Jólagestir
Árnína og móðir hennar
Árnína og móðir hennar
Árnína og móðir hennar

23.12.2008 Jólagestir

Uppskrift að hamingju

Jólagestur okkar 23. desember er Árnína H. Guðjónsdóttir

Bernskuminningar mínar um jólin eru mjög ánægjulegar og fullar af tilhlökkun, gleði og þakklæti. Ég tel mig líka heppna, því ég hef kynnst hefðum af nokkrum heimilum á uppvaxtarárunum. Þessar minningar eru mér afar dýrmætar og ætla ég að leyfa ykkur að skyggnast aðeins inn í þær.

Nokkrum jólum eyddum við pabbi hjá Gunnu ömmu og Hirti afa, þar var ekkert öðruvísi en hjá flestum um jólaleytið, fullt af hefðum. Um kaffileytið á aðfangadag fór afi alltaf til Steingríms kaupmanns til að sækja epli, appelsínur, malt og appelsín. Ein jólin stakk pabbi uppá því að við myndum fara með afa en ég bað um að fá að vera heima þennan hálftíma, og var það látið eftir mér. Ég var sko búin að ákveða að nýta tímann vel og sortera alla pakkana! Amma var að vinna þennan aðfangadag uppi á Skjólgarði og var ekki von á henni heim fyrr en seint um kvöldið.


Þannig að þarna sat lítið frekjuskott (ég hef líklega verið 9 ára) eitt heima á aðfangadag að springa úr tilhlökkun og forvitni. Ég byrjaði á að þukla pakkana og sortera, og viti menn, allt í einu rifnar óvart pappírinn af einum pakkanum mínum (fyrir þá sem ekki þekkja mig, þá hef ég aldrei verið þekkt fyrir að vera mjúkhent). Ekki fannst mér þetta óhapp nú leiðinlegt, þvert á móti. Ég gægðist aðeins inn í pakkann og sá að þetta var brúnn kassi, þannig ómögulegt var að vita hvað hann hafði að geyma, svo ég reif gjöfina úr pappírnum fyrst hann var orðinn svona rifinn, og sjá, þarna var þessi óskaplega fallegi spegill! Þarna hefðu sumir náð að svala forvitninni og spenningnum - en ekki ég, þetta bara jók á spennuna.
Fljótlega byrjaði ég að þukla næsta pakka - enginn heima til að fylgjast með og öll skynsemi og viðvörunarbjöllur fóru á pásu í hita leiksins. Þegar afi og pabbi komu heim var ég búin að opna alla pakkana mína, klukkan 16:00 á aðfangadag! Ég sat á gólfinu með fullt af dóti og pappír í kringum mig og hafði ekki hugmynd um hvaða gjöf var frá hverjum! Ég, sem er alin upp við það að skrifa niður allar gjafir jafn óðum og frá hverjum þær eru.
Auðvitað dauðskammaðist ég mín og enn þann dag í dag roðna ég þegar ég hugsa til þessa tíma. En ekki var ég skömmuð fyrir þetta, enda þeir feðgar stútfullir af þolinmæði og rólegheitum, sérstaklega þegar kom að hinum ýmsu og ófáu uppátækjum mínum, í gegnum tíðina.

Ég eyddi nokkrum jólum hjá mömmu og Ingu Rún í Keflavík. En flestum jólum hef ég eytt með pabba, Kiddý og Jenný.

Reyndar fannst mér hefðirnar mjög líkar, hvort sem ég var hjá mömmu, afa og ömmu eða pabba og Kiddý; Ný nærföt, náttkjóll og hreint á rúmið á Þorláksmessu, skata á Þorláksmessu, jólatréð skreytt á Þorláksmessukvöld, jólakort borin út á aðfangadag, hamborgarhryggur í matinn, matur kl.18:00, útvarpið hátt stillt, allir hjálpast að við uppvaskið, fjölskylduboð hjá afa og ömmu á jóladag.

Svo hafa Valli og Valdís alltaf boðið í fjölskylduveislu á gamlárskvöld, ég veit ekki hvaða ár þau byrjuðu á þessari hefð, en allavega síðan ég man eftir mér, og var oft margt um manninn í þeim veislum.

Ég er mjög ánægð að hafa upplifað jólaböllin úti á Stokksnesi. Kiddý fór með okkur Jenný nokkrum sinnum og getur maður ekki annað en brosað þegar maður hugsar um þær ævintýraferðir; Fullt af nammi, gosi, poppi og fleiru góðgæti, bíómyndir, tekin mynd af manni í kjöltu jólasveinsins, pakki frá jólasveininum, allt jólaskrautið og ljósin, allt fólkið, jólatónlistin, allt svo stórfenglegt og mikið af öllu að varla er hægt að lýsa því í orðum.

Núna erum við Binni minn að fara að eyða sjöttu jólunum okkar saman og er þetta komið í nokkuð fastar skorður hjá okkur. Á Þorláksmessu erum við með skötuveislu fyrir fjölskylduna, þá erum við með skötu sem Binni kæsir, saltfisk og grjónagraut. Á aðfangadag erum við með humar í forrétt A la Vigga, svo erum við með tvíréttað í aðalrétt, rjúpur og hamborgarhrygg (því það er bæði betra), svo er heimagerður ís í eftirrétt. Kiddý hefur alltaf soðið rauðkál fyrir jólin og finnst mér það mjög hátíðlegt og alveg ómissandi með jólamatnum.
Svo erum við í matar- og kaffiboðum alla hátíðina; hjá tengdó, pabba&Kiddý og Jenný&co.

En ég gæti alveg hugsað mér að breyta þessum hefðum, þær eru alls ekki lykilatriði fyrir mig, heldur finnst mér skipta mestu máli að vera sem mest með fjölskyldunni um hátíðina og ég þarf stundum að minna mig á að vera þakklát fyrir það sem ég á og þá hugsa ég hvað ég er virkilega heppin að hafa svona mikið af góðu fólki í kringum mig og ekki síður fyrir að vera Íslendingur og búa á Íslandi, því mér finnst Ísland bæði "stórasta og góðasta" landið í öllum heiminum.

Reyndar finn ég alltaf aðeins til sorgar um hver jól, því ég er bæði mjög meðvirk og einstaklega mikið tilfinningabúnt og þar af leiðandi á ég auðvelt með að setja mig í spor annarra og er nokkuð góð í að finna til með öðrum.
Mér finnst virkilega sárt að hugsa til þess hve margir eiga um sárt að binda og skortir eitthvað, hvort sem það eru peningar, fjölskylda, vinir, heilsa, öryggi eða jafnvel kærleikur. Eins og segir í textanum sem Pálmi Gunnarsson syngur í Gleði og friðarjól:"þrautir raunir náungans, víst koma okkur við".
Við Binni höfum lagt okkar að mörkum og höfum um hver jól gefið a.m.k. einn pakka til Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálpar Íslands. Það er alveg einstök gleðitilfinning að fá að taka þátt í því frábæra starfi og vita að maður hafi glatt litla manneskju einhversstaðar.

Ég hugsaði lengi um hvaða uppskrift ég ætti nú að láta fylgja, en ég komst ekki að neinni niðurstöðu svo að mér datt þá í hug að kannski myndi nú bara uppskriftin að hamingjunni henta vel með, allavega þarf ég alltaf að lesa þessa frábæru uppskrift af og til;

Uppskrift að hamingju:

Þolinmæði:       Tveir sléttfullir bollar af þolinmæði.
Kærleikur:        Hjartafylli af kærleika.
Örlæti:             Tvær handfyllir örlæti.
Skilningur:        Höfuðfylli af skilningi.
Hlátur:              Slatti af hlátri.
Góðvild og trú:  Blandið vel saman með góðvild og trú,
Mannsævi:        Hellið yfir þetta heilli mannsævi.

Berið síðan á borð fyrir hvern sem er.


Ég vil nota tækifærið og óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og vona að ykkur líði sem allra best yfir hátíðina, sem og alltaf,
bestu kveðjur!

Árnína H.Guðjónsdóttir.




Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica