Jólagestir
Nökkvi Jóhannesson
Nökkvi Jóhannesson
Nökkvi Jóhannesson

22.12.2008 Jólagestir

Jólaminningin

Jólagestur okkar 22. desember er Nökkvi Jóhannesson

Ætli það sem komi ekki fyrst í hugan þegar ég hugsa til bernskujólanna, sé kökuilmur. Mamma byrjaði að baka á aðventunni og þar sem ég er dálítið eldri en systkini mín sat ég einn að jólasmákökunum fyrstu árin. Þegar ég var kominn á unglingsár og systkinin farin líka að höggva stór skörð í kökuboxin, var reynt að banna okkur að klára kökurnar fyrir jólin. Mamma reyndi jafnvel að fela boxin eða líma aftur lokin en það hafði ekkert að segja, það var yfirleitt lítið eftir af kökunum á aðfangadag. Þegar mamma sá að þetta hafði ekkert uppá sig og leyfði okkur að ganga sjálfala í kökudallana, þá hætti þetta og það var nóg til af kökum um jólin, en þá voru þær heldur ekki borðaðar því það voru allir svo mettir af kjöti og konfekti.

Jólaljósin fóru upp um miðjan desember.
Epli og mandarínur komu í hús rétt fyrir jól og þegar búið var að smakka ávextina var farið að hlakka til Þorláksmessunar. Það var alltaf skötuveisla í hádeginu hjá ömmu og afa, þar sem stórfjölskyldan hittist ásamt vinum og vinnufélögum. Þegar veislunni var lokið og búið að ganga frá var farið í búðir og klárað að versla og útrétta fyrir jólin. Seinnipart Þorláksmessu var byrjað að skreyta og jólatréð var skreytt á Þorláksmessukvöld. Allaf var hlustað á jólakveðjurnar í útvarpinu meðan verið var að skreyta. Það var yfirleitt verið að sinna skreytingum og öðrum frágangi, langt fram yfir miðnætti. Það mátti helst ekkert vera eftir nema að elda jólamatinn.
Jólasveinarnir komu úr Langadalsfjallinu snemma á aðfangadagsmorgun, og alltaf komust þeir leiðar sinnar þó að úti væri stórhríð. Þegar sveinarnir höfðu kíkt við var farið að huga að því að bera út jólakortin og gjafir til okkar nánustu, og búa sig undir rafmagnsleysið sem virtist (allavega í minningunni) vera nokkuð algengt milli kl. 15 og 17 á aðfangadag. Það var líka nokkuð góður tími til að fara í baðið á þessum tíma því það var huggulegt að hafa bara kertaljós inná baðherberginu á meðan.
Klukkan 18 var hlustað á útvarpið, þegar jólin voru hringd inn. Sest var að borðum og hamborgarahryggurinn snæddur. Þegar máltíðinni lauk tók við óhemjulöng bið þar sem það þurfti að bíða eftir því að mamma kláraði að vaska upp, áður en sest væri niður til að opna jólapakkana. Þegar búið var að opna pakkana og skoða jólakortin sem borist höfðu frá vinum og vandamönnum, var annað hvort sest niður og spilað eða lesið.
Á jóladag var síðan haldið til afa og ömmu, þar sem fjölskyldan spilaði og spjallaði.
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og gæfu á nýju ári.

Að lokum er hér uppskrift af humarsúpunni sem er forréttur á okkar heimili á aðfangadag.

Innihald:
18 humarhalar
Olía/Smjör
Sellerí/Laukur
2 hvítlauksrif
1 gulrót
2 msk tómatpuré
Lárviðarlauf
Fiskikraftur
Chyannepipar
2 dl hvítvín (eða Mysa)
2,5 dl rjómi

Aðferðin:

(Íris útbýr soðið á þorláksmessukvöld.)
Skelin er brúnuð í olíu í stórum potti. Saxið lauk, gulrót, hvítlauk og sellerí, og setjið í pottin ásamt tómatpúré, lárviðarlaufinu, hvítvíninu (mysunni), fiskikraftinum, piparnum og 4 lítrum af vatni. Þetta er soðið í 4 klst. Þá er slökkt undir og látið standa í pottinum þar til komið er að matargerðinni á aðfangadag.
Soðið er síað, bakað upp með smjörbollu, settur rjómi útí og humarhalarnir síðast. Gott er að smakka til með salti og pipar.
Verði ykkur að góðu.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica