Mér til mikillar undrunar og gleði þá átti ég nánast alla pakkana.
Jólagestur okkur 6. desember er Sandra Sigmundsdóttir
Ég ólst upp í sveit í Eyjafirði með kýr, hesta og kindur. Fór ég alltaf í fjós með mömmu og pabba að hjálpa til. Þegar ég var nógu gömul til að vera ein inni fékk ég að sleppa við kvöldmjaltirnar á aðfangadag. Fann ég mér ýmislegt til dundurs til að reyna að láta tíman líðan hraðar, því spenningurinn var í hámarki. Ein jólin þegar ég var 6 ára fékk ég að vera inni og leika mér á meðan mamma og pabbi voru að mjólka. Ég fór auðvitað að kíkja aðeins á pakkana undir jólatrénu og skoða hvað ég ætti marga af þeim. Mér til mikillar undrunar og gleði þá átti ég nánast alla pakkana. Mér fannst samt hálf leiðinlegt fyrir mömmu og pabba hvað þau fengu fáa pakka og ákvað ég því að bæta aðeins úr því. Týndi ég saman styttur, bækur og annað dót, pakkaði því inn í afgangs jólapappír og merkti pakkana ýmist mömmu eða pabba, frá Stekkjastaur, Stúf og öðrum jólasveinunum. Þegar mamma og pabbi komu inn úr fjósi voru þau aldeilis hissa þegar þau sáu hvað pökkunum hafði fjölgað og sagðist ég ekkert vita um þetta því ég hafi verið inni í herbergi að leika mér allan tíman. Þegar búið var að borða jólamatinn og byrjað var að opna pakkana hlógu mamma og pabbi þegar þau opnuðu gjafirnar frá jólasveinunum. Pabbi fékk styttur sem mamma átti og mamma fékk bækur sem pabbi átti. Allan tíman hélt ég fram sakleysi mínu og var ég ægilega ánægð með góðverkið.
Alla mína tíð höfum við nánasta fjölskyldan verið saman á jólunum en í ár verður mikil breyting á. Ég er komin með fjölskyldu og mamma lést í bílslysi í ágúst. Ég, Kristinn og Sessilía Sól verðum á Akureyri yfir jólin hjá pabba og verður Sigrún systir líka með okkur. Munum við njóta þess að vera öll saman og fagna hátíð ljóss og friðar.
Jólakveðja
Sandra Sigmundsdóttir
Súkkulaðibitakökurnar hennar mömmu
3 bollar hveiti
230 gr. smjörlíki
2 egg
½ tsk. salt
1 bolli púðursykur
1 bolli sykur
1 tsk. natrón
100 gr saxað suðursúkkulaði/spænir




Skrifa athugasemd