Jólagestir
Fjölskyldan í Miðtúni 8
Fjölskyldan í Miðtúni 8
Mynd 1 af 2
1 2

15.12.2009 Jólagestir

Það er margs að minnast frá jólum fyrri ára og ég gæti sagt frá svo mörgu.

Jólagestur okkar 15. desember er Snæfríður Svavarsdóttir

 

Það er margs að minnast frá jólum fyrri ára og ég gæti sagt frá svo mörgu. Ég gæti sagt ykkur frá því þegar ég komst í machintosið hennar Guðnýjar (sem hún hafði falið á besta stað) og svo faldi ég mig undir sófanum þar sem enginn sá mig og át alla bestu molana. Bréfunum tróð ég svo í rifur undir sófanum sem voru sérstaklega til þess gerðar. Bréfin fann ég svo mörgum árum seinna. Ég gæti líka sagt ykkur frá jólunum og áramótunum þegar það varð rafmagnslaust í öllum bænum, nema í nokkrum húsum í kring um Lars Imsland. Hann átti nefnilega ljósavél sem nágrannarnir fengu að njóta með honum. Þá var hægt að elda mat og horfa á sjónvarp en húsin voru lýst upp með kertaljósum. Ég man líka eftir jólunum þegar pabba fannst ég nógu stór til að kveikja á öllum kertastjökunum á ganginum. Hann hafði smíðað þá alla og svo hékk einn til tveir við hverjar dyr í holinu, 9 stykki takk. Svo gæti ég líka sagt ykkur frá jólunum þegar allir í fjölskyldunni voru saman á aðfangadag. Mig minnir að við höfum komist upp í að vera 14 þegar við vorum flest. Þá var passað upp á að allir fengju það sem þeim fannst gott að borða og aðalréttirnir voru að lágmarki fimm. Það var nú meira fjörið, mikið hlegið og grínast við matarborðið og á meðan vaskað var upp þá settist Haukur við orgelið og spilaði jólalög. Allir tóku vel undir. Líka þeir sem voru í eldhúsinu. Svo man ég eftir því að einn aðfangadag þegar klukkan var að verða fimm þá byrjaði að snjóa. Það var auðvitað ótrúlega jólalegt. Allt í einu stökk pabbi inn i herbergi, náði í eina af slæðunum hennar mömmu, mig minnir að það hafi verið rauð slæða en kannski var hún svört og fór svo með hana út fyrir dyr. Þar lagði hann slæðuna í grasið og lét snjóa á hana í smá stund. Ég skildi nú ekkert hvað í ósköpunum hann var að gera með þessu en þegar hann kom með slæðuna inn þá sýndi hann mér hvernig hægt var á þennan hátt að skoða hvert snjókorn fyrir sig. Þarna lágu þau á slæðunni eins og kristallar og mikið lifandi skelfing voru þau falleg. Og engin tvö voru eins. Ég gat séð kristallana og formin á þeim og talið armana á þeim. Sum þeirra höfðu 6 arma, önnur 7 og enn önnur 8. Ég gæti kannski að sagt ykkur frá silfur-jólatrénu okkar frá Englandi sem var svo ljótt fyrst en varð svo fallegt þegar búið var að skreyta það. Eldri dóttur minni finnst það jólalegast af öllum trjám.

En kannski segi ég ykkur bara frá því hvernig við höfum þetta í nútíðinni. Sú hefð er komin á hjá okkur, þökk sé Björgu systur, að við förum á aðventunni í Hellisholt og sækjum okkur jólatré. Við förum eins mörg og við komumst í bílana, tökum með okkur heitt súkkulaði og smákökur og veljum okkur svo tré sem passar í litlu stofuna okkar. Kippum svo með nokkrum grenigreinum í leiðinni. Það hefur alltaf verið mjög kalt í þessum ferðum, stundum skautafæri og næstum alltaf snjór. Núna eigum við eftir að sækja tréð okkar og vonandi verður kominn snjór þegar við förum. Á aðfangadag er mamma með okkur og svo hefur verið síðan ég fór að búa með Stebba og á meðan Einar frændi var og hét þá kom hann líka til okkar.

Jólin eru í mínum huga yndislegur tími og ég hlakka alltaf til aðfangadags, að vera í rólegheitunum með fjölskyldunni. Þessi jólin verða ekki eins og önnur jól þar sem Björg systir lést á árinu. Það verður allt með öðrum hætti en áður en við munum að sjálfsögðu laga okkur að þessum breytingum eins og öðrum. Nú kveiki ég á einu kerti fyrir hana og öðru fyrir pabba, faðma innilega þá sem ég á ennþá og held gleðileg jól.

 

Megið þið öll eiga gleðileg jól hvar sem þið eruð og vonandi fer lífið mjúkum höndum um ykkur.

Snæfríður Svavarsdóttir

 

Að lokum gef ég ykkur uppskrift af Gullhnetum sem eru auðveldar og dásamlega góðar. Úr uppskriftinni ættu að nást 25-30 stk.

150 g sykur

3 egg

230 g kókosmjöl

100 g súkkulaði

 

Hitið ofninn í 200°C. Sykur, egg og kókosmjöl sett í pott og hitað við vægan hita þar til allt hefur samlagast vel og blandan er vel heit. Þá eru búnir til toppar og þeir settir á plötu með bökunarpappír. Gott er að nota blauta fingur því deigið er klístrað. Topparnir eru bakaðir í um 15 mín. Þegar kökurnar hafa kólnað er botninum dýft í brætt súkkulaðið. Geymið kökurnar í kæli.

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica