Jólagestir
Steinunn Benediktsdóttir og Kristján Júníus
Steinunn Benediktsdóttir og Kristján Júníus
Steinunn Benediktsdóttir og Kristján Júníus

17.12.2008 Jólagestir

- við þurftum að leggja okkur eftir hádegi á aðfangadag -

Jólagestur okkar 17. desember er Steinunn Benediktsdóttir

Mig langar að minnast jólahalds eða brota úr því sem situr eftir fyrir svona hálfri öld en þá var ég níu ára gömul. Ég ólst upp á góðu sveitaheimili eða á Miðskeri í Nesjum. Á þessum árum var nú ekki mikill íburður eða jólaskraut, þetta er á þeim tíma sem við fengum kannski kerti og spil og eina og eina bók eða fallega sokka og vettlinga í jólagjöf. Mamma saumaði á okkur falleg jólaföt jafnvel upp úr gömlum fötum en alltaf fengum við ný nærföt og náttföt. Okkur þótti alltaf mjög vænt um það sem við fengum. Ekki var komið rafmagn á bæina í Nesjum nema kanski eitt og eitt heimili og voru þá heimarafstöðvar hjá þeim framsýnustu. Húsið heima var kynt með olíu en alltaf var slökkt á kyndingunni á næturnar svo stundum var ansi kalt þegar farið var á fætur. Ljósin voru olíulampar, gasluktir eða kerti. Það varð að umgangast ljósin með mikilli aðgát og það voru lítil kerti á jólatrénu sem fengu litla stund að lifa við allra heilugustu stundirnar.

Stofan var skreytt með loftskrauti og við börnin fengum alls ekki að koma inn í stofuna á meðan á undirbúningi stóð. Var henni læst þegar búið var að skreyta og hún ekki opnuð fyrr en á aðfangadagskvöld. Annar siður var alltaf við hafður og það var að við þurftum að leggja okkur eftir hádegi á aðfangadag og gat það nú verið ansi erfitt að sofna fyrir spenningi og tilhlökkun - við héldum alltaf að við værum að missa af einhverju.
Hátíðarmaturinn á aðfangadagskvöld var lambahryggur, brúnaðaðar kartöflur með öllu tilheyrandi og ávextir og rjómi í eftirrétt. Mikið var bakað, hangikjöt eldað og jólagrauturinn, sem var góði gamli ávaxtagrauturinn, var alltaf á borðum. Það var hlustað á guðsþjónustur í útvarpinu en við amma, mamma og krakkarnir fórum svo í messu í kirkjuna við Laxá og fórum við þá oft til ömmu í Akurnesi og systkina mömmu, þá oft glatt á hjalla. Yfir hátíðina var oft mikill gestagangur hjá okkur og þar sem amma mín Steinunn átti heima á Miðskeri og minnist ég margra ánægjustunda með henni við lestur bóka og svo spiluðum við mikið og þá ekki síst um jól og á veturnar. Það var oft mikið gaman á Miðskeri þegar systkini pabba og þeirra fjölskyldur komu í heimsókn en við krakkarnir vorum á svipuðum aldri.

Pabbi hafði alltaf mikið að gera á þessum tíma við að sinna búskapnum og um hátíðina var alltaf reynt að gefa betra hey en venjulega. Það var ekki mitt uppáhald að fara í fjárhúsin með honum, ég var frekar að stússast eithvað fyrir mömmu. Ég held að Kolbrúnu og Jóni systkinum mínum hafi þótt allt í lagi að hugsa um skepnurnar - allavega gerðu þau það.


Við Magnús erum sammála um að okkur finnst gott að vera komin heim í Hornafjörð en lítum samt þannig á að það hafi verið mikið gæfuspor að skreppa nokkur ár í burtu. Það styrkti okkur og þar að leiðandi gerum við okkur betri grein fyrir því hvað það er gott að vera komin heim og nálægt fegurðinni sem er hér allt í kringum okkur. Kæru Hornfirðingar - Guð blessi ykkur öll!
Við Magnús og fjölskylda óskum öllum Skaftfellingum til sjávar og sveita gleðilegra jóla og gæfu á nýju ári.

Þessi uppskrift er góð með öllum sætu kökunum.
Brauðkollur með lúxusfyllingu

12 brauðkollur (tartalettur)
100 gr smurostur
2 msk majones
2 eggjarauður
½ tsk aromat
½ tsk season all
1 tsk karrý
150-200 gr rækjur
1 bolli soðin hrísgrjón
3 msk ananaskurl
3 msk saxaður spergill
2 eggjahvítur
50 gr 26% rifin ostur

Hrærið saman smurosti, majonesi, eggjarauðum
og kryddi og bætið rækjum, hrísgrjónum, ananas,
og spergli út í. Blandið vel saman og skiptið niður í
brauðkollurnar.
Stífþeytið eggjahvíturnar, bætið ostinum út í og breiðið yfir fyllinguna í brauðkollunum. Bakið við 180° í u.þ.b. 10 mín. eða þar til fallegur litur er komin á hvíturnar.



Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica