Minnisstæðustu jólin mín eru þegar ég fékk skautana
Jólagestur okkar 10.desember er Kristín Gísladóttir
Ég er uppalin í Grundarfirði og er elst af fimm systkinum. Mesti spenningurinn var á Þorláksmessu. Dagurinn byrjaði með skötuveislu í hádeginu, skatan var vel kæst. Hún var borðuð stöppuð með kartöflum og hamsatólg og maður táraðist því hún var svo vel kæst. Svoleiðis þykir hún best fyrir vestan. Á Þorláksmessu var hangikjötið soðið og steiktar hveitikökur sem var borðað á jóladag en við fengum alltaf að smakka á hangikjötinu með hveitikökum á Þorláksmessu. Þá gaf pabbi alltaf hröfnunum hrátt kjöt sem hann henti upp á þak. Það gerði hann því hann trúir því að sá sem gefur hröfnunum njóti verndar þeirra ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum og heimilið.
Ég hafði aldrei séð laufabrauð fyrr en ég kom á Höfn sem er notað svipað og hveitikökurnar heima. Við vorum böðuð í stórum bala á Þorláksmessu þar sem það var ekki bað heima á Grundargötunni. Þegar ég var orðin stálpuð þá hjálpaði ég við að baða og klæða yngri systkini mín í ný náttföt sem mamma saumaði fyrir jólin á nóttinni. Þegar búið var að baða þá var farið að skreyta jólatréð og hengja upp músastigana sem við systkinin höfðum búið til.
Minnisstæðustu jólin mín var þegar ég fékk skautana. Áður en ég fékk þá fékk ég lánaða skauta hjá nágrannanum sem voru gamlir og slitnir. En mínir voru mjallahvítir og háir listaskautar. Ég verð að segja frá sögunni á bak við skautana en hann pabbi er ansi stríðinn. Þegar ég fékk pakkann á aðfangadag sá ég að skautar kæmust ekki með nokkru móti í pakkann. Þegar ég opna hann þá var þetta burstasett sem ég fékk árinu áður frá Nonna frænda sem hafði verið geymt uppi á háalofti með jólaskrautinu. Þá kom stór skeifa og tárin brutust fram. Þá stóð pabbi upp og náði í pakkann bak við stólinn með þessum líka flottu skautum.
Á aðfangadagskvöld var alltaf rjúpa frá því að ég man eftir mér og heimalagaður ís. Hér á eftir er uppskrift af hveitikökunum hennar mömmu.
Hveitikökur
5 bollar hveiti
5 teskeiðar lyftiduft
1 ½ teskeið salt
Mjólk / súrmjólk
Hnoðað og bleytt með mjólk, passa að deigið verði ekki of blautt.
Skorið í bita og búnar til hringlóttar kökur um 1 ½ cm að þykkt.
Stungnar með gaffli og steiktar á þurri pönnu.
Gott er að setja þær inn í bakaraofn í 5 mínútur til að minnka loftið í þeim.
Jóla kveðja
Kristín Gísladóttir á Horni.




Skrifa athugasemd