Jólagestir
Gunnlaugur Bragi Björnsson
Gunnlaugur Bragi Björnsson

03.12.2009 Jólagestir

Nú nálgast tuttugustu og fyrstu jólin óðfluga.

Jólagestur okkar 3. desember er Gunnlaugur Bragi Björnsson

 

Nú hef hef ég staðið af mér amstur og stress 20 jóla.  Mínum fyrstu jólum fagnaði ég um það bil 6 mánaða gamall og þeirra síðustu 19 ára gamall og 6 mánuðum betur. Nú nálgast tuttugstu og fyrstu jólin óðfluga.

Öll hafa þessi tuttugu aðfangadagskvöld, undirbúningur fyrir þau og andleg úrvinnsla á eftir verið með ósköp svipuðu sniði þó lítið muni ég eftir þeim fyrstu. Öllum mínum jólahátíðum hef ég fagnað í foreldrahúsum á Sunnubrautinni á Höfn. Að vísu hafa heimilismenn verið mis margir, flestir sjö talsins en fæstir aðeins þrír.

Rútínan hefur ávallt verið sú sama. Á afmælinu hans pabba, þann 19. desember, eru jólaljós jafnan sett í glugga hússins en sökum einlægs jólaáhuga fékk ég þó stundum að setja útiseríur upp örlítið fyrr. Á Þorláksmessu var skatan borin fram með viðhöfn og borðuð með bestu lyst flestra heimilismanna. Jólatréð hefur nú ekki alltaf verið keypt mjög snemma og hefur stundum verið um hálfgert horntré að ræða (það er að partur af trénu er það barrlaus að eina lausnin er að snúa honum útí horn!). Á Þorláksmessukvöld hefur tréð jafnan verið sótt út í bílskúr og því komið fyrir í stofunni til skreytingar. Allt frá unga aldri hef ég haft mjög gaman af því að skreyta jólatréð. Eitt árið, líklega þegar ég var um  5 ára aldur, tók ég að mér að sjá alfarið um þetta krefjandi verkefni ásamt frænku minni sem þá var í heimsókn hjá okkur. Nokkrum klukkustundum síðar var verkinu og lokið og vorum við óskaplega stolt af afrekinu. Morguninn eftir hafði skreytingin þó eitthvað breyst, gamlir spariskór sem okkur fannst svo óskaplega snyrtilegt að hengja á tréð voru horfnir, sömuleiðis voru kerti og ýmsir aðrir smáhlutir sem við höfðum komið fyrir á trénu ekki lengur á sínum stað. Enn þann dag í dag er vel fylgst með mér þegar jólatréð er skreytt til að fyrirbyggja slíka uppákomu.

Svo er það sjálfur aðfangadagur. Þegar ég var yngri vaknaði ég gjarnan mjög snemma á aðfangadag, tók fram jólaskraut til að hengja á veggi og í loft og skreið síðan uppí til foreldra minna og óskaði þeim gleðilegra jóla – ég átti mjög erfitt með að skilja afhverju í ósköpunum jólin byrjuðu ekki fyrr en klukkan 18!

Um hádegisbil var búið að koma jólaskrauti fyrir um allt hús, búið að reita rjúpurnar og mamma búin að koma sér fyrir við eldavélina og byrjuð að undirbúa kræsingarnar. Eftir hádegi hefur síðan ávallt tekið við bíltúr um allan bæ með jólakort og pakka. Hér áður fór ég þær ferðir með bróður mínum en nú síðust jól var ég í fyrsta sinn eldri aðilinn í þeirri ferð og var þá 8 ára systursonur minn með mér.

Klukkan hálf sex áttu yfirleitt allir eftir að fara í jólabaðið nema mamma og var því stíf dagskrá þann hálftíma svo að aðrir næðu að skola sig áður en jólin hringdu inn í útvarpinu klukkan sex.
Þá sest fjölskyldan niður og snæðir jólamáltíðina saman á meðan hlustað er á messuna í útvarpinu. Fyrir ekki svo mörgum árum átti ég mjög erfitt með að skilja hvernig foreldrar mínir gátu borðað svona hægt og gefið sér tíma til að vaska upp eftir matinn – vitandi af öllum þessum spennandi pökkum í stofunni! Með einhverjum undraverðum hætti hefur mér þó tekist að temja mér sama háttalag og eru pakkarnir ekki opnaðir af sömu áfergju og hér áður þó að vissulega sé alltaf forvitnilegt að vita hvað í þeim leynist.

Ég enda þessa upprifjun mína á jólahefðum með uppskrift af einni af mínum uppáhalds smákökum en þær kallast á mínu heimili kurltoppar.

 

Með óskum um góða aðventu og gleðilega jólahátíð,
Gunnlaugur Bragi Björnsson

 

Kurltoppar:
3 eggjahvítur / 200 g. púðursykur / 150 g. rifið eða mulið rjómasúkkulaði eða súkkulaðispænir / 2 pokar nóa lakkrískurl (minni gerðin)

Stífþeytið eggjahvítur og sykur, annað sett varlega útí.
Mótið litlar kökur með skeið og setjið á plötu.
Bakað í 20 mínútur við 150°C.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica