Aðventan og jólin eru yndislegur tími og hafa alltaf verið það í minningu minni.
Jólagestur okkar 5. desember er Guðbjörg Garðarsdóttir
Aðventan og jólin eru yndislegur tími og hafa alltaf verið það í minningu minni. Fyrstu árin eftir að ég flyt á Höfn með pabba og mömmu þá fórum við til afa og ömmu í Þykkvabæinn og á Hvolsvöll á öðrum jólum, þar sem pabbi var sérleyfishafi fór hann alltaf áætlun á rútu frá Reykjavík til Hafnar á Þorláksmessu svo áttum við aðfangadag og jóladag heima en fórum svo áætlunina annan og stoppuðum yfir áramótin, svo var haldið heim aftur annan í nýju ári. Ferðarnar gengu misvel og nutum við oft gestrisni Öræfinga mun lengur en ætlun var, þá var minna um rigningar en meira um hörkur í desember og janúar (allavega í minningunni) og maður var enga 5 tíma á milli heldur mikið nær 10-12 og jafnvel lengur.
Á þessum tíma var líka vakað fram á kvöld á aðventunni með mömmu við að sauma jólagjafir, man ég sérstaklega eftir náttkjólum sem frænkurnar fengu og ég látin máta, þá smíðaði pabbi líka vörubíla handa frændunum.
Eftir að okkur systrunum fjölgaði þá héldum við jólin alltaf heima hjá okkur og var mamma langt fram á kvöld að sauma á okkur allar jólafötin og var maður alltaf jafn spenntur yfir því, ýmsar útfæslur, hver annari flottari. Jólasveinninn sá svo alltaf um að gefa okkur ný nærföt á aðfangadagsmorgun og þá vorum við að mestu klárar, reyndar er ein jólasveinaheimsókn mér mjög fersk í minni en það var líka vegna þess hvað mér fannst jólsveinninn skrifa einstaklega illa þar sem hann skildi eftir miða í skónum mínum út í glugga þar sem hann var ekki sáttur við hegðun mína þann daginn og óskaði eftir bótum þar á. Aðfangadagur litaðist af kátínu, tilhlökkun og lykt af tekkolíu þar sem síðasta yfirferð með afþurrkunarklútinn á tekkborðið var tekinn um morguninn svo tók við að græja baðið og greiða því þetta þurfti allt að vera búið fyrir 17:30 þar sem mamma söng alltaf með kirkjukórnum og við fylgdum á eftir og þegar búið var að syngja Heims um ból þá voru jólin komin og er það þannig enn í dag.
Jólin á mínu heimili í dag eru blanda af hefðum frá mér og Steina, skötugleðin hjá tengdó á þorláksmessu er alveg ómissandi og möndlugrauturinn svo á aðfangadagskvöld, ein er þó hefðin sem við gerðum okkur í sameiningu og er það jólamaturinn, þar sem Steini var vanur reyktu svíni hjá mömmu sinni og ég nýju hjá mömmu minni, þá ákváðum við að hafa rjúpur þar sem við erum bæði mikið fyrir villibráðiðna og klikkar hún aldrei, nema auðvitað árið sem ekki mátti veiða, en þá koma bara jólahesturinn úr Jökluldalnum í staðinn. Tilstandið á aðventunni með börnunum er svo skemmtilegt, baksturinn, skreytingarnar og er maður ekki síður spenntur yfir heimsóknum jólasveinanna. Yndislegast finnst mér þó alltaf hvað allir eru glaðir og jákvæðir í desember og nýtur maður þess að vera innan um fólk á allskyns jólasamverum, tónleikum og öðrum uppákomum sem eru í boði. Njótum þess að vera til og verum góð við hvort annað.
Gleðileg jól til ykkar allra.
Kveðja Guðbjörg Garðarsdóttir
Læt fylgja með ármótakokteilinn (forréttinn).
Sem er ekki í neinum spes mæli-einingum bara smakkað til eftir því hvað margir eru hverju sinni.
t.d
500gr. Rækjur eða smátt skorinn humar
200 gr. vínber skorin í tvennt án steina
½ krukka niðursoðnar paprikkur
1 stk camembert
Sósa
200gr Mæjónes
100gr Sýrður rjómi
1/3 krukka Mangochutney (sterkt er betra)
½-1 dl Hvítvín
1 ½ dl Tómatsósa eða Heinz chilli sósa (sterkara).
Sósan er hrærð saman, gums sett útí og gott að láta standa aðeins, kálblað sett í skálar og koktelinn, skreytt með sítrónu og steinselju, borið fram með ristuðu brauði.




Skrifa athugasemd