Jólagestir
Lilja Aradóttir
Lilja Aradóttir
Lilja Aradóttir

16.12.2008 Jólagestir

Jól bernsku minnar

Þegar leið á jólaföstu hófst jólaundirbúningurinn. Allir unnu af kappi því mikils þurfti með á stóru heimili. Við börnin hjálpuðum til eftir bestu getu hvers og eins. Í frístundum okkar þurfti líka að huga að ýmsu hjá okkur systkinunum. Við pukruðumst með smádót úti í hornum, við vorum að útbúa jólagjafir til að gefa á jólunum og svo þurftum við systurnar að sauma föt á brúðurnar okkar því ekki máttu þær klæða jólaköttinn sem kallað var. Við systkinin máttum heldur ekki klæða köttinn. Mamma sá um að við gerðum það ekki. Hún spann, prjónaði og saumaði fram á nætur. Ég man hvað var notalegt að sofna við rokkhljóðið hjá mömmu á kvöldin þegar ég var orðin þreytt á að basla við að prjóna spjarir (leppa) til að gefa einhverju systkina minna innan í jólaskóna. Og niðri í kjallara heyrðist hefilshljóð hjá pabba. Hann kepptist við að smíða smáhluti sem komu svo óvænt á aðfangadagskvöld.

Á Þorláksmessu náði jólaundirbúningurinn hámarki. Þá var bakað, þvegið, skúrað og pússað. Allir voru önnum kafnir. Ég hafði það starf að gæta tveggja yngstu bræðra minna og gekk það oft misjafnlega vel, en nú var barnapössunin óvenju létt. Ég var bara þolinmóð við litlu strákana, það voru að koma jól!
Loksins kom hinn langþráði aðfangadagur. Allt var þvegið og prýtt eftir föngum. Ég fór út með litlu strákana en systkini mín voru í störfum með mömmu og pabba. Það þurfti að hirða gripina, kýr, kindur og hesta. Þennan dag var þeim gefið betra og meira en venjulega. Það var borinn inn eldiviður, fyllt hvítþvegin taðkistan, sett olía á lampana, þvegnir gluggarnir í fjósinu.
Mér fannst þessi dagur mjög langur, en loks nálgaðist klukkan 6. Við börnin vorum öll böðuð í bala og þvegin hátt og lágt. Ég man hvað var nú gott að klæðast mjúkum ullarnærfötum og fallegu prjónaklukkunni með randabekk að neðan, hvítir ullarsokkar og bryddaðir sauðskinnsskór og ég tala nú ekki um ef líka var rauður kjóll með hvítum kraga. En sá dýrindis klæðnaður! Allir voru prúðbúnir.
Í kvöld var allt svo bjart og fagurt. Ljós um allt, líka í fjósinu. Nú settist pabbi við borð á miðju gólfi með ?Stóru lestrarbókina? og las jólalesturinn. Friður og ró yfir öllu, jólin voru komin. Eftir lesturinn settist pabbi við orgelið og spilaði, og sálmurinn Heims um ból hljómaði svo vel um litlu stofuna í röddum barna og foreldra.
Jólamaturinn var borinn fram, hangikjöt og fleira góðmeti, að ógleymdu seydda rúgbrauðinu. Á eftir var sagógrjónagrautur með rúsínum og rjóma útá. Lappi gamli hundurinn okkar og gráa kisan fengu líka góðan mat og rjómalögg í fallegri skál. Enginn gleymdist á jólum.
Eftir matinn var svo útbýtt jólagjöfum. Við systkinin fengum þrjú kerti hvert og ein spil í sameiningu og svo gjafirnar sem unnar voru heima, fallegir vettlingar frá mömmu, kistill eða brúðurúm frá pabba og lítill sleði sem bræður mínir smíðuðu og smádót sem við börnin bjuggum til handa hverju öðru og foreldrum okkar. Kvöldið leið við lestur og söng og ljósadýrð.
Jóladagurinn rann upp. Mamma færði okkur súkkulaðimjólk og kökur í rúmið. Við klæddumst jólafötunum okkar, lékum okkur úti ef veður leyfði en undum svo við lestur og leiki fram eftir kvöldi. Og nú settist pabbi við orgelið, við systkinin og mamma í kring og sungum Í dag er glatt í döprum hjörtum og fleiri jólalög.
Svona liðu jólin mín heima á Borg. Það er bjart yfir minningunum.

Uppáhalds kökurnar á mínu heimili voru smákökur með súkkulaðibitum. Hér kemur uppskrift af þeim:

1 bolli smjörlíki
1 bolli sykur
1 bolli púðursykur
2 egg
3 bollar hveiti
1 tsk. natron (sódaduft)
½ tsk. salt
1 bolli kókosmjöl
½ - 1 bolli saxað suðusúkkulaði
Hrærið smjörlíkið vel lint með sykrinum og þeyttum eggjunum. Hrærið hveiti og sódadufti saman við ásamt salti og kókosmjöli. Hnoðið í lengjur og mótið í kúlur og þrýstið á þær með gaffli. Súkkulaðibiti er settur á miðju hverrar köku.
Bakað við góðan hita (meiri yfirhita).

Lilja Aradóttir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica