Jólagestir
Kristín Jónsdóttir
Kristín Jónsdóttir

04.12.2009 Jólagestir

Jólin mín

Jólagestur okkar 4.desember er Kristín Jónsdóttir

 

Ég hélt fast í jólahefðir langt fram eftir aldri og var sjálfsagt óþolandi á köflum. Mér fannst jólaskrautið alltaf eiga að vera á sínum stað og eftir að ég flutti að heiman og foreldrar mínir voru búnir að skreyta 'heima' tók ég mig til þegar ég kom í heimsókn og færði skraut á 'rétta staði'. Við systkinin skreyttum jólatréð á Þorláksmessukvöld og einatt kom það fyrir að yngri systkinin settu skraut á vitlausa grein og ég lagaði það. Halldóra reyndi eins og hún gat að þóknast mér í þessum skreytingamálum, ég man líka eftir þegar Jagga og Jón Karl voru svo lítil að þau settu kanski allt skrautið á eina grein! Og ég reyndi eins og ég gat og rúmlega það að stjórna þessu. Er það ekki annars hlutverk frumburðar? Hahaha....!

Í minningunni var alltaf snjór á jólunum, mikil dýrð og gleði. Margir pakkar undir stóru stóru gervijólatrénu sem ein jólin var allt í einu orðið svo pínulítið! Það gat bara ekki verið að þetta væri sama tréð, þetta tré var miklu minna en ég! en auðvitað hafði ég bara stækkað. Einu sinni, ég hef verið 6-7 ára, var ég ekki sofnuð þegar jólasveinninn kom að gefa mér í skóinn, ég heyrði fótatakið og andardráttinn þegar hann kom inní herbergið mitt, ég klemmdi aftur augun, dauðhrædd um að sveinki myndi hætta við að gefa mér eitthvað fallegt í skóinn ef hann sæi að ég væri ennþá vakandi og ekki þorði ég fyrir mitt litla líf að kíkja í skóinn fyrr en morguninn eftir. Þessari raunasögu varð ég að deila með Kalla og Hrefnu og hljóp því niður í Hagatún daginn eftir bara til þess að segja þeim frá, það var ekki fyrr en löngu seinna, að ég áttaði mig á sposka svipnum og glottinu á þeim þegar ég sagði þeim frá þessari svakalegu lífsreynslu minni!

Ég er ekki eins fastheldin á hefðir í dag, hef bætt inn nýjum og finnst það bara gott. Jólaundirbúningurinn á heimilinu byrjar í upphafi aðventu, ég baka nokkrar kökusortir sem við borðum á aðventunni, þríf eitthvað aðeins svona hér og þar og hendi upp jólaljósum. Ég nota kertaljósin meira í desember og reyni bara að hafa það huggulegt og rólegt með kerti og lampaljós um allt hús. Svo er skreytt smátt og smátt og á Þorláksmessu lendir það orðið á mér að skreyta jólatréð :) ekki leiðist mér það nú að dúllast við að skreyta það og láta hugann reyka aftur til þess tíma þegar ég var að springa úr 'ákveðni' og gargaði á systkini mín og stjórnaði því með harðri hendi hvernig jólatréð átti að líta út, frekjudollan ég.

Í kringum hádegi á aðfangadag hefur sá siður verið, alla mína tíð, að mamma er með kaffihlaðborð heima sem svignar undan kræsingum.

Þegar við bjuggum í Holti, (efst í Hagatúni) niðri hjá honum Valda Fil, kom hann alltaf niður á aðfangadag, færði mér pakka og fékk sér kaffi. Það var einmitt á aðfangadag þegar ég var rétt rúmlega eins árs og kaffiboð í Holti að pabbi kenndi mér að drekka af stút hahaha.... þá var Egils-appelsínið og maltið bara til í litlum glerflöskum og hefur mér sjálfsagt þótt það sport að drekka úr flöskunni. Þegar við fluttum svo á K-18 hélst sá siður að Valdi kom til okkar og færði mér jólapakka, sem alltaf innihélt mikið af súkkulaði og kíkti inn í kaffið góða hjá mömmu og alltaf var jafn spennandi að fylgjast með þegar hann kom því hann labbaði yfirleitt hringinn í kringum húsið og kom inn um svaladyrnar og okkur krökkunum fannst hann svo skondinn þessi karl að nota ekki bara útidyrnar eins og allir aðrir! Strákarnir sem bjuggu heima hjá okkur í gamla daga komu inn í kaffi og allir sem kíktu með kort eða pakka héldu ekki svangir áfram, því nóg var af kræsingum og alltaf glatt á hjalla og tími tekinn í létt spjall, það var aldrei neitt stress og í minningunni höfðu allir endalausann tíma á jólunum. Einn af nýjum siðum hjá mér og okkur heima eru rjúpurnar, ef það er þá hægt að flokka þær undir 'siði' því ef ekkert veiðist af rjúpu er auðvitað ekki hægt að hafa þær í jólamatinn en þetta er viss spenningur og eiginlega ómissandi undirbúningur jóla, að ganga á fjöll og ná í matinn sjálfur, stundum hefur það gengið vel og stundum brösulega. það var alltaf hamborgarahryggur eða byonskinka í matinn heima hjá mömmu og pabba og ég hef haldið í þann sið og elda því tvíréttað þau jól sem veiði gengur vel og allir eru heima.

Ég hef stiklað á stóru. Að lokum vil ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla, farsældar og friðar á árinu sem senn gengur í garð.

Og ég læt fylgja uppskrift að heitu brauði sem er ómissandi á jólakökuhádegishlaðborðið hennar mömmu;

 

Heitt brauð m/fyllingu

 

1 stk fléttubrauð með birki frá Jóni bakara

1 dós sýrður rjómi

1lítil dós majones

2 tsk sinnep

½ tsk aromat krydd

8-10 sneiðar skinka, skorin í bita

¼ lítill púrrulaukur, saxaður

¼ agúrka, skorin í bita

3 harðsoðin egg, söxuð

 

Hræra saman sýrðum og majó

sinnep og krydd bætt útí

skinka, laukur, gúrka og egg hrært saman við

Brauðið sneitt, en látið hanga saman á botninum

Salatið látið á milli sneiða, pakkað í álpappír (ég loka ekki allveg yfir brauðið, finnst það betra)

Bakað í ofni við 180°c í 30-40 mín

Borið framm heitt

 

Jólakveðja

Kristín Jónsdóttir

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica