Snjór, snjókarlar og snjóhús
Jólagestur vefsins 1. desember 2009 er Valgerður Hanna Úlfarsdóttir
Þegar ég sit og hugsa til baka kemur strax upp í huga mér mynd af okkur systrum leika okkur í miklum snjó á Vattarnesi. Jólin voru alltaf hvít þegar ég var krakki. Allt á kafi í snjó og gott að koma inn í hlýjuna, búið að þrífa allt húsið og mamma byrjuð að baka smákökurnar. Desembermánuður er yndislegasti mánuður ársins því ég hef alltaf verið mikil jólastelpa í mér. Sú mynd sem kemur upp í hugann er af því að ég kem heim úr skólanum (með skólabílnum) allt á kafi í snjó og þegar inn er komið tekur ilmandi bökunarlykt á móti mér. Við systur fengum alltaf að smakka á kökunum þegar mamma var að baka og best fannst mér þegar hún var að baka randalínuna og rúsínukökurnar. Hvað er betra en ísköld mjólk og nýbakaðar rúsínukökur?
Um miðjan desember var svo farið inn að Búðum, til Ingu frænku, til þess að steikja laufabrauðið. Þá var ekki farið í bakaríði hans Jóns og keypt útflatt deig, þær Inga og mamma stóðu, hnoðuðu og flöttu út allan daginn en svo fengum við að skera út. Það var hlustað á jólalög, drukkið jólaöl og bakað laufabrauð allan daginn. Mér fannst eins og við færum heim með 1000 kökur og hlakkaði til að fara að sofa því þá gæti ég stolist í laufabrauðið því það hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér.
Jólin hjá mér byrjuðu strax á Þorláksmessu þegar búið var að borða skötuna og jólakveðjurnar byrjuðu í útvarpinu. Við systur skreyttum herbergið okkar og fengum að hjálpa aðeins til við að skreyta stofuna. Um kvöldið var farið í jólabaðið. Þegar ég var komin í nýju jólanáttfötin leið mér óskaplega vel, en jólin voru samt ekki komin, erfitt var að sofna því ég vissi að núna voru mamma og pabbi að skreyta jólatréð og ég fengi ekki að sjá það fyrr en um morguninn.
Loks var aðfangadagur runnin upp, við systur hlupum niður stigann og inn í eldhús til að sjá jólagardínurnar, þær voru eins og ævintýri, og morgunmaturinn passaði við ævintýrið í gardínunum enda var cocoa puffs í boði á jólunum. Morguninn var langur en fallegur, við fórum út að leika okkur í snjónum, bjuggum til snjókalla og snjóhús. Eftir hádegið horfðum við á teiknimyndir þar til klukkan fjögur. Núna hófst hin langa bið eftir jólunum. En loks var klukkan alveg að verða sex, við komin í jólafötin og sest við matarborðið, það var kveikt á útvarpinu til þess að við heyrðum þegar kirkjuklukkurnar hringdu inn jólin. Þetta var alltaf hátíðleg stund, við óskuðum hvort öðru gleðilegra jóla og borðhaldið hófst. Aðalrétturinn var ekki alltaf sá sami, en meðlætið var alltaf góða jólasalatið, laufabrauðið og jólaölið og í eftirmat var kaldur ávaxtagrautur með rjóma. Þegar búið var að ganga frá var komið að pökkunum svo um það leiti sem aftansöngurinn hófst í sjónvarpinu voru bornar fram tertur, smákökur og kakó.
Nú í seinni tíð er oft enginn snjór um eða fyrir jólinn og sakna ég hans svolítið en til að komast í jólagírinn þá er ómissandi þáttur í jólaundirbúningnum hjá mér og minni fjölskyldu að fara á jólatónleika tónskólans og þegar jólalagasyrpan er búin þá eru komin jól í hjartað.
Ég vil nota tækifærið og óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
Jólakveðja
Valgerður Hanna Úlfarsdóttir
Frönsk súkkulaðikaka
3 stk eggjarauður
2 dl sykur
175 gr smjörlíki
175 gr Lindu suðusúkkulaði (brætt)
1 dl hveiti
100 gr hakkaðar heslihnetur
1 ½ tsk Neskaffi
3 stk stífþeyttar eggjahvítur
Aðferð:
Eggjarauðurnar, sykurinn, smjörlíkið og súkkulaðið hrært vel saman. Þurrefnunum bætt út í og hrært vel.
Eggjahvíturnar stífþeyttar og settar út í með sleif (lítið í einu) og hrært varlega í jafnóðum.
Sett í 2 vel smurð form og bakað við 200°C í 30- 35 mínútur.
100 gr suðusúkkulaði brætt og hellt yfir kalda kökuna.
Borið fram með þeyttum rjóma og jarðaberjum.




Skrifa athugasemd