Jólagestir
Svava Herdís Jónsdóttir
Svava Herdís Jónsdóttir
Mynd Sigurður Mar

18.12.2009 Jólagestir

En jólin eru í minni minningu afskaplega yndislegur tími róleg, áhyggjulaus og góð.

 

Ég veit hreinlega ekki af hverju í ósköpunum ég tók að mér að skrifa þessa jólaminningu þar sem ég kemst hreinlega ekki yfir helminginn af því sem ég þyrfti að gera þessa dagana en jú  svo mundi ég að ég hafði ekki tíma til að segja nei!
En jólin eru í minni minningu afskaplega  yndislegur tími róleg, áhyggjulaus og góð. Þau komu bara stress og hljóðlaust - svo allt öðruvísi en mér finnst allt vera í dag.
En ósköp var nú tíminn samt stundum lengi að líða og kannski sérstaklega á aðfangadag, þá tóku gjafir og tilhleypingar alveg óheyrilega langan tíma og svo þurfti að mjólka um kvöldið alveg eins og á virkum degi !
Fyrstu minningar mínar um jólin eru sérstaklega tengdar ÓTRÚLEGA  spennandi og ÓTRÚLEGA stórum kassa sem kom alltaf fyrir jólin frá uppáhalds frændanum, honum Páli bróður pabba, sem átti heima alla leið suður í Reykjavík. Sá kassi innihélt alltaf mikið af fallegum og framandlegum gjöfum enda keyptar í sjálfri höfuðborginni. Ég á reyndar ennþá bók sem kom upp úr einum svona kassa sem heitir Mús og kisa, inn í henni stendur skrifað af frænda: Jólin 1971 -Til Svövu -Frá Páli frænda.
Hún er  semsagt að verða 40 ára gömul og afskaplega dýrmæt í mínum augum.
Eins eru mér afskaplega minnisstæðir kjólarnir sem mamma saumaði fyrir jólin og þá sérstaklega einn úr himinbláu efni sem var eins og hellt hefði verið glimmer yfir, hann glitraði allur - þvílík dýrð.          .
Og svo þau yndislegu jól sem við systkinin fengum í jólagjöf plötuspilara frá hálfsystkinum okkar í Vík. Þaðan komu margar góðar gjafir en þessi sló öllu við, með henni fylgdi jólaplata með Ríó tríó sem ég held að hafi heitið Jólabjöllur. Á þessa plötu hlustuðum við Palli bróðir  stanslaust næstu daga meðan við lékum okkur að nýja dótinu.
Kassi með rauðum eplum sem ilmuðu dásamlega fram í kalda búri - Malt og Appelsín á litlum glerflöskum – hangikjöt laufabrauð og jólakveðjur í útvarpinu á Þorláksmessu - þetta eru jólin fyrir mér.
Þegar ég er að krota þetta finnst mér allt í einu að ég hljóti að vera orðin rosalega gömul. Nú fá börnin leikjatölvur og gsm í jólagjöf og þykir ekki tiltökumál.
Það var ekki einu sinni sjónvarp heima fyrr en ég var komin að fermingu,  og vel man ég eftir þegar verið var að leggja rafmagnið - fram að því gekk mótor út í skúr með miklum fyrirgangi og svo var slökkt á takka inni þegar tekin var ákvörðun um að fara að sofa.
Ég á auðvitað ennþá eftir að gera allt sem var ógert þegar ég settist niður til að skrifa þetta en það verður bara að hafa það,  jólin koma víst fyrir því. Með hangikjöt og laufabrauð, malt og appelsín, jólabók og vonandi frið í hjarta.
Hornfirðingum nær og fjær óska ég gleðilegra jóla.

Svava Herdís Jónsdóttir
 
Ótrúlega auðveldar uppáhaldskökur
 
Flórentínur
400 gr smjör   (ég nota smjörlíki finnst það betra)
500 gr hveiti
150 gr flórsykur
1 bolli súkkulaðispænir
Allt hnoðað vel saman rúllað upp og skorið frekar þunnt og raðað á plötu !
Bakað við meðalhita í 8-10 mínútur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica