Það var óbrigðult að jólin voru handan við hornið þegar amma setti stóra jólalampann í stofugluggann sinn.
Jólagestur okkar 2. desember er Guðrún Ingimundardóttir
Hvað hemur upp í hugann þegar kona sem fæddist laust eftir miðja síðustu öld flettir í minninu og rifjar upp jólin sem liðið hafa öll þessi ár? Það er nú sitt af hverju og bara æði fjölbreytt.
Fyrstu minningarnar eru frá æskuheimilinu þar sem búið var á nokkrum bæjum og þar á meðal afi minn og amma ásamt frændum og frænkum.Það var óbrigðult að jólin voru handan við hornið þegar amma setti stóra jólalampann í stofugluggann sinn, en hann blasti við eldhúsglugganum heima hjá okkur.
Foreldrar mínir bjuggu með hefðbundinn búskap og því þurfti að sinna mjöltum og gefa fénu á aðfangadag eins og aðra daga yfir vetrarmánuðina. Aðfangadagur var óendanlega langur.Tíminn bara stóð kyrr. Við systkinin höfðum öll fengið jólabaðið og það var ekkert vandamál því nægt heitt vatn var í bænum , þökk sé hitaveitunni sem við höfðum. Allar gjafir voru farnar sem senda þurfti og enginn var að koma og enginn að fara neitt, sem er ómetanlegt þegasr stór stund er í vændum. Þá var það eldamennskan. Ævinlega kom tilkynning í útvarpinu sem stíluð var til húsmæðra þessa lands; að gæta þess vel að jafna rafmagsnotkun yfir daginnn eins og mögulegt væri til að ekki slæi nú út og allt yrði í tómu tjóni!
Ekki man ég annað en að þetta spennuatriði slyppi fyrir horn. Þegar klukkan sló sex var allt til reiðu. Jólasteikin borðuð og á meðan hlustað á jólaguðsþjónustuna. Þá var uppvaskið eftir og það eru einu skiptin sem ég man eftir að hann pabbi minn hafi tekið þátt í því. Þá var hápunkturinn, að opna gjafirnar. Á meðan það var gert var nartað í jólaepli eða smáköku. Best fannst mér að fá bækur og svo er enn í dag. En áður en telpan gat hafið jólanæturlesturinn fóru allir af bæjunum heim til afa og ömmu og þar var borðað enn meir og auk þess gengið í kring um litla jólatréð þeirra og jólasálmar og aðrir jólasöngvar sungnir fram eftir kvöldi. Í minningunni var ævinlega mikill snjór og frost og enginn þurfti að spá í fyrirfram hvort jólin yrðu hvít. Þau voru alltaf mjallahvít. Svo liðu árin og nýir siðir urðu til hjá þeirri sem þetta skrifar.
Eða ölluheldur jólin voru allavega og ólík þeim næstu á undan. Ekki voru þau alltaf haldin hér á landi heldur víðsfjarri bernskujólunum mínum. Mér eru minnistæð jól í landinu helga árið 1977. Þá bjuggum við í Jerúsalem og ákveðið var að fara til Betlehem á aðfangadagskvöld. Það var mikill spenningur því jólaguðspjallið gerist einmitt þar og það er í hugum margra upphafið sjálft. Þvílík vonbrigði! Allsstaðar voru hermenn gráir fyrir járnum sem leituðu hverseins sem þarna gæti verið til að hleypa öllu upp. Mannmergðin var ótrúleg og fólk tróðst og hrópaði til að komast leiðar sinnar að Betlehemstorginu og jólafriður eins ég hafði vanist var ekki finnanlegur. Sölubúðir voru opnar og ótrúlegur atgangur við að fá fólk til að opna pyngjur sínar. Það var mikill léttir að komast þaðan burt með börnin sín, þar af það yngra aðeins tveggja mánaða.
Jól í Ísrael voru ekki það sem ég hafði gert mér í hugarlund áður en ég upplífði þau sjálf , svo er kristni heldur ekki opinber trú landsins. Samt sem áður er okkur öllum hollt og lærdómsríkt að komast að raun um að jólin eru í hugum okkar fyrst og fremst en ekki ytri umgjörð og best að rækta sinn garð í þeim efnum.
Að lokum kemur hér óbrigðul uppskrift af rammíslenskum jólamat sem alltaf kemur til með að vera hluti af mínu jólahaldi.
Reykt lambalæri á beini / hangikjöt.
Best er að kaupa lærið það seint að það fari ekki í frysti.Skerið hækilinn af og notið í álegg á t.d. flatkökur í hádeginu á aðfangadag jóla.
Kjötið er sett í pottinn rétt eftir hádegið á Þorláksmessu og soðið hæfilega.Mikilvægt er að hlusta á jólakveðjurnar á Rás eitt á meðan eldamennskan stendur yfir. Það kemur huganum í ró og fyllir mann góðri tilfinningu. Það sem fer ákaflega vel með þessari athöfn er að strauja jóladúkana og að hlakka til hátíðar ljóss og friðar. Gleðileg jól allir fjær og nær og megið þið njóta þess að gefa og þiggja.
Guðrún Ingimundardóttir.




Skrifa athugasemd