Jólagestir
Gudbjörg Stefánsdóttir
Gudbjörg Stefánsdóttir
Gudbjörg Stefánsdóttir

20.12.2008 Jólagestir

Hann fór aðeins í spariföt á jólunum og við jarðafarir.

Jólagestur okkar 20. desember er Guðbjörg Stefánsdóttir

Þegar ég var barn voru jólin mjög frábrugðin þeim jólum sem ég held með fjölskyldu minni í dag .
Jólaundirbúningurinn hófst í enda nóvember með laufabrauðsbakstri heima hjá systur mömmu. Ég fékk að fletja út kökurnar með henni snemma morguns svo eftir hádegi komu allir saman og skáru út, laufabrauðsbaksturinn tók alltaf heilan dag.
Ég man lítið eftir öðrum undirbúningi fyrr en á aðfangadag þá byrjaði póstburðurinn, ég og vinkona mín töltum alltaf um þorpið og bárum út jólakortin fyrir vini og vandamenn og skoðuðum jólaljósin í leiðinnni og við vorum ekki sáttar ef einhver var búin að breyta til frá síðast. Á þessum tíma var aldrei skreytt fyrr en á Þorláksmessu.

Aðaljólastemningin var þegar pabbi var kominn við eldavélina og byrjaður að elda jólasteikurnar með tilheyrandi meðlæti.Pabbi var vanur að sjá um jólamatinn því mamma söng alltaf í jólamessu á aðfangadag og ég fór alltaf með henni. Svo var alltaf jafnskemmtilegt að koma heim úr kirkjunni í ilmandi matarlyktina og sjá pabba í jólafötunum, það var mjög hátíðleg sjón. Hann fór aðeins í spariföt á jólunum og við jarðafarir. Hann var búinn að setja matinn á borðið en við borðuðum alltaf rjúpur, hangikjöt og lambahrygg ( það var ekkert sem jafnaðist á við þessa veislu ). Svo eftir mat þegar búið var að ganga frá og opna pakkana var alltaf búið til heitt súkkulaði og settar tertur á borðið, því systir mömmu kom alltaf í heimsókn með fjölskyldu sína. Þessum sið með heitt súkkulaði og tertur er enn haldið við heima á Djúpavogi. Við fórum svo alltaf til hennar á Jóladag en við vorum mikið saman um jólahátíðina. Var mikið spilað yfir jólin nema á aðfangadag en þá var bannað að spila og held ég fast í þann sið með fjölskyldu minni.

Við óskum ykkur gleðilegrar jólahátíðar.
Gaua, Guðbjörg Stefánsdóttir og fjölskylda

Uppskrift af jólabrauðinu mínu:

Jólabrauð

400 gr . hveiti
200 gr speld hveiti
300 gr heilhveiti
100 gr Jólablanda (sjá hér að neðan)
25 ger
40 gr smjörlíki
20 gr rúsínur
40 gr sykur

Jólablanda

2 msk kanill
3 tsk negul
200 gr heslehnetur
100 gr möndlur
100 gr sesam

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica