Jólin hérna í Færeyjum eru í raun svipuð og jólin í Miðtúninu
Jólagestur okkar 16. desember er Birnir Smári Hauksson
Á mínum yngri árum vorum við fjölskyldan í Miðtúninu hjá ömmu. Þar vorum við fjölmenn og mikið borðað af ýmsum krásum og auðvitað ofsalega mikið af pökkum. Seinna fórum við svo að halda jólin á Vogabrautinni. Hefðirnar voru aðvitað svipaðar frá ári til árs: skata á Þorláksmessu, hangikjöt og hamborgarahryggur á aðfangadag og auðvitað minnkaði pakkafjöldinn, því þá vorum við orðin færri.
Jólin hérna í Færeyjum eru í raun svipuð og jólin í Miðtúninu, nema hérna er borðuð önd á aðfangadag og rastkjöt á jóladag. Oft er fjölmennt á aðfangadag því að þá hittist stórfjölskyldan heima hjá ommu og abba og auðvitað afskaplega gaman að sjá börnin opna pakkana.
Ég verð ekki var við mikið jólastress hjá færeyjngum, þeir hafa einhverja ró yfir sér. Ég hef fengið að vita að þegar breskir hermenn voru hérna á stríðsárunum hafi þeir kallað landið “land of maybe´s” en hugsunarhátturinn er svolítið: “ef það þarf ekki að gera það í dag, geri ég það á morgun” og það hentar mér ágætlega...
Við erum nýbúin að baka smákökur hérna í húsinu og það var mikið bakað enda mikið af fólki eða 4 barnafjölskyldur, ofninn á fullu í 10 tíma og er ég að hugsa um að senda eina uppskrift af frábærum smákökum.
Daim smákökur. (50-60 stk)
200 gr. hreint smjör (kalt)
200 gr. sykur
250 gr. hveiti
3 tsk. lyftiduft
1 tsk vanillusykur
hnífsoddur af hjartarsalti
3-4 msk. sýróp
síðan er voðalega gott að setja ca. 100 gr. af hökkuðum möndlum eða hnetum í líka (má sleppa)
(skraut: ca. 75 gr. af súkkulaði)
Allt hrært saman, og deiginu skipt í 6 hluta og hverjum hluta rúllað út í plötulengd (u.þ.b. 35 cm) og setjið 3 lengur á hverja plötu (munið bökunarpappír). Þrýstið kökurnar aðeins niður, og setjið svo í ofninn.
Bakað við 200°C í tæpar 10 mínútur (þangað til að kantarnir hafa fengið lit)
Skerið kökurnar í “tígla” (ca. 8-10 úr hverri lengju) þegar kökurnar koma úr ofninum ath. skerið kökurnar heitar.
Bræðið súkkulaðið og sprautið yfir kökurnar “sikksakk”
Bestu jólaheilsanir frá okkum her á Strøndum.
Birnir Smári Hauksson



Skrifa athugasemd