Jólagestir
Sr. Hólmgrímur Elís Bragason
Sr. Hólmgrímur Elís Bragason

25.12.2009 Jólagestir

Á jólum finnum við fyrir nálægð frelsarans.

Jólagestur okkar 25. desember er Hólmgrímur Elís Bragason

 

 

,,Ég opna hlið míns hjarta þér,
ó, Herra Jesús, bú hjá mér,
að fái hjálpar hönd þín sterk
þar heilagt unnið náðarverk“

(Sb. 59, 7.v.)

Kæru Hornfirðingar.

Nú höldum við heilög jól. Hátíðin er gengin í garð með öllu tilheyrandi.  Hátíðin sem gengur út á það að fagna fæðingu frelsarans, gleðjast, eiga yndislegar stundir með okkar nánustu, fara í jólaboð til þess að hlæja með fólkinu okkar, borða góðan mat og svo mætti lengi telja.

 

Hjá flestum á þessi lýsing við en því miður ekki öllum. Margir þjást af kvíða, bæði börn og fullorðnir. Bara það að jólin eru táknræn sem fjölskylduhátíð gerir þau oft einmannaleg fyrir einstæðinga og þá sem sem á einhvern hátt eru sorgbitnir. Þeir sem misst hafa náin ástvin eða orðið fyrir öðru erfiðu áfalli og þeir sem jafnvel uppliðu erfiða tíma á jólum í sinni barnæsku  eru líklegri en aðrir til að kvíða jólunum. Hátíðirnar kalla nefnilega fram minningar og hjá þessu fólki, oft sárar minningar sem kannski voru farnar að dofna aðeins.

 

Mig langar til að beina nokkrum orðum til þeirra sem eru í þessum sporum. Þegar við tökumst á við sorg eða missi verðum við að horfast í augu við aðstæður okkar. Við verðum að sætta okkur við það að jólin verða ekki eins og venjulega. Við getum ekki frestað eða sett til hliðar tilfinningar okkar. Það er gott að búa okkur undir það að okkur mun líða illa og taka frá tíma fyrir okkur svo við getum leyft okkur að syrgja, leyft okkur að snerta á þeim tilfinningum sem hellast yfir, þótt það séu jól. Ef við erum svo heppin að eiga góða að sem við eyðum hátíðinni með getum við betur tekist á við sorgina. Hvar er betra að vera þegar sorgin knýr dyra en í faðmi þeirra sem elska okkur eins og við erum?

 

Ég eins og flestir hef þurft að horfa á eftir nákomnum ættingjum og vinum sem kvatt hafa. Einstaklingum sem  voru mér einstaklega kærir og ég sakna mjög. Þannig er lífið hjá okkur öllum. En í dag er þakklæti efst í huga mínum. Þakklæti fyrir það að fá að hafa átt með þessu yndislega fólki, sem nú er farið, margar góðar samverustundir. Mörg gleðileg jól og margar aðrar hátíðirstundir. Mér er minnisstætt fertugsafmælið mitt sem ég hélt fyrir tveim árum. Móðir mín yndisleg barðist við banvænan sjúkdóm aðeins 62 ára að aldri. Ég ákvað að fara suður og halda upp á afmælið mitt með föður mínum og bræðrum í stað þess að halda stórveislu. Við fórum svo á spítalann og sóttum mömmu og héldum síðan litla veislu heima hjá foreldrum mínum. Eftir veisluna fór mamma svo aftur á spítalann og tveim vikum síðar var hún látin. Í huga mínum gat ég ekki átt betra afmæli. Stórveisla með dýrum veigum og gjöfum hefði ekki staðist samanburð við þetta litla afmæli. Það er ekki umfangið sem skiptir máli á jólum eins og öðrum hátíðum heldur það hvernig við ræktum kærleikann, vonina og þakklætið í hjörtum okkar. Hvernig við horfum á samferðafólkið okkar og hvernig við komum fram við það. Slíkt elur af sér góðar minningar og þakklæti og slíkt búa börnin okkar að alla ævi. Ég er 42 ára í dag og hef þurft allan þennan tíma til að átta mig á þessu, en það er víst það sem gárungarnir kalla að þroskast.  

 

Á jólum finnum við fyrir nálægð frelsarans. Nálægð þess sem elskar okkur skilyrðislaust og mun aldrei kasta okkur burt.  Nálægð þess sem kom í heiminn á jólanótt í Betlehem og tók á sig allar okkar syndir. Ástæðan er hin skilyrðislausa ást Drottins á sköpun sinni.  Svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. Um þetta snúast jólin. Um mikilfenglegustu gjöf sem gefin hefur verið. Ef við leyfum okkur að velta þessu fyrir okkur sjáum við fljótt hvað það er sem virkilega skiptir okkur máli. Þá getum við svo sannarlega notið jólanna hvernig sem aðstæður okkar kunna að vera. Því Kristur er kominn til þess að umvefja þig og mig kærleika sínum, umvefja þig og mig ljósi sínu. Við þurfum bara að leyfa honum það og ef við gerum það munum við upplifa hinn sanna jólaanda og breiða hann áfram út til þeirra sem þurfa á stuðningi að halda.

 

Guð gefi ykkur góða heilsu, gleði og frið.

Gleðileg jól Hornfirðingar.

Hólmgrímur Elís Bragason og fjölskylda á Reyðarfirði.

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica