Jólagestir
Wellah Magno
Wellah Magno
Wellah Magno
Mynd 1 af 2
1 2

14.12.2008 Jólagestir

Jólin okkar á Filipseyjum

Jólagestur okkar 14. desember er Wellah Magno

Jól á Íslandi eru ólík jólunum sem við höldum á Filipseyjum, aðrir siðir og venjur.
Ég kem frá bæ sem heitir Compostela sem er í 45 mínútna fjarlægð frá borginni Cebu fuente Osmena.
Í Filipseyjum við byrjum að setja upp jólaljós í september, þá er farið að kólna og við finnum þá að jólin eru að nálgast. Við setjum líka upp fjárhúsið í Betlehem með líkneskjum af Jesú, Maríu og Jósef í fullri stærð í görðunum okkar þegar nær dregur jólum. Svo er keppni í jólaskreytingum og keppast allir við að skreyta sem mest og hafa sem mest af ljósum. Í borginni Cebu Fuente Osmena er sett upp ristastórt jólatré í miðbænum sem er 40 metra hátt! og gaman að fara þangað.
Jólasveinninn kemur til okkar á aðfangadag, bankar upp á og gefur börnunum gjafir, honum fylgir líka gerfisnjór sem er dreift í kringum hann jafnóðum - því hann kemur jú að norðan!

Á aðfangadagskvöld er "Noche Buina" sem þýðir lauslega að allir séu saman um kvöldið. Öll stórfjölskyldan borðar saman í kringum hálfellefu þegar við erum búin að fara í messu á aðfangadagskvöld. Þá er líka útdeilt jólagjöfum en það er í minna magni en hér, fyrst og fremst börnin fá pakka. Síðan er eftir miðnættið skotið upp mikið af flugeldum og fólk safnast saman á götum úti. Á gamlárskvöld skjótum við svo upp enn meiru en þá er mikil hátíð sem tengist nýju ári sem samkvæmt hefðinni tengist nýju upphafi og nýrri byrjun. Þá safnast líka allir saman úti og er dansað á götunum. Jólamaturinn okkar er svínasteik sem er borin fram með ýmsu meðlæti þ.á.m. Pancit sem er nokkurskonar pottréttur úr kjöti, núðlum og sósu, svo eru hrísgrjón með og ávaxtasalat. Annað sem er sérstakt hjá okkur er sérstök kaka búin til úr sérstakri gerð hrísgrjóna með kókosolíu og engifer.

Ég er mjög hamingjusöm hér á Íslandi um jólin, en sakna þó Filipseysku jólanna.

Hér fylgir einföld uppskrift af ávaxtaköku frá Filipseyjum

Mild ávaxtakaka:

170 gr. smjör
170 gr. sykur
3 egg
340 gr. Maizanna mjöl
Klípa (pinch) af Allrahanda
Klípa af kanil
150 ml. mjólk
250 gr. hakkaðir þurrkaðir ávextir (exotic dried fruits) ( mango, pineapple, banana, paw paw, apricots, cranberries, bluberries etc.)

Egg, sykur og smjör þeytt saman og hinu blandað samanvið. Sett í kökuform og bakað í 45 mínútur við 180°C

Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Wellah Magno og fjölskylda.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica