Ég fékk bara sjokk þegar ég borðaði skötu hjá ömmu Júlíu á Þorláksmessu
Jólagestur okkar 8. desember er Chiharu Kawai
Jólin í Japan eru allt öðruvísi heldur en hér á Íslandi. Þau eru meira svona "fjölskylduhátíð" í Japan. Um það bil 85% af japönum eru hvorki búddatrúar né kristnir, þannig við hugsum ekkert um Jesú eða eitthvað sem tengist kristinni trú um jólin. Árið sem ég kom til Hornafjarðar, hélt ég jól hjá Heiðu og Begga. Það var allt annað en jólin hjá okkur í Japan sem er bara fínt, en ég fékk bara sjokk þegar ég borðaði skötu hjá ömmu Júlíu á Þorláksmessu. Ég er hrifin af flestum íslenskum mat en skata var alls ekki góð, en mér finnst íslenskur jólamatur góður og ég er sérstaklega hrifin af hangikjöti. Ég kaupi það alltaf þegar ég fer til Japan og gef fjölskyldunni minni að smakka og allir elska hangikjöt og grænar baunir.
Hér á Íslandi fá allir fullt af jólapökkum en það er ekki svoleiðis í Japan, bara þeir krakkar sem trúa að jólasveinninn sé til geta fengið jólapakka. Börn setja sokka við hliðina á koddanum á aðfangdagskvöldi og svo þegar þau vakna á jóladagsmorgunn þá opna þau pakkann.
Gamlaársdagskvöld og nýársdag er miklu meiri hátíð hjá okkur en jólin. Við höldum upp á það að hætti búddista.
Fólk klæðir sig í kimono, borðar góðan mat og fer svo í hof og kyrjar fyrir bjartri framtíð og góðri heilsu.
Tofu með redcurry paste:
1 stk Tofu
100-200g svínahakk
1/2 kúrbítur
1 gulrót
1 laukur
1/2 rauð parika
1/4 Lime
smá ferskt koriander
2-3 matskeið redcurry paste
1. Skera tófu í smábita og sjóða það í 1 mín og sigta síðan
2. Skera allt grænmetið í bita og steikja í pönnu og bæta hakki útí, steikja vel.
3. Þvínæst setja tofu og redcurry paste og pipar og salt ef þarf.
Slökkva á eldavélinni og kreista lime út í og koriander stráð yfir.
Bestu jólkveðjur
- Chiharu Kawai




Skrifa athugasemd