-í pakkanum var þessi líka fallega dúkkulísa sem ég hefði alls ekki viljað missa af
Í minningu minni um jólin er margt sem flestir íslendingar kannast við. Eplailmurinn, mandarínur, góður matur og mikil tilhlökkun. Ekki fannst okkur vera komin jól fyrr en skötulyktin lá yfir öllu á Þorláksmessu.
Í Ólafsvík þar sem ég ólst upp er einn siður sem ég held að sé ekki annars staðar á landinu. Á þrettándanum klæddum við okkur upp í grímubúninga sem álfar. Við gengum í hús til að sníkja okkur eitthvað í gogginn. Græðgin var stundum svo mikil að við fórum í öll hús í bænum og vorum langt fram á kvöld, helfrosin eftir ævintýrið.
Eitt er mér þó minnisstætt er ég bjó hér á Hornafirði sem lítil stelpa. Árið 1979 var ég þeirrar gæfu aðnjótandi að komast á Kanaball út á Stokknesi.
Ég var sjö ára og fékk að fara með afa þar sem hann vann sem verkstjóri á sínum tíma. Þar var sko ekkert til sparað og fékk ég sælgæti og gosi eins og ég gat í mig látið. Bíó var á staðnum og sá ég myndina um bílinn ?Herbie? þarna í fyrsta sinn. Við fórum á barinn og fengum okkur popp og kók og slógum köttinn úr tunninni. Það gjörsamlega flæddi allt í sælgæti. Einnig man ég eftir blökkumanni sem var kallaður Coke, og hafði ég aldrei séð blökkumann fyrr.
Dagurinn var fljótur að líða og í enda dagsins áttum við að fá að hitta ameríska jólasveininn og fá pakka. Krakkarnir fóru í einfalda röð og ég beið eftir að röðin kæmi að mér. Mér var nú orðið heldur brátt í brók enda búin að þamba gos allan daginn. Ég hljóp og leitaði að klósetti en fann ekkert. Ég vildi alls ekki missa af jólasveininum þannig að ég fór í röðina aftur. Sama hvað ég sagði oft "ég skal ekki" þá pissaði ég á mig. Þegar svo röðin kom að mér ætlaði ég ekki að vilja setjast í fangið á jólasveininum. Hann hélt að ég væri svo feiminn að hann greip mig og skellti mér á lærið á sér og gaf mér pakkann. Tekin var mynd af okkur saman á polaroid myndavél og fékk ég að eiga myndina. Ég vona að buxurnar hjá aumingja karlinum hafi nú ekki blotnað mikið en í pakkanum var þessi líka fallega dúkkulísa sem ég hefði alls ekki viljað missa af.
Ég læt hér fylgja með uppskrift frá Sveinbjörgu ömmu í Grænuhlíð sem mér finnst ómissandi á jólaborðið.
Brúnaður laukur
10-15 laukar
2 bollar sykur
borðedik
Laukarnir skornir smátt og sett í pott.
Soðið niður það til vökvinn er nánast gufaður upp.
Sykurinn settur útí og brúnað.
Smá gusu af borðediki hellt út á.
Smakkað til og borið fram heitt.
Hægt er að geyma restina í kæli og eiga yfir alla hátíðina.




Skrifa athugasemd