Hitta annað fólk með kærleiksblik í augum og óska öllum gleðilegra jóla
Jólagestur okkar 24. desember er Ólafía Hrönn Jónsdóttir
Þetta eru einstaklega rúmgóð jól hjá mér í ár. Ég kláraði að leika tvær sýningar i desember og er ekki að æfa neitt þannig að ég hef haft nægan tíma til að undirbúa jólin. Enda er langt síðan ég var búin að öllu. Jólatréð er löngu skreytt og búið að vera með ljósum síðan 5.des. Dóttir mín María 9 ára sá alveg um það. Þegar ég sagði að fólk gerði þetta yfirleitt á Þorláksmessu þá sagði hún bara "og mamma so what" Og ég var sammála. Ég hugsa að þetta hafi verið frekar sparnaðarspekúlantsjónir heldur en skírar jólareglur. Ég baka aldrei fyrir jólin þannig að ekki var það að flækjast fyrir mér og síðan er ég í bandalagi við jólagafafélaga mína að jólagjöfin megi ekki fara yfir 1ooo kall.
Þetta er skemmtilegt og krefst útsjónarsemi og maður hættir að ritskoða pakkann, hvort hann hafi verið nógu dýr og hvort maður þurfi að bæta einhverju við ef maður hitti á Ódýra gjöf. Hér í Reykjavík er orðið mjög jólalegt snjórinn situr á trjám og grindverkum og allt fær mjúkar línur. Ég fer alltaf í kirkju á aðfangadag með krakkana, en Össi er heima og gerir allt reddy. Mér finnst mjög áríðandi að mæta í kirkju á aðfangadag. Hlusta á prestinn, hugsa um það sem að skiptir í alvörunni máli og þakka fyrir það sem maður hefur. Hitta annað fólk með kærleiksblik í augum og óska öllum gleðilegra jóla. Ég vandist á þetta á Hornafirði og mínir krakkar voru ekki hrifnir af þessu þegar þeir voru litlir, þá er ég að tala um strákana mína sem eru orðnir 23 og 18, en núna geta þeir ekki hugsað sér að sleppa þessu. Ein jólin ætlaði ég að fara ekki, en það var ekki tekið í mál.
Eftirminnilegustu jólaböllinn sem ég hef farið á eru jólaböllin sem maður fór á Stokksnesið. Ég hafði ekkert heyrt af þessu,en einn morguninn var ég bara komin í herrútu á leiðinni á jólaball á herstöð. Ég man hvað þetta var framandi og hvað allt var sérkennilegt. Ísinn var alveg spes og teiknimyndir sem voru af skornum skammti í sjónvarpinu. Þær voru manni sýndar á bíótjaldi í örugglega tvo tíma. Svo var þarna jólasveinn sem maður vissi að einhver kani lék og ég man hvað ég vorkenndi þessum mönnum sem fengu ekki að hitta krakkana sína um jólin, en gerðu í staðin svona jólafjör til þess að fá þó allavega að hitta einhverja krakka. Krakkaþörfin var svo mikil. Það var aðeins eitt sem mér fannst ekki smekklegt og ég hafði vit á því að finnast það þótt ég væri bara 9 ára en það var að þeir voru búnir að hengja flugvél í loftið sem var full af sælgæti og svo áttum við krakkarnir að lemja hana niður og sælgætið að springa út um allt. Sumir misstu sig alveg í þessu og það var einhvernvegin ekki málið.
Í frystikistunni minni er skúffa full af humar, sem ég fékk hjá Önnu Lú og svo kom Begga systir líka færandi hendi þannig að ég er byrg af Humri yfir jólin. Þetta er það besta sem ég fæ. Ég datt niður á afskaplega hvað á ég að segja drullu sem ég ætlaði að hafa með humrinum en ég held að þessi drulla sé sniðugri með kjöti að ég tali nú ekki um villibráð. Þið afsakið að ég kalli þetta drullu, mér bara dettur ekkert annað í hug.
Nú svona er drullan. Takið heilan púrrulauk og skerið hann smátt niður, steikið hann rólega á pönnu með miklu smjöri 1/4 úr stykki allavega, þegar hann er orðinn fallega brúnn skuluð þið hella þurrkuðum hvítlauk yfir, eða bara rífa hvítlauk, segjum tvö rif. Þá skuluð þið setja 2 kúfaðar teskeiðar af maukuðu engifer, sem fæst í krukkum. Hrærið í þá skuluð þið setja avgave síróp úti svona tvær matskeiðar og hræra aftur. Salta oggupoggu og síðan skuluð þið skera vínber niður og setja út í þetta rétt áður en þið takið drulluna af.
vinkona mín gaf mér lambalundir í gær og ég bjó þá til þetta og það ætlaði allt um koll að keyra fólki fannst þetta svo gott. Það er sjaldan sem ég er montin af mat, en þarna var ég virkilega montin.
Nú óska ég öllum gleðilegra jóla. Guð gefi ykkur góð jól og guð veri með þeim sem eiga sárt að binda um jólin. Það eru erfiðir tímar, sem mér skilst að þið á Höfn finnið ekki svo mikið fyrir. En ég þekki alveg ótrúlega marga sem eru orðnir atvinnulausir og þetta fer versnandi.
Kærleikskveðjur frá Ólafíu Hrönn sem þykir alltaf vænt um Hornafjörðinn sinn.




Skrifa athugasemd