Jólin eru góður tími til að njóta
Jólagestur okkar 20. desember er Særós Ester Leifsdóttir
Nú nálgast jólin óðfluga og þegar ég hugsa til baka koma upp margar skemmtilegar jólaminningar. Ég var nú ekki nema rétt rúmlega 1 mánaða gömul þegar ég hélt upp á mín fyrstu jól og finnst nú líklegt að ég hafi ekki gert mikið annað en að sofa þau jólin. Núna líður að mínum 19 jólum, sem verða að öllum líkindum jafn yndisleg og alltaf.
Mér hefur í gegnum tíðina alltaf fundist jafn gaman að undirbúa jólin, skreyta og og taka þátt í bakstrinum. Auðvitað breytist allt eftir því sem maður verður eldri, en þó er jólaandinn alltaf sá sami. Þegar ég hugsa til minna yngri ári kemur alltaf upp í hugann á mér hversu skelfilega hrædd ég var við jólasveinana sem bönkuðu upp á hjá mér á aðfangadagsmorgun syngjandi glaðir með pakka handa mér. Ég varð alveg stjörf af hræðslu og þurfti vanalega að láta foreldra mína halda á mér svo að ég væri alveg örugglega í traustum höndum. Ég rétt svo þorði að rétta út hendina til að taka við pakkanum og hljóp svo beinustu leið út í glugga til að horfa á eftir þeim halda leið sinni áfram. Að setja skóinn sinn út í glugga var auðvitað stór partur af desember, og vaknaði ég stundum um miðja nótt til að tæma skóinn, til að gá hvort að ég fengi ekki örugglega meira aftur seinna um nóttina – meira ruglið.
Þegar ég var lítil skotta var það alltaf hefð hjá mér og pabba að skreyta jólatréð á Þorláksmessu, og fékk ég alltaf að raða öllum pökkunum undir jólatréð og varð enn þá spenntari að sjá alla fínu pakkana mína . Ég þurfi sko að skoða alla pakka sem merktir voru mér vel og vandlega, og hvað gæti nú hugsanlega verið í hverjum pakka. Spenningurinn á aðfangadag var gríðarlegur, og var ég vöknuð fyrir allar aldir og gat varla beðið eftir kvöldinu. Vanalega var spennan orðin svo mikil um miðjan dag að ég fékk að opna minnsta pakkann svona til að halda mér þó rólegri fram að kvöldmat. Mér fannst alveg ótrúlegt hvað fjölskyldan gat tekið langan tíma í að borða, tala saman og hlusta á messuna í útvarpinu – en að sjálfsögðu skil ég þetta allt saman í dag. Eftir að pakkanir höfðu verið teknir upp, var alltaf viss partur af jólunum að fara um kvöldið í heimsókn til ömmu og afa á Vesturbrautinni.
Síðan ég var 8 ára hefur það alltaf verið mín hefð að fara með Gunnu frænku og hennar vinkonum í laufabrauðsbakstur, og er það eitthvað sem mér finnst ógleymanlegur partur af jólunum, og finnst það vera partur og því að jólin séu að ganga í garð – það verður mér eftirminnilegt alla mína ævi.
Jólin 2007 vorum aldeilis öðruvísi fyrir okkur mæðgur. Við fórum til Kanaríeyja ásamt vinafólki okkar og eyddum því aðfangadagskvöldi í 22 stiga hita úti á svölum að borða hamborgarahrygg og meðlæti. Allan daginn hafði tekið að fara úr búð í búð að leita að sósu í pökkum sem ekki virðist vera algengur hlutur á Kanaríeyjum. Maður deyr nú ekki ráðalaus, við fundum sveppasúpu í dós, blönduðum ýmsu góðu út í hana og vitiði til, úr varð ein besta sveppasósa sem ég hef smakkað! Svo virðist sem Spánverjar taki aðfangadagskvöldi ekki jafn hátíðlega og við gerum, því að þegar við sátum í mestu makindum að gæða okkur á íslenskum hamborgarahrygg, voru Spánverjarnir úti að skemmta sér, dansandi og syngjandi á götum úti framundir morgun, ungir sem gamlir.
Rútínan í desember hefur oftast alltaf verið sú sama. Við mæðgur setjum upp aðventuljósin á fyrsta í aðventu og hengjum svo upp seríur smátt og smátt fram að jólum. Svo líður desember, prófin taka enda og alltaf er jafn gott að komast í jólafrí. Á annan í jólum hefur það svo verið hefð hjá unga fólkinu að árgangarnir komi saman, hittist og spjalli um allt milli himins og jarðar enda öll stödd á ólíkum stöðum í lífinu.
Ég hef trú á því að þær hefðir sem maður elst upp við fylgi manni um ókomna tíð, þegar maður er farin að heiman og farin að skapa sín eigin jól.
Ég vil enda þetta á því að óska öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári.
Særós Ester Leifsdóttir.
Læt hér fylgja með eina góða tertuuppskrift.
Sælkeraterta
(2 botnar)
5 stk eggjahvítur
5 dl púðusykur ljós
1 msk kartöflumjöl
50 gr döðlur – britjað smátt
50 gr súkkulaði – britjað smátt
Aðferð
Eggjahvítur og púðusykur þeytt vel saman. Síðan er kartöflumjölið sett útí, döðlur og súkkulaði – sett í 2 tertumót og bakist við 95°C – 120°C í 40-45 mín / kælið botnana.
1/4 þeyttur rjómi og jarðaber sett á milli botnanna, skreytt með ávöxtum t.d. kiwi, jarðaber og bláber. Gott er að láta tertuna vera í ískáp í 2-3 klst.



Skrifa athugasemd