar inn í sveit og keypti perubrjóstsykurpoka sem við mauluðum í ferðinni. Þetta var algjör sæla. Svo er heim var komið með mosann þá settist pabbi í þvottahúsið og við í kringum hann og hann gerði þær flottustu kertaskreytingar sem maður hafði séð og ekki gat maður ímyndað sér að svona flott væri í nokkru öðru húsi á Höfn og þótt víðar væri leitað.  Í þá daga  var ekki farið í blómabúðina til að kaupa borðskreytingar.  Nú er hefðin sú á mínu heimili að ég fer í búðina og kaupi það sem til þarf í nokkrar skreytingar.

Mamma sá um bakstur og aðra matargerð fyrir jólahaldið. Margar smákökusortir voru ævinlega á borðum í Björk og alltaf saumaði mamma nýjan kjól á mig fyrir jólin.  Hún lét okkur stelpurnar fægja silfrið og svo hjálpaði maður við að þrífa allt grjótið í „steinaherberginu“, en stórt steinasafn var í því herbergi.

Mikið hefur breyst síðan þá, nú fer mestur tíminn í að standa í biðröðum í búðum og borga allan þann helling sem keyptur er.   

Þegar jólin gengu í garð sat öll fjölskyldan í stofunni og hlustaði á messu, öll fjölskyldan nema mamma, hún var að klára að elda matinn. Við sátum með sálmabækur í hendi og sungum með. Þegar ég hugsa til baka held ég að þetta hafi verið ágætis leið til að halda spenntum börnum rólegum. Nú fara margir til messu kl. 18.00 á aðfangadagskvöld en flestir setjast að borðum á sama tíma og er ég þar meðtalin. Tíminn sem fór í það að mamma og pabbi vöskuðu upp eftir matinn var mjög erfiður og þegar því lauk, loksins, þurfti mamma að fá sér kaffi í bolla og kannski að skreppa á klósettið, þá gat maður ekki meira. Þetta var heil eilífð. Ætlaði þessu aldrei að ljúka?

Á jóladagsmorgni fékk ég alltaf heimabakaðar brauðtertur  í morgunmat og drakk jólaöl með. Ég hef haldið þessum sið á mínu heimili. Uppskrift af þessum brauðtertum mun ég deila með ykkur í lok pistils. Jóladagur fór í leiki og spil og á jólunum okkar í dag höfum við haldið áfram þessum sið. Jólin eru góður tími fyrir fjölskyldur að hittast og leika sér saman, smáir og stórir. Ég bjó alltaf til spurningakeppni sem maður var farinn að undirbúa löngu fyrir jól,  nú hafa börnin mín tekið að sér að gera þessar keppnir og þótt þau séu orðin fullorðin eru þau ennþá full tilhlökkunar og eru farin að undirbúa jólin sem eru á næsta leiti. Mamma og pabbi eru ennþá með okkur í þessum leikjum þótt rígfullorðin séu orðin.

Í ár hefur fjölskyldan stækkað mikið og ég hugsa til jólanna með mikilli tilhlökkun. Við hafa bæst tvö barnabörn og þrjú tengdabörn sem ætla að eyða jóladeginum með okkur. Hvað getur maður beðið um meira?

Kæru lesendur, ég óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. 

Erna Gísladóttir.

 

 

 

3 brauðtertur

250 gr. hveiti

2 msk. sykur

1 tsk. salt

2 tsk. lyftiduft

2 egg

2,5 dl. mjólk

40 gr. brætt smjörlíki

 

Allt  hrært saman og bakað á pönnukökupönnu á mjög litlum hita. Á hverja köku er sett salat, rækjusalat, hangikjötsalat eða hvaða salat sem hugurinn girnist.

Verði ykkur að góðu.

 

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica