Jólagestir
Jón Kristján Rögnvaldsson_mynd
Jón Kristján Rögnvaldsson_mynd
Kára Stein og Þórdís Júlía, börn Jóns Kristjáns og Eyrúnar

12.12.2009 Jólagestir

Gömul saga og ný

Jólagestur okkar 12. desember er Jón Kristján Rögnvaldsson

Mikið var ég hissa þegar ég var beðinn um að vera jólagestur í ár, og það fyrsta sem ég hugsaði var að það væri ekki frá mörgu að segja,  jólin voru afskaplega svipuð frá ári til árs en alltaf ánægjuleg og þægileg. Það eina sem breyttist á milli ára var mannskapurinn sem sat við matarborðið þegar aðfangadagskvöld rann upp. Ég hugsa að það sé ekki á neinn hallað þegar ég fullyrði að mamma hafi séð um jólaundirbúninginn frá A-Ö enda var alltaf allt eins og það átti að vera og aldrei klikkaði neitt, nema þegar við pabbi náðum að hafa upp á öllu konfektinu og klára það á undan áætlun í hinu árlega óopinberlega jólakapphlaupi í leynikonfektbirgðirnar hennar mömmu. Pabbi vann yfirleitt enda hokinn af reynslu.

Húsið var alltaf ofboðslega mikið skreytt að innan og ljómaði af hlýju ásamt því að ilma af smábökubakstri og laufabrauðsgerð en framan af voru hundraðir laufabrauða steikt og skorin af mikilli nákvæmni og metnaði. Til að tryggja ákveðinn lágmarksskammt af laufabrauði var gjarnan skorið út stórt N eða J þannig að ekki fór á milli mála hver átti umræddan bita.

Í aðdraganda jólanna var mikið borðað, sem og yfir jólahátíðina og eftir jólin og því tengi ég þennan tíma mjög sterkt við alls konar góðgæti, sérstaklega þó hamborgarhrygg, hangikjöt og hangikjötssalat og perutertur. Hefði ég fengið að ráða hefðum við haft perutertur í morgunmat og hádegismat og hrygg í kvöldmat alla daga, alltaf. Það var ekki óalgengt að sjá til mín með tertudisk, jólaöl og bók en ég las yfirleitt töluvert yfir hátíðirnar og ef ég var ekki með bókina við höndina var ég líklega að horfa á sjónvarpið en ég fæ enn í dag sæluhroll þegar ég horfi á National Lampoon‘s Christmas Vacation.

Ég var mikið pakkabarn og fékk stundum forskot á sæluna á meðan verið var að undirbúa matinn, hún Eyrún mín vill nú reyndar meina að ég sé ennþá jafnmikið fyrir pakkana og börnin í dag svo það á kanski ekki heima í endurminningum. En þar komum við að jólunum í dag, því eins mikið og ég minnist liðinna jóla með hlýju eru jólin núna ekki síður spennandi í dag með nýjum fjölskyldumeðlimum sem eru að uppgötva jólin og allt það sem hvílir bara í minningunni hjá okkur (hálf) fullorðna fólkinu. Í dag reynum við að gera mikið úr aðventunni með börnunum, skreytum og spilum jólalög, bökum og borðum piparkökur og förum á jólaskemmtanir en það er svo gaman að sjá þau upplifa sömu hlutina og við gerðum þegar við vorum yngri. Með því að upplifa jólin aftur í gegnum þau rifjast jólin upp frá fyrri tíð og einhvern veginn er maður farinn að njóta allra jólanna í einu.

Það getur stundum verið snúið að eiga heima úti á landi, hundruðum kílómetra frá nánustu fjölskyldu en það er aldrei eins snúið og um jólin. Nú erum við búin að prufa að fara norður til fjölskyldu minnar, suður til fjölskyldunnar hennar Eyrúnar og í fyrra héldum við jólin hér heima. Við erum á ákveðnum krossgötum með jólahaldið og eins mikið og það togar í okkur að dveljast með fjölskyldum okkar um jólin finnum við líka þörfina til þess að skapa okkar eigin hefðir heima hjá okkur með börnunum okkar. Vitaskuld er ekki alltaf hægt að viðhalda öllum hefðunum frá bæði minni fjölskyldu og fjölskyldu Eyrúnar svo að nú dugir ekkert annað en velja og semja um þær hefðir sem okkur þykir vænst um, ekkert er ómissandi nema það að vera saman, jú og National Lampoon‘s Christmas Vacation ásamt sneið af perutertu.

 

Jólakveðjur, Jón Kristján Rögnvaldsson

 

Peruterta

Botn.
3 egg
100 gr sykur
1 dl hveiti
2 msk kartöflumjöl
½ tsk lyftiduft.

Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Sigtið þurrefnin og blandið þeim varlega saman við. Bakið í lausbotna formi  við 175-200 ° C  í ca 20 mín.

 

Krem.
100 gr Síríus suðusúkkulaði (konsum)
1 msk sykur
3 eggjarauður
3 dl rjómi
1 stór perudós
2 pipp súkkulaði
Opal piparmyntuhnappar.

Þeytið rjómann, bræðið súkkulaðið í vatnsbaði. Þeytið saman eggjarauðurnar og sykurinn, blandið rjómanum saman við og síðan bræddu súkkulaðinu.

Bleytið í botninum með perusafa, raðið perunum á svampbotninn, dreifið brytjuðum Pipp súkkulaðibitum ofaná perurnar,  þekið allt saman með súkkulaðirjómanum.  Skreytið með opal piparmyntuhnöppum ef  vill. Gott að gera sólarhring áður en borin fram og geyma í kæli.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica