Jólagestir
Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir og hluti fjölskyldunnar des. 2007
Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir og hluti fjölskyldunnar des. 2007
Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir og hluti fjölskyldunnar des. 2007

11.12.2008 Jólagestir

Það var notalegt að sofna við suðið í saumavélinni

Þegar ég var beðin um að vera jólagestur og rifja upp bernskujólin, fóru minningarnar á flug og margt sem kom upp í hugann, þegar ég var að alast upp - telpuskottið heima á Eyrarbakka. Flestir ungarnir voru flognir úr hreiðrinu nema tveir af bræðrunum og við tvær yngstu systurnar 8 og 10 ára
Við tókum alltaf virkan þátt í jólaundirbúningnum - baka smákökurnar, þrífa eldhússkápana og setja í þá spánýjan hillupappír og festa jólablúndu framan á hverja hillu með teiknibólum og föndra jólagjafirnar. Mamma með okkur systurnar í Kaupfélaginu á Selfossi, að versla efni í jólagjafirnar, sem við fengum að gera sjálfar, með hennar hjálp handa 7 uppkomnum systkinum okkar og þeirra börnum.

Þetta árið voru það hjartalaga jólapóst-pokar og veggteppi sem mamma sneið og saumaði úr lituðu strigaefni, sem við svo skreyttum með misjöfnum útfærslum á jólasveinum og englum sem við klipptum út í litríku filtefni og límdum á. Systkinabörnin okkar voru 27 og fengu þessi jólin hvert sitt veggteppið í nokkrum útfærslum á lítilli bambusstöng. Við vorum búnar að skipuleggja strax í byrjun nóvember hver átti að fá hvað og engin gjöf mátti vera nákvæmlega eins og algjört leyndarmál. Því var mikill hamagangur að pakka öllu saman ef einhver þeirra datt inn á meðan verið var að hanna verkið. Þessar gjafir vekja enn upp notalega tilfinningu þar sem þær eru ávallt settar upp í byrjun desember á þeirra heimilum enn í dag.
Það var notalegt að sofna við suðið í saumavélinni, þegar mamma var að sauma jólagjafirnar á allan barnaskarann og nokkur önnur auka ömmubörn, sem fengu að sjálfsögðu allt eins, enda voru yfirleitt keyptir "strangar" af efnum.
Hún var venjulega búin að sauma jólakjólana í nóvember og við því oft búnar að máta þá við nýju jólaskóna og skoða vel í speglinum.

Þá var alltaf pínu spenna hvort pabbi, sem var varðstjóri á Litla Hrauni, yrði á seinni vakt á aðfangadagskvöldi.
Snemma var búið í gegningunum og allir búnir að baða sig fyrir kl. 18 þegar jólin voru hringd inn í útvarpinu og hlustað á jólamessuna, og svo sest að matborðinu þegar henni lauk.
Á borðum voru heit svið, kartöflu- og rófustappa með grænum baunum og heimalagaður mömmuís í eftirrétt. Ef pabbi var á seinni vaktinni og skaust heim, notaði hann tækifærið og fékk sér eins og einn sviðakjamma og tilheyrandi en venjulega var jólagæs á boðstólum á Hrauninu og það fannst mínum ekki líkt því eins gott og sviðin.
Eftir opnun pakkana komu þau 3 systkini okkar sem bjuggu á staðnum með sínar fjölskyldur, það var dansað í kring um jólatréð á meðan mamma reiddi fram heitt súkkulaði með tertuhlaðborði.
Um hádegið á jóladag komu svo öll systkinasúpan að sunnan með sínar fjölskyldur, í hangikjötið og farið var til kirkju, spilað og leikið sér.

Þegar maður svo sjálfur eignast sitt heimili, smá breytast venjur og áherslur, en aðventan og jólaundirbúningurinn er skemmtilegur tími og ég nýt hans, eins og t.d.að skrifa á jólakortin.
Þá er orðinn fastur liður á Þorláksmessu að fjölskyldan fer í skötuveislu á Höfn, áður en að jólakveðjurnar hefjast í útvarpinu og setja punktinn yfir hátíðleikann.
Í seinni tíð hefur aðfangadagurinn sjálfur vakið upp hjá mér blendnar tilfinningar, en faðir minn lést mjög skyndilega að kvöldi aðfangadags 1986, en tveimur árum síðar seinnipart aðfangadags 1988 fæddist svo yngsti sonurinn, þannig að þessi dagur hefur bæði vakið upp hjá mér sorg og mikla hamingju.
Nú teljum við niður af tilhlökkun, þar sem við eigum von á öllum börnunum og þeirra fjölskyldum heim um jólin, þar sem þau búa nú öll á Íslandinu góða.

Um leið og ég óska ykkur öllum gleðilegrar jólahátíðar, árs og friðar læt ég fylgja hér með uppskrift af auðveldum frómas, sem mér finnst ómissandi um hátíðirnar.

Ananasfrómas

½ líter þeyttur rjómi
3 stk egg
2 1/2 matsk sykur
6 blöð matarlím
½ dós ananas
gott að kreista smá sítrónusafa út í
smá af dökkum súkkulaðispæni

Matarlímið lagt í bleyti í vatni í smá stund, hella því síðan af og límið brætt yfir gufu.
Blanda síðan ananas safanum út í límið og hræra.
Að lokum er svo öllu hrært saman og síðast eru ananas bitunum hellt út í súpuna.
Strá síðan súkkulaðispæninum yfir og sett inn í ísskáp.
Best að búa til deginum áður.

Verði ykkur að góðu

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica